Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Hulda Hjartardóttir Höfundur er ritari stjórnar Læknafélags íslands. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar eru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjómar LÍ. Það næðir um okkur læknana þessa dagana þrátt fyrir hlýindin í lofti. Við virðumst eiga í baráttu alls staðar. Heimilislæknar eru í baráttu vegna launa og starfskjara og fá skammir fyrir að sinna ekki sjúkling- unum. Unglæknar berjast fyrir sömu mannréttindum og aðrir læknar hafa fengið í sambandi við vinnutíma og hvfld. Verstu útreiðina í fjölmiðlum hafa þó sér- fræðingar sem starfa á sjálfstætt reknum stofum feng- ið. Við erum sögð sækja okkur fé í vasa Trygginga- stofnunar og sólunda fé skattborgaranna. í fjölmiðl- um hefur fréttaflutningur verið á þá leið að við séum ekkert annað en fégráðugir peningapúkar og líklega bara til óþurftar. Það er lítið talað um það að eftir- spurn eftir viðtölum hjá sérfræðingum er oft á tíðum miklu meiri en framboðið og stöðugur þrýstingur frá almenningi um meiri þjónustu. Allir hafa þó heyrt um skortinn á heimilislæknum og það hve erfitt sé að komast að hjá þeim en einhvern veginn er alltaf látið í veðri vaka að það sé heimilislæknum að kenna en ekki á ábyrgð heilbrigðisyfirvalda. Sjúkrahússtjórnendum finnst sér líka vera ógnað af sérfræðingum í stofuvinnu og að við séum í sam- keppni við þá. Það er erfitt að skilja hvers vegna þeim finnst þetta. Flestir þeir sérfræðingar sem vinna á sjúkrahúsunum eru aðeins með sjálfstæðan stofu- rekstur lítinn hluta af sínum heildarvinnutíma, gjarn- an 20%. Meirihluta vinnutímans erum við hins vegar í vinnu á sjúkrahúsunum. Erum við að gera það sama á stofunum og við gerum á sjúkrahúsinu? Nei að sjálfsögðu ekki, við erum ekki að reka lítil sjúkrahús úti í bæ. Við erum þar með göngudeildarþjónustu sem fyrirfinnst varla á sjúkrahúsunum. Á Landspít- ala er ekki pláss fyrir hana og ekki vilji til að reka slíka þjónustu eins og er. Það er nauðsynlegt í nær öll- um sérgreinum að geta hitt sjúklinga á göngudeild. Það er óeðlilegt að sérfræðingar vinni eingöngu við að sinna sjúklingum inniliggjandi á deildum, hvort sem það er til lyfjameðferðar eða skurðaðgerða, og geti ekki stundað þessa sömu sjúklinga áður og eftir að þeir útskrifast. Einnig er það hluti af vinnu í hverri sérgrein að lækna fólk án innlagnar á sjúkrahús og flestir sérfræðingar vilja halda áfram að vinna slíka vinnu þó þeir vilji líka geta haft aðstöðu til að sinna veikara fólki inni á sjúkrahúsum. Þetta skapar fjöl- breytni í starfinu og ánægju hjá lækninum. Stjórnend- ur sjúkrahúsanna ættu líka að staldra við og skoða betur ofan í kjölinn hvað ræður því að sérfræðingar eru óánægðir með að vinna eingöngu á sjúkrahúsum. Það er oftast mikill erill á stóru sjúkrahúsi. Læknarnir stýra ekki nema að litlu leyti hve mikið vinnuálagið er og það er síbreytilegt. í sjálfstæðum rekstri er vinnutíminn ákvarðaður af lækninum, álagið er einn- ig ákvarðað af lækninum og truflanir eru litlar. Lækn- irinn ræður sjálfur umhverfinu og hversu ört er bók- að. Hann stundar lækningar og gefur ráð án þess að vera stýrt af neinu öðru en sinni bestu læknisfræði- legu þekkingu. Þar ráða engin önnur sjónarmið. Ef stjórnendum sjúkrahúsanna finnst við vera í sam- keppni við þá verða þeir að huga að því að gera starf- ið meira aðlaðandi inni á sjúkrahúsunum, ekki bara horfa á launaþáttinn. Með starfinu er átt við tíma, að- stöðu og sjálfdæmi. Það er óásættanlegt eftir 15 ára nám að hafa lítið sem ekkert um það að segja hvernig störfum manns er háttað. Þetta er meðal annars það sem heimilislæknar eru að berjast fyrir. Það skiptir máli að vera viðurkennd- ur sem sérfræðingur, geta ráðið sér sjálfur og hvernig maður vill stunda sína sjúklinga. Það er ekki greiðslu- fyrirkomulagið sem skiptir mestu máli heldur þetta sjálfstæði sem heilbrigðisyfirvöld virðast eiga erfitt með að skilja. Það sem vill gjarnan gleymast í allri þessari um- ræðu er miðpunkturinn sjálfur, sjúklingurinn og hveijir hans hagsmunir séu. Það er ekki oft spurt hvernig fólk vilji hafa heilbrigðisþjónustuna. Það sem við vitum hins vegar er að fólk er afskaplega þakklátt fyrir þann tíma sem maður gefur því og vill gjarnan halda áfram að leita til læknis sem það treystir. Það sama gildir um okkur öll og þarf ekki einu sinni veik- indi til að fólk leiti aftur á sama staðinn. Flestir þekkja það hjá sjálfum sér að þeir vilja helst fara til sama rakarans eða hárgreiðslukonunnar ef þeir eru farnir að þekkja þau að góðu einu og treysta þeim til að gera vel. Það er því nauðsynlegt að geta fylgt sjúk- lingunum sínum eftir innan og utan sjúkrahússins og nýtt það traust sem sjúklingurinn ber til manns til að hjálpa honum að ná bata. Það sama á við um heimil- islækna, sjúklingum er illa við að skipta um lækni sem það treystir og heimilislæknunum finnst slæmt að geta ekki sinnt sjúklingunum sínum eins og þeir vilja. Það er því alveg öruggt mál að uppsagnir heimilis- lækna undanfarið voru ekki auðveldar fyrir þá frekar en sjúklingana. Uppsagnirnar byggjast á langvarandi óánægju með starfskjörin. Ábyrgðin er heilbrigðis- yfirvalda að setja sig inn í aðstæður heimilislækna og sýna vilja til að endurskoða afstöðu sína í launamál- um þeirra til að skapa svigrúm fyrir heimilislækna svo að þeir geti unnið á þann hátt sem þeim þykir réttast- ur. Læknir sem hefur á tilfinningunni að hann geti ráðið þessum þáttum er sáttur og ánægður og getur sinnt sínu starfi, að lækna sjúklinga, eins og best verð- ur á kosið. Hann á eftir að þjóna samfélaginu vel og lengi og sjúklingamir geta verið öruggir með ára- langa þjónustu. 924 Læknablaðið 2002/88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.