Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 52
ÖFLUGT LYF VIÐ HÁÞRÝSTINGI
Lopress
Hver tafla inniheldur:
Losartanum INN, kaliumsalt,
12,5 mg eöa 50 mg.
o
Omega Farma
Ábendingar: Háþrýstingur. Hjartabilun þegar meðferð
með ACE-hemlum er ekki lengur talin henta. Ekki er
mælt með að skipta yfir í meðferð með lósartan ef
hjartasjúklingar eru í jafnvægi á ACE-hemlum. Skammtar
og lyfjagjöf: Skammtar eru einstaklingsbundnir.
Skammtastærdir handa fullorönum: Háþrýstingur:
Venjulegur upphafs- og viðhaldsskammtur fyrir flesta
sjúklinga er 50 mg einu sinni á dag. Lósartan má gefa
einu sinni á dag eða tvisvar á dag og heildarskammtur er
á bilinu 25-100 mg á dag. Ef ekki fæst nægjanlega góð
stjórnun á blóðþrýstingnum með því að gefa lósartan
einu sinni á dag, getur verið betra að skipta skammtinum
í tvennt eða auka hann í 100 mg einu sinni á dag.
Hámarksblóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins nást 3-6 vikum
eftir að meðferð er hafin. Nota skal 25 mg upphafsskammt,
einu sinni á dag,, handa sjúklingum með minnkað
blóðrúmmál t.d. þeim sem meðhöndlaðir eru með stórum
skömmtum af þvagræsilyfjum og þeim sem hafa sögu um
skerta lifrarstarfsemi (sjá Varnaðarorð og varúðarreglur).
Ekki er þörf á að breyta upphafsskammti aldraðra sjúklinga
eða sjúklinga með skerta nýrnastarfsemi, þ.m.t. sjúklinga
sem fá kvið- eða blóðskilun (sjá Varnaðarorð og varúðar-
reglur). Lósartan má gefa með öðrum háþrýstingslyfjum.
Hjartabilun: Upphafsskammtur hjá sjúklingum með
hjartabilun er 12,5 mg einu sinni á dag. Auka má skammtinn
um 12,5 mg á viku fresti (þ.e. i skammtana 25 mg daglega
eða 50 mg daglega), í venjulegan viðhaldsskammt, 50
mg einu sinni á dag eða eins og sjúklingurinn þolir. Lósartan
er venjulega gefið samhliða þvagræsilyfjum og dígitalis.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað bömum.
Lósartan má gefa með eða án matar. Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lósartani eða einhverju af innihaldsefnum
lyfsins. Sjá einnig kaflann um meðgöngu og brjóstagjöf.
Vamaðarorð og varúðarreglur Ofnæmi. Ofnæmisbjúgur
(sjá Aukaverkanir). Lágþrýstingur og blóðsalta/vökva
ójafnvægi: Hjá sjúklingum með vökvaskort (t.d. þeim
sem meðhöndlaðir eru með stórum skömmtum af
þvagræsilyfjum) geta einkenni um lágþrýsting komið fyrir.
Þennan vökvaskort á að leiðrétta fyrir gjöf lósartans eða
nota lægri upphafsskammt af lósartani. Skert lifrarstarfsemi:
Ihuga ætti lægri upphafsskammt fyrir sjúklinga með sögu
um skerta lifrarstarfsemi, en samkvæmt gögnum úr
lyfjahvarfafræði hefur verið sýnt fram á marktækt aukna
plasmaþéttni hjá sjúklingum með skorpulifur. Skert
nýmastarfsemi: Sem afleiðing af hömlun renín-angíótensín-
kerfisins, hafa breytingar á nýrnastarfsemi, þ.m.t. nýmabilun,
verið skráðar hjá næmum einstaklingum; þessar breytingar
á nýrnastarfsemi geta gengið til baka ef meðferð er hætt.
Önnur lyf sem hafa áhrif á renín-angíótensín-kerfið geta
aukið þvagefni og kreatínín í sermi hjá sjúklingum með
þrengsli í annarri eða báðum nýrnaslagæðum. Svipuð
áhrif hafa verið skráð um lósartan; þessar breytingar á
nýrnastarfsemi geta gengið til baka, ef meðferð er hætt.
Ekki ætti að nota kalíumuppbót eða kaliumsparandi
þvagræsilyf samtimis lósartan án samráðs við lækni.
