Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2003, Side 21

Læknablaðið - 15.04.2003, Side 21
FRÆÐIGREINAR / ÞVAGLEKI Tíðni þvagleka meðal stúlkna í framhaldsskólum Ágrip Guðmundur Geirsson1 LÆKNIR, SÉRFRÆÐINGUR í ÞVAGFÆRASKURÐLÆKNINGUM Bente Hansen2 ÍÞRÓTTAFRÆÐINGUR Kristrún Hermannsdóttir2 ÍÞRÓTTAFRÆÐINGUR Tilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tíðni þvagleka meðal ungra kvenna í fram- haldsskólum landsins sem og að kanna hve mikla kennslu þær hafa fengið í þjálfun grindarbotnsvöðva. Aðferðir: Úrtakið náði til 311 stúlkna á aldrinum 16- 19 ára úr sex framhaldsskólum á höfuðborgarsvæð- inu og tveggja af Suðurlandi. Þetta samsvarar 3,7% af fjölda stúlkna á þessum aldri í landinu. Alþjóðlegur staðfærður spurningalisti var notaður. Hann saman- stendur af spurningum um tíðni, gerð, ástæður og áhrif þvagleka á daglegt líf. Auk þess voru tvær spurningar um fræðslu og kennslu í grindarbotnsæf- ingum. Niðurstöður: Alls svöruðu 294 stúlkur af 311 (94,5%). Um þriðjungur þeirra hafði fundið fyrir þvagleka, þar af voru 11% sem misstu þvag tvisvar eða oftar í viku. Um fjórðungur töldu einkennin hafa einhver áhrif á daglegt líf (að meðaltali 2,8 á kvarð- anum 0-10). Rúmlega helmingur þeirra (55%) höfðu einkenni um hreinan áreynsluleka, 24% með bráða- leka og 21% höfðu blönduð einkenni. Yfirgnæfandi meirihluti stúlknanna hafði enga fræðslu fengið um grindarbotnsvöðva eða æfingar. Ályktanir: Þvagleki er algengur meðal ungra ís- lenskra kvenna og hafa einkennin áhrif á daglegt líf hjá fjórðungi þeirra. Með aukinni fræðslu um grind- arbotnsvöðva og þjálfun mætti eflaust koma í veg fyrir þessi vandamál hjá mörgum þessara stúlkna. 'Þvagfæraskurödeild Landspítala Hringbraut, :Grunnskólanum í Reykholti og Menntaskólanum á Laugarvatni. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Guðmundur Geirsson, þvagfæraskurödeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími: 543 1000. gug@landspitali. is Lykilorð: þvagleki, tíðni, lífsgœði, konur. Inngangur Þvagleki er sjúkdómseinkenni sem lítill gaumur er gefinn í okkar samfélagi. Þvagleki er ekki lífshættu- legt ástand en getur haft mikil áhrif á daglegt líf. Nægir að nefna almenna vellíðan, þátttöku í félagslífi og sjálfsálit einstaklingsins. Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem eiga við þetta vandamál að stríða. Fjöldi erlendra faraldsfræðilegra rannsókna hafa verið gerðar á þvagleka og eru tíðnitölur afar mis- munandi, aðallega vegna mismunandi skilgreininga og aðferða. Flestar leiða þær í ljós að nokkuð hátt hlutfall kvenna á við þetta vandamál að stríða. í þeim fáu erlendu rannsóknum sem hafa verið gerðar hjá mjög ungum konum eru tíðnitölur mjög breytilegar, eða frá 5-50% (1,2). Hér á landi hafa engar rannsóknir verið gerðar hingað til á tíðni þvagleka meðal mjög ungra kvenna. I rannsókn, gerðri í Öxarfjarðarhéraði í október 1993 ENGLISH SUMMARY Geirsson G, Hansen B, Hermannsdóttir K Prevalence of urinary incontinence among young female college students Læknablaöiö 2003; 89: 305-9 Objective: The aim was to study the prevalence of urinary incontinence in young lcelandic female college students. We also studied how the incontinence effected their daily life, and also if they ever received any education and/or instruction on pelvic floor exercises. Material and methods: A total of 311 women in age range 16-19 years old were randomly selected from eight college schools in lceland. This is about 3.7% of all women at this age’s range living in the country. A validated four item (ICIQ short form) questionnaire was used assessing the prevalence, perceived causes and magnitude of urinary incontinence as well as effects on quality of life during the last 4 week. The questionnaire was translated into lcelandic according to an agreed international methodology. Additional two questions were asked regarding pelvis floor exercises. Results: Out of 311 students 294 responded (94.5%). About one third (32%) reported some urinary incontinence during the past four weeks, 11 % had at least two epi- sodes a week. Incontinence affected their quality of live in 26% of responders (mean value 2.8 on the scale 1-10). Over all 55% had symptoms of stress urinary inconti- nence, 24% pure urge incontinence and 21 % had mixed symptoms. The majority or 78% of the women had not received any instructions about pelvic floor exercises. Conclusions: Urinary incontinence is a prevalent condition affecting the quality of life in 26% of young lcelandic female college students, stress incontinence being the most common symptom. Preventive measures such as pelvic floor exercises should be recommended in this age group. Key words: urinary incontinence, female, incidence, quality and life. Correspondence: Guðmundur Geirsson, gug@landspitali.is á algengi þvagleka meðal 131 kvenna 21 árs og eldri, reyndist meira en helmingur kvennanna hafa þvag- leka (3). í nýlegri stórri faraldsfræðilegri rannsókn á tíðni þvagleka hjá íslenskum konum á aldrinum 30- 76 ára reyndist tíðnin vera 38,4% (4). Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tíðni þvagleka á meðal ungra kvenna í framhaldsskólum landsins. Einnig hvort og hve mikla kennslu þær hafa fengið um grindarbotnsþjálfun. Læknablaðið 2003/89 305

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.