Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR SIÐANEFNDAR LÍ O tempora! O mores! Þegar Ég var barn á Siglufirði rifti maður nokkur munnlegum húsaleigusamningi við föður minn með þessum orðum: „Góði maður. Veiztu ekki að það sem tveir menn hafa talað saman er sama og ósagt?“ Því minnist ég þessa að um síðastliðin áramót var loks kveðinn upp dómur í Siðanefnd (ad hoc) Læknafélags íslands í kærumáli rnínu gegn Kára Stefánssyni. Þá hafði það tekið nærri þrjú ár að fá málið til lykta leitt. Læknablaðið (tbl. 4/2003) hefur birt niðurstöðu Siðanefndar sem er að Kári skuli vera sýkn af kröfum mínum í máli þessu. I niður- stöðu Siðanefndar segir m.a: „Verður hér að vísa til þess að hin meintu ummæli eru samkvæmt kröfugerð sóknaraðila einungis rakin efnislega en ekki skýrlega tilgreint og afmarkað hver þau ummæli voru, eins og almennt er gerð krafa um, sbr. dóm Hæstaréttar í málinu nr. 505/2002, sem kveðinn var upp 18. nóvem- ber sl.“ Við Kári höfum einungis einu sinni ræðzt við eftir að frumvarp til laga um miðlægan gagnagrunn á heil- brigðissviði var lagt fram skömmu fyrir páska 1998. Það var laugardagsmorguninn 11. júlí 1998, en þá hringdi Kári til mín. Hann byrjaði á að hæla mér fyrir grein sem birzt hafði þá um morguninn í Morgun- blaðinu. Hún nefnist „Virðing Alþingis“ og er fyrsta grein mín um Gagnagrunnsmálið (það má nálgast hana og síðari greinar á www.mannvernd.is). Því næst bað Kári mig að hitta sig. Þetta hefði orðið fyrsti einkafundur okkar Kára sem þó höfum þekkzt í rúma þrjá áratugi frá því að við vorum samstúdentar í læknadeild Háskóla íslands. Ég afþakkaði boð hans en hvatti hann til að svara gagnrýni minni á opinber- um vettvangi enda stæðu honum allir fjölmiðlar opn- ir. Kári gerði annað. „Tveggja manna tal“ Þetta kærumál snýst um lygar sem Kári Stefánsson viðhafði um mig á fundi samningamanna Islenskrar erfðagreiningar og Læknafélags Islands 23. febrúar 2000. Þar sagði hann meðal annars að ég væri að ónáða sig með símhringingum á kvöldin og um helg- ar og lýsti andlegu ástandi mínu. Mér bárust fréttir af þessu og sagði fjölskyldu minni. Viðbrögð eiginkonu minnar voru þau að skrifa samstundis bréf til stjórnar Læknafélags íslands. Þar fór hún fram á að Kára yrði gert að endurtaka ummælin í áheyrn okkar og þeirra sem á hlýddu á fundinum, draga þau til baka og biðj- ast afsökunar. Hver urðu viðbrögð stjórnar Læknafé- lags íslands? í fyrstu þau að skrifa eiginkonu minni og lýsa yfir að enginn efi væri meðal stjórnarinnar um frásögn hennar. Viku síðar barst henni annað bréf um að málið væri stjórninni óviðkomandi þar eð um tveggja manna tal hefði verið að ræða. Það hlýtur að verða öllum umhugsunarefni hvern- ig stjórn Læknafélags Islands gat lagzt svo lágt að bjóða eiginkonu minni upp á aðra eins framkomu. Að minnsta kosti fjórir fundarmenn hlýddu orðlausir á frásögn Kára, eins og einn fundarmanna, Jón Snæ- dal varaformaður Læknafélags íslands og nú formað- ur siðanefndar Alþjóða læknasamtakanna, skýrði mér frá. Ummælin voru auk þess ítarlega rædd á þremur fundum stjórnarmanna í Læknafélagi íslands eins og fram kemur í síðara bréfi formanns Læknafé- lags íslands, Sigurbjörns Sveinssonar, 22. mars 2000 til eiginkonu minnar. Með þessari ótrúlegu fram- komu stjórnar Læknafélagsins var lagður hornsteinn að sýknu Kára. Siðanefnd Læknafélags íslands undir forsæti All- ans V. Magnússonar héraðsdómara bætti svo um bet- ur þegar ég afréð að kæra Kára fyrir nefndinni í júní 2000. Eftir rúmlega tíu (sic!) mánaða yfirlegu ákvað Siðanefndin að fara í hjólför stjórnar Læknafélagsins og vísaði málinu frá án efnislegrar meðferðar. Með svokölluðum úrskurði Siðanefndar fylgdi bréf þar sem Allan V. Magnússon benti rnér á að ég gæti skot- ið úrskurði nefndarinnar til Gerðardóms enda yrði ég að gera það innan fjögurra vikna. Málið fór því strax til Gerðardóms sem gerði alvarlegar athuga- semdir við vinnubrögð Siðanefndar. Gerðardómur ómerkti úrskurð Siðanefndar og lagði fyrir nefndina að taka málið til efnislegrar úrlausnar. Næst afrekaði Siðanefndin það að segja sig frá málinu, að sögn All- ans vegna anna nefndarmanna. Þetta afrek tókst nefndinni að vinna á aðeins fimm vikum. Stjórn Læknafélags íslands varð því að skipa nýja Siðanefnd (ad hoc). Tíminn, sá dyggi þjónn sá um afganginn. Málinu lauk loks á gamlársdag 2002 með sýknu Kára. Nokkrum klukkustundum síðar flutti Davíð Odds- son forsætisráðherra landsmönnum árlegan boðskap sinn og sagði: „Furðu margir segja hálfsatt eða ósatt og virðast ekki leiða hugann eina örskotsstund að heiðri sínum og orðstír og það sem lakara er, enginn hermir framkomuna upp á viðkomandi og ótrúlega mörgum er sama. Menn yppta öxlum og láta kyrrt liggja. Slíkt kann að standast skamma hríð en verður þjóðarböl þegar til lengdar !ætur.“ Jóhann Tómasson Höfundur er heimilislæknir. Læknablaðið 2003/89 609
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.