Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 19
SCH6RING
making medicine work
Neyðargetnaðarvörn
Með Postinor® er mögulegt að koma
í veg fyrir ótímabæra þungun eftir
óvarðar samfarir. Postinor® hindrar
egglos og frjóvgun - er því ekki
fóstureyðingapilla.
Töflurnar eru tvær og innihalda
levonorgestrel 750 mg, hvor tafla.
Fyrri töfluna á að taka í síðasta lagi
72 klst eftir óvarðar samfarir. Því fyrr
sem lyfið er tekið, því meiri líkur á
árangri. Seinni töfluna á síðan að
taka 12-16 klst eftir þá fyrri.
Neyðargetnaðarvörn á ekki að koma
í staðinn fyrir reglubundna
getnaðarvarnarmeðferð.
Neyðargetnaðarvörn kemur ekki
alltaf í veg fyrir þungun. Ef óvissa er
um hvenær samfarir án getnaðar-
varna áttu sér stað eða ef konan
hefur haft samfarir án getnaðarvarna
fyrir meira en þremur sólarhringum
á sama tíðahringnum, getur
getnaður þegar hafa átt sér stað.
Því getur verið of seint að meðhöndla
með Postinor. Ef blæðingum seinkar
um meira en 5 daga skal útiloka
þungun með þungunarprófi.
Postinor® er ekki ráðlagt konum með
alvarlega skerta lifrarstarfsemi
Upplýsingar um Postinor® má nálgast
í næsta apóteki, á heilsugæslu-
stöðvum, hjá læknum, Ijósmæðrum
og hjúkrunarfræðingum.
Postinor fæst lyfseðilslaust í
apótekum. Með pakkningunni fylgja
ítarlegar leiðbeiningar um notkun
lyfsins.
Thorarensen lyf
Lynghálsi 13 • 110 Rcykjavík • Slmi 530 7100
Postinor
levonorgestrel 750mg
Heimildir: 1. Task Force on Postovalutory Methods of Fertility
Regulation. Randomised controlled trial of levonorgestrel
versus the Yuzpe regimen of combined oral contraception.
Lancet 1998:352:428-433
2. Piaggio G, von Hertzen H, Grimes DA, Van Look PFA.
Timing of emergency contraception with levonorgestrel
ortheYuzpe. Lancet 1999; 353:721 3 Levonelle - 2
Summary of Product Characteristics 1999 . 4. Bracken MB.
Obsterics and Gynocology 1990; 76: 552-557
UIS-03 65