Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 73

Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 31 Faraldsfræði í dag Faraldsfræði eða tölfræði - hver er munurinn? Ég var spurð að því um daginn hver væri munurinn á faraldsfræði og tölfræði. Þegar þannig er spurt geng ég út frá því að átt sé við líftölfræði (biostatistics) en ekki tölfræði almennt eða einhverja aðra undirgrein hennar. Líftölfræði og faraldsfræði eru auðvitað ná- skyldar greinar en eru þó alls ekki ein og sama fræði- greinin. Báðar greinarnar eru taldar undirstaða lýðheilsu- fræða og framhaldsmenntun í þeim, það er masters- eða doktorsnám, fer yfirleitt fram innan veggja lýð- heilsudeilda í háskólum eða innan vébanda lækna- skóla, það á þó frekar við um faraldsfræði en töl- fræði. Yfirleitt er grunnnám í faraldsfræði hluti af læknanámi og faraldsfræði var lengi vel bundin innan læknisfræðinnar sem sérgrein en nú stunda hana einnig margir sem ekki eru læknar, ekki síst í Banda- ríkjunum. Líftölfræðin hins vegar er að miklu leyti sprottin úr ýmsum greinum líffræði, ekki síst land- búnaðarfræði (agricultural science), og hefur ekki eins sterk tengsl við læknanám og læknisfræði og raun ber vitni með faraldsfræðina. Uppbygging framhaldsnáms í faraldsfræði og líf- tölfræði er að mörgu leyti svipað, í báðum greinum er lögð áhersla á aðferðafræði rannsókna og tengsl við lýðheilsu. Grunnurinn í báðum námsbrautum er yfirleitt sá sami en síðan greinist námið og sérhæfist er lengra líður. I faraldsfræði er lögð mikil áhersla á smíð rannsóknarspurainga og kenninga, val rann- sóknarsniða, aðferðir við samsetningu rannsóknar- hópa, söfnun gagna, túlkun niðurstaðna og samþætt- ingu við aðrar upplýsingar og þekkingu, meðal ann- ars með tilliti til orsakakenninga (causal theories). Líftölfræðin beinist hins vegar frekar að gagnaum- sýslu (data management), tölfræðilegum grundvelli úrtaka (sampling theory) og tölulegri úrvinnslu gagna. Með þessu vil ég þó alls ekki gefa í skyn að hlutverk tölfræðinga sé bundið við það að keyra tölfræðiforrit. Sá misskilningur er alltof algengur að ekki þurfi annað til en góðan tölfræðipakka og þá séu mönnum allir vegir færir. Traust tölfræðiþekking og skilningur á þeim reikningum og greiningum sem fram fara með aðstoð tölfræðiforrita er auðvitað nauðsynleg forsenda skynsamlegrar úrvinnslu og túlkunar niðurstaðna. Snertifletir tölfræði og faraldsfræði eru margir og iðulega þurfa báðar greinar að koma að sama um- fjöllunarefni, til dæmis vali og útfærslu á rannsóknar- sniði. Sniðið er þá gjarnan valið út frá faraldsfræði- legum þáttum, svo sem gerð rannsóknarspurningar, eðli þýðisins og þeirra þátta sem á að rannsaka, og fyrirliggjandi þekkingu um samband þessara þátta. Þegar hugmyndir um heppilegt rannsóknarsnið liggja fyrir kemur til kasta tölfræðinga að leggja línurnar um aðferðafræði við samsetningu og stærð úrtaks til rannsóknarinnar og bestu aðferðir til að vinna úr gögnunum. f sumum tilfellum er munurinn á greinunum ekki endilega fólginn í verkaskiptingu eða því hvaða að- ferðum er beitt heldur hvernig aðferðunum er beitt eða hvaða spurningum er leitast við að svara. Þannig eru til dæmis reiknilíkön, svo sem aðhvarfsgreining, iðulega notuð bæði í tölfræði og faraldsfræði en stundum á nokkuð ólíkan hátt. Faraldsfræðingar nota slík líkön gjarnan til að lýsa flóknu sambandi margra þátta (svo sem lýðfræðilegra breytna, áhættu- þátta og erfðaþátta) við ákveðna útkomu en tölfræð- ingar líta oft meira á slík líkön sem verkfæri til að spá fyrir um ákveðnar útkomur og greina hve vel líkanið fellur að gögnunum. Eins og í öðrum greinum fer verkefnaval tölfræð- inga og faraldsfræðinga auðvitað eftir áhugasviðum hvers og eins, margir faraldsfræðingar stunda mjög viðamiklar tölfræðirannsóknir og fjöldi tölfræðinga sinnir verkefnum sem eru skyldari faraldsfræði en tölfræði. Sterkari tengsl faraldsfræðinnar við lækna- vísindin gerir það þó að verkum að yfirleitt nýtist að- ferðafræði faraldsfræðinnar víðar innan heilbrigðis- kerfisins en aðferðafræði tölfræðinnar. Þannig er far- aldsfræðilegum aðferðum oft beitt (samt kannski ekki nógu oft) við klíníska ákvarðanatöku (stundum í formi rafrænna stuðningskerfa við ákvarðanatöku, clinical decision support), gæðaþróun, árangursmæl- ingar og við stefnumótun í heilbrigðiskerfinu. María Heimisdóttir mariahei@landspitali.is Læknablaðið 2003/89 629
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.