Milliverkanir: Ekki þekktar. Sambönd sem hafa verið
rannsökuð eru m.a.: hýdróklórtíazið, digoxin, warfarín,
címetidín, fenemal, ketókónazól og erýthrómýcín. Rífampicin
og flúkónazól hafa lækkað blóðþéttni virka umbrotsefnisins.
Klinísk þýðing þessara milliverkana hefur ekki verið metin.
Eins og við á um önnur lyf sem hamla angíótensíni II eða
verkunum þess, getur samhliða notkun kalíumsparandi
þvagræsilyfja (t.d. spírónólaktóns, triamterens og amílóriðs),
kalíumuppbótar og salta sem innihalda kalíum, leitt til
kaliumhækkunar í blóði. Eins og við á um önnur
blóðþrýstingslækkandi lyf, geta blóðþrýstingslækkandi
áhrif lósartans deyfst við samhliða töku bólgueyðandi
lyfsins indometasíns. Meðganga og brjóstagjöf: Þrátt
fyrir að engin reynsla sé af notkun lyfsins hjá þunguðum
konum hafa rannsóknir á dýrum sýnt að lósartan veldur
fósturskaða, fósturlátum og nýburadauða og er það talið
vera vegna lyfjafræðilegra áhrifa á renín-angíótensin-
kerfið. Hjá mannsfóstri hefst blóðrás um nýru sem er háð
myndun renín-angíótensin-kerfisins á öðrum þriðjungi
meðgöngu, og er því hættan fyrir fóstrið aukin ef lyfið er
gefið á öðrum eða þriðja þriðjungi meðgöngu. Lyf sem
hafa beina verkun á renín-angíótensín-kerfið geta valdið
fósturskaða og jafnvel fósturláti, séu þau notuð á öðrum
eða þriðja þriðjungi meðgöngu. Eigi þungun sér stað,
skal stöðva lósartan meðferð svo fljótt sem auðið er.
Brjóstagjöf: Ekki er vitað hvort lósartan skilst út í
brjóstamjólk kvenna. Á það skal þó bent að umtalsvert
magn af lósartani og virku umbrotsefni þess hefur komið
fram í rottumjólk. Vegna mögulegra aukaverkana á barn
á brjósti, skal taka ákvörðun um hvort hætta eigi
brjóstagjöfinni eða notkun lyfsins, m.t.t. mikilvægis lyfsins
fyrir móðurina. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Engin
þekkt áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla.
Aukaverkanir: Algengar (>1%): Svimi, lágþrýstingur.
Sjaldgæfar (0,1-1%): Stöðubundinn lágþrýstingur. Mjög
sjaldgæfar (<0,1%): Ofnæmi: Bráðaofnæmi, ofsabjúgur
þ.á. m. þroti i barkakýli og raddböndum sem lokar
öndunarveginum og/eða þroti í andliti, vörum, koki og/eða
tungu. Sumir þessarra sjúklinga hafa áður fengið ofsabjúg
af völdum annarra lyfja, þ.á m. ACE-hemla. Æðabólga
hefur sjaldan sést, þar með talið purpuralíki sem svipar
bæði til purpuralíkis Henochs og Schönleins, með
kviðverkjum, maga- og garnablæðingum, liðverkjum og
nýrnabólgu. Meltingarfæri: Niðurgangur, lifrarbólga,
truflanir á lifrarstarfsemi. Blóð: Blóðleysi. Húð: Ofsakláði,
kláði. Stoðkerfi: Vöðvaverkir. Taugakerfi: Migreni.
Öndunarfæri: Hósti. Breytingará blóðgildum: Hækkað
kalíum í blóði (>5,5 mmól/l (ca. 1,5%)); væg hækkun á
lifrarensímum kom sjaldan fyrir og gekk venjulega til
baka ef meðferð var hætt. Ofskömmtun: Takmarkaðar
upplýsingar eru til varðandi ofskömmtun í mönnum.
Líklegasta merki ofskömmtunar er lágþrýstingur og
hraðtaktur, hægsláttur gæti komið fyrir. Ef lágur
blóðþrýstingur veldur einkennum skal hefja
stuðningsmeðferð. Hvorki er hægt að fjarlægja lósartan
né virka umbrotsefnið með blóðskilun. Pakkningar og
hámarksverd í smásölu - 1. nóv. 2002: Töflur 12,5
mg: 28 stk. 2.350 kr.; töflur 50 mg: 28 stk. 3.632 kr.; 98
stk. 10.559 kr. Afgreiðslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka:
B. Markaðsleyfishafi: Omega Farma. Nóv. 2002.