Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Þíasíð aftur fyrsta lyfið
við háþrýstingi
Nýlegar niðurstöður ALLHAT rannsóknarinnar á
meðferð við háþrýstingi sýna að þvagræsilyf í flokki
þíasíða er góður valkostur og jafnvel betri en ACE
hemlar og kalsíumgangalokar. Að auki eru þíasíð
mun ódýrari en hin lyfin. Endurmat á háþrýstings-
meðferð gefur tilefni til að skoða fjárhagslega ábyrgð
lækna við ávísanir á lyf og áhrif lyfjafyrirtækja á ávís-
anavenjur þeirra.
Eftir að niðurstöður ALLHAT rannsóknarinnar
birtust í desember 2002 (1) hafa fræðimenn endur-
skoðað fyrri ráðleggingar varðandi háþrýstingsmeð-
ferð. ALLHAT rannsóknin er með umfangsmestu
rannsóknum sem gerðar hafa verið á þessu sviði.
Styrkur hennar felst meðal annars í því að rannsókn-
arhópurinn er margbreytilegur að aldri, kyni, kyn-
stofni og ýmsum heilsufarsvandamálum en ekki ein-
litt úrval einsog oft er í slíkum rannsóknum. Niður-
stöðurnar varðandi árangur þíasíðmeðferðarinnar
reyndist eins í öllum undirhópum, flokkuðum eftir
kynstofnum, kyni og aldurshópum. Hópurinn og all-
ar aðstæður likjast því þýði sem er að jafnaði í umsjá
heilsugæslunnar.
Allflestir erlendir fræðimenn komast að þeirri
niðurstöðu að trúverðugleiki og vísindalegt gildi
ALLHAT rannsóknarinnar séu veruleg og að þvag-
ræsilyf í flokki þíasíða séu íyrsta val við meðferð á há-
þrýstingi (2-6). Túlkun Karls Andersen á rannsókn-
inni í leiðara Læknablaðsins í mars síðastliðnum (7)
var hins vegar nokkuð á skjön við umsagnir erlendra
fræðimanna.
I febrúar á þessu ári birtust niðurstöður frá Ástra-
líu á samanburði ACE hemla og þíasíða við meðferð
á háþrýstingi hjá 6083 eldri einstaklingum í umsjá
1594 heimilislækna/heilsugæslustöðva (8). Niður-
stöðurnar sýndu að árangur af báðum lyfjategundum
var ágætur. Útkoman var heldur betri fyrir ACE
hemlana hjá körlum, en munurinn var á mörkum
marktækni varðandi bæði kynin saman. Þessar niður-
stöður leiddu aftur til umræðu um það hvaða lyfja-
meðferð væri sú besta samanber leiðara í New Eng-
land Journal of Medicine (9).
Val á milli lyfja
Rýnihópurinn „The Therapeutics Initiatives" (10)
hefur nú sent frá sér fræðilega samantekt á ofan-
nefndum tveimur rannsóknum auk annarra slembi-
úrtaksrannsókna þar sem þíasíð eru borin saman við
ACE hemla og kalsíumgangaloka. Meginniðurstöð-
ur rýnihópsins voru eftirfarandi:
• Árangur fyrstu meðferðar með þíasíðum,
kalsíumgangaloka eða ACE hemlum er í öllum
meginatriðum svipaður varðandi áhrif á lækk-
un heildardánartíðni, dánartíðni af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma og lokastig nýrna-
sjúkdóma.
• Þíasíð og ACE hemlar virka betur á hjartabil-
un en kalsíumgangalokar.
• Þíasíð lækka blóðþrýsting jafn vel eða betur og
þolast betur borið saman við ACE hemla.
• Þíasíð hafa áhrif á efnaskipti sem hingað til
hafa verið talin varhugaverð en breyta engu
um klínískt heilbrigðisástand sjúklinganna.
• Kostnaður er umtalsvert minni með þíasíðum
borið saman við betahemla, ACE hemla og
kalsíumgangaloka (sjá töflu).
• Þíasíð passa nær öllum sjúklingum með há-
þrýsting. Undantekningartilfellin eru þeir sem
fá endurtekna þvagsýrugigt sem tengist þíasíð-
um og tilvik þar sem hægt er að meðhöndla
tvennt í einu með einu lyfi, svo sem hjartaöng
og háþrýsting með betahemlum.
Tafla. Kostnadargreining á háþrýstingsmeðferd fyrir
einn einstakling í 10 ár‘.
Lyf Bandaríkjadalir íslenskar krónur
Chlorthalidone 25 mg 37 2.646
Lisinopril 40 mg 7139 510.510
Amlodipine 10 mg 7420 530.604
1 Hæsti skammtur fyrsta lyfs í ALLHAT rannsókninni var notaöur viö þessa útreikninga (10).
Eitt eöa fleiri blóöþrýstingslyf
í maíhefti JAMA 2003 eru birtar nýjustu leiðbeining-
ar frá Bandaríkjunum um meðferð háþrýstings (11).
Þar er mælt með þíasíðum sem fyrsta lyfi við háþrýst-
ingi. Bent er á að oft þurfi samt samsetta meðferð
fleiri háþrýstingslyfja. í ALLHAT rannsókninni náð-
ist góður blóðþrýstingslækkandi árangur hjá 55%
þátttakenda með aðeins einu háþrýstingslyfi og í
65% tilvika í áströlsku rannsókninni. Líklegt er sam-
bærileg hlutföll geti náðst hér á landi, það er að í um
eða yfir 50% tilvika sé hægt að ná viðunandi árangri
með þíasíðum einum saman.
V
Jóhann Ág.
Sigurðsson
Sigurður
Helgason
Jóhann er prófessor í heim-
ilislæknisfræði við HÍ með
aðsetur í Heilsugæslu-
stöðinni Sólvangi.
Sigurður er ritstjóri klínískra
leiðbeininga hjá Land-
læknisembættinu og kennir
heimilislæknisfræði við HÍ.
Læknablaðið 2003/89 563