Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2002, Side 26

Læknablaðið - 15.12.2002, Side 26
FRÆÐIGREINAR / LUNGU OG HEILSA sóknin leiðir íljós mikinn mismun milli þjóða á algengi einkenna frá öndunarfærum, asma, ofnæmis og auð- reitni í berkjum. Þannig var áttfaldur munur á surg, sexfaldur munur á asma (stage 1), meira en tífaldur munur á læknisgreindum asma (stage 2) og fjórfaldur munur á ofnæmiseinkennum í nefi. Öll enskumælandi löndin skáru sig úr með háar tölur fyrir öndunarfæra- sjúkdóma, en ísland, hluti Spánar, Þýskaland, Italía, Alsír og Indland voru á neðri hluta skalans. Áttfaldur munur mældist á auðreitni þar sem hún var mest og þar sem hún var minnst og gott samræmi var milli auð- reitni og einkenna í öndunarfærum (31). Gott samræmi var einnig milli ofnæmis og ein- kenna frá öndunarfærum og enn röðuðust ensku- mælandi löndin í efstu sætin þegar um ofnæmi var að ræða, með þeirri undantekningu þó að Sviss kom í öðru sæti eftir Ástralíu, en aftur kom ísland í neðsta sæti. Þessar niðurstöður hafa verið bornar saman við niðurstöður úr afar umfangsmikilli fjölþjóðlegri rann- sókn sem nefnd er ISAAC-rannsóknin á börnum 13- 14 ára (60). Algengistölur voru að jafnaði lægri í Evr- ópurannsókninni en í ISAAC-rannsókninni þótt gott samræmi sé í niðurstöðum hjá einstaka þjóðum. Niðurstöður úr ISAAC-rannsókninni fyrir ísland liggja enn ekki fyrir. Á þeim tíma sem gagnasöfnun rannsóknarinnar fór fram var almennt viðurkennt að asmi væri bólgu- sjúkdómur sem meðhöndla bæri með bólgueyðandi sterum (61). Það er því umhugsunarefni hve lágt hlutfall þeirra sem greindir voru með asma á rann- sóknarárinu notuðu bólgueyðandi lyf daglega. Það náði hvergi þriðjungi sjúklinganna og á íslandi voru það aðeins 10%. Við samanburð á stöðu íslenskra asmasjúklinga og sjúklinga annarra þátttökuþjóða kann að virðast sem íslenskir asmasjúklingar séu bæði lítið og illa meðhöndlaðir. En þá ber að hafa í huga að einkenni íslenskra sjúklinga eru minni en annarra sjúklinga ef mið er tekið af blástursgildum og nætureinkennum. Það er því ekki bara minna um asma á íslandi miðað við sambærilegar þjóðir heldur eru einkenni þeirra sem þennan sjúkdóm hafa vægari hér en almennt gerist. Það kemur einnig fram að meðferðarheldni er meiri á íslandi en annars staðar sem kann að þýða það að val á meðferð sé betri hér á landi og að íslenskir sjúklingar séu vel upplýstir. Því hefur stundum verið haldið fram þegar yfir- völdum eða einstaklingum blöskrar það fjármagn sem varið er til lyfjakaupa að læknar ofnoti lyf. En hvernig stöndum við íslendingar í samanburði við aðrar þjóðir Evrópurannsóknarinnar varðandi með- ferð á asmatengdum einkennum? Við erum þar í lægsta sæti ásamt Norðmönnum með aðeins 8% ein- staklinga í meðferð. Þetta vekur upp spurningar um það hvort einhverjir fari á mis við meðferð sem ættu að fá hana, en við því höfum við ekkert svar. Evrópurannsóknin sýnir að asmi er sífellt að auk- ast í þjóðfélögum með vestrænan lífsstíl og hefur stefnan í þá átt verið stöðug frá seinni helmingi síð- ustu aldar. Þannig hefur nýgengi asma meira en tvö- faldast á árabilinu 1950-1971 og er þróunin á íslandi ekki frábrugðin (32). Á fyrstu aldursárunum eru minni líkur á því að stúlkur fái asma en drengir, þetta jafnast út um kynþroskaaldur, en um miðbik ævinnar fá fleiri konur en karlar asma. Þetta er í samræmi við eldri niðurstöður (62, 63). Hafa ber í huga að hér er um afturvirka könnun að ræða þar sem gera má ráð fyrir meiri skekkjum í niðurstöðum þegar lengra líð- ur frá því atviki sem spurt er um. Á fyrri hluta þess tímabils sem þátttakendur rannsóknarinnar eru fædd- ir á var sú skoðun ríkjandi meðal lækna á íslandi að asmi væri mjög sjaldgæfur hjá börnum og þar af leið- andi kann hann að hafa verið vangreindur sem í hinu íslenska tilfelli myndi ýkja þann mun sem er á fyrri hluta og seinni hluta rannsóknartímans. í töflu X er yfirlit yfir þau atriði sem í rannsókninni höfðu áhrif á algengi surgs, asma, auðreitni og ofnæmis (23). Hefur áður í greininni verið fjallað um einstök efnisatriði töflunnar. Þar er þó sérstök ástæða til að benda á þau atriði sem draga úr hættu á ofnæmi, en það er stór systkinahópur og dýr í umhverfi í æsku. Nú eru þetta ekki ný sannindi því sýnt var fram á þýðingu stærðar systkinahópsins 1989 (64) og fleiri rannsóknir hafa staðfest þær niðurstöður (65-68), og gildir þá einu hvort í rannsóknunum tóku þátt böm (68), unglingar (65) eða fullorðnir (67). í sumum rann- sóknum hefur verið sýnt fram á sterkari áhrif af eldri systkinum (64, 67) og í öðrum rannsóknum hafa áhrifin verið sterkar tengd drengjum en stúlkum (47, 67). Samnýting herbergja í æsku hafði einnig áhrif (47). Eldri rannsóknir hafa sýnt að ofnæmisvakar frá köttum finnast í 100 til 1000 sinnum meira magni á heimilum þar sem ketti búa en á heimilum sem ekki eru með ketti (69). Af þeirri ástæðu hefur fram undir þetta þótt nærri sjálfsagt að gæludýr á heimili ykju hættuna á því að börn fengju ofnæmi (70). í samræmi við það hafa sérfræðingar óhikað ráðlagt foreldrum að útiloka dýr úr umhverfi barnanna á fyrstu æviár- unum til að minnka hættuna á ofnæmi. Niðurstöður Evrópurannsóknarinnar ganga þvert á þessar hug- myndir. Þegar mat er lagt á niðurstöðurnar má þó halda því fram að fjölskyldur sem stríða við ofnæmi séu líklegri til að forðast dýrahald heldur en fjöl- skyldur sem ekki eiga við slíkt vandamál að etja. f Evrópurannsókninni var leiðrétt fyrir slíkum áhrif- um enda kom í ljós að áhrif af hundahaldi voru svip- uð í ofnæmisfjölskyldum og þeim fjölskyldum sem ekki höfðu sögu um ofnæmi (47). Nýlegar greinar sem fjalla um áhrif dýrahalds í æsku á ofnæmi eru ekki samhljóða í niðurstöðum. Anyo og félagar kom- ust að þeirri niðurstöðu að hundar eða kettir í um- hverfi á fyrstu tveimur aldursárunum minnkuðu líkur fyrir frjóofnæmi (OR: 0,73) (71). Sænsk rannsókn sýndi að börn sem umgengust ketti á fyrstu æviárun- 902 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.