Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 81

Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 81
Celebra (celecoxib) (styttur sérlyfjaskrártcxti) Abendingar: Til meðhöndlunar á einkennum slitgigtar og iktsýki. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærðir handa fullorðnum: Slitgigt: Ráðlagður dagsskammtur er yfirleitt 200 mg einu sinni á sólarhring eða skipt í tvo skammta. Auka máskammtinn eftir þörfum í 200 mg tvisvar sinnum á sólarhring. Iktsýki: Ráðlagður dagsskammtur er 200-400 mg skipt í tvo skammta. Ráðlagður hámarksskammtur á sólarhring er 400 mg.Nota má Celebra með mat eða án. Mismunur milli kynstofna: Sjúklingum af svarta kynstofninum á í upphafi meðferðar að gefa minni skammtinn (200 mg á sólarhring). Síðar meir má eftir þörfum auka skammtinn í 400 mg á sólarhring (sjá Lyfjahvörf). Aldraðir: Öldruðum( > 65 ára) á í upphafi meðferðar að gefa minni skammtinn (200 mg á sólarhring).Síðar meir má eftir þörfum auka skammtinn í 400 mg á sólarhring (sjá Vamaðarorð og varúðarreglur og Lyf|ahvörf). Skert lifrarstarfsemi: Hefja skal meðferð með helmingi ráðlagðs skammts hjá sjúklingum með staðfesta í meðallagi skerta lifrarstarfsemi sem hafa 25-35 g/l af albúmíni í sermi. Hvað þennan sjúklingahóp varðar liggur einungis fyrir reynsla frá sjúklingum með skorpulifur. Skert nýrnastarfsemi: Reynsla af notkun celecoxibs handa sjúklingum með vægt til í meðallagi skerta nýrnastarfsemi er takmörkuð og skal því meðhöndla slíka sjúklinga með varúð. Skammtastærðir handa börnum: Celebra er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Meðganga og konur sem geta orðið þungaðar, nema notuð sé örugg getnaðarvöm. Hjá þeim tveimur dýrategundum sem hafa verið rannsakaðar hefur komið í Ijós að celecoxib getur valdið fósturskemmdum. Hugsanleg áhætta fyrir þungaðar konur er ekki þekkt en ekki er unnt að útiloka hana. Brjóstagjöf. Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.Þekkt ofnæmi fyrir sulphonamiðum.Sjúklingar sem hafa fengið einkenni astma, bráða nefslímubólgu, nefsepa (nasal polyps), ofsabjúg, ofsakláða eða annars konar ofnæmi eftir notkun acetýlsalicýlsýru eða bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID).Virkt ætisár eða blæðingar í meltingarvegi. Bólgusjúkdómur í þörmum. Alvarleg hjartabilun. Alvarlegur lifrarsjúkdómur (albúmín í sermi <25 g/l eða Child-Pugh= 10). Sjúklingar með áætlaða kreatínínúthreinsun <30 ml/mín. Varnaðarorð og varúðarreglur: Hjá sjúklingum sem hafa fengið meðferð með celecoxibi hefur komið fyrir gatmyndun, sár og blæðingar í efri hluta meltingarvegar. Því skal gæta varúðar hjá sjúklingum með sögu um sjúkdóm í meltingarvegi, t.d. sármyndun eða bólgur og hjá sjúklingum sem eru í sérstakri hættu hvað þetta varðar. Svo sem við á um önnur lyf sem hemja nýmyndun prostaglandina hefur sést vökvasöfnun og bjúgur hjá sjúklingum sem nota celecoxib. Því skal nota celecoxib með varúð handa sjúklingum með sögu um hjartabilun, vanstarfsemi vinstri slegils eða háþrýsting og hjá sjúklingum sem eru með bjúg af einhverri annarri ástæðu, vegna þess að hömlun prostaglandina getur haft í för með sér versnun nýmastarfsemi og vökvasöfnun. Einnig skal gæta varúðar hjá sjúklingum sem nota þvagræsilyf eða geta af öðrum orsökum verið í hættu á að verða fyrir blóðþurrð. Hjá öldruðum eru meiri líkur á skertri nýma- eða lifrarstarfsemi og sér í lagi skertri hjartastarfsemi og skal nota minnsta virkan skammt handa þeim, auk þess sem læknar skulu hafa viðeigandi eftirlit með sjúklingunum.í klínískum rannsóknum var sýnt fram á að celecoxib hefur svipuð áhrif á nýru og það NSAID sem miðað var við. Alvarlegar blæðingar hafa komið fyrir hjá sjúklingum sem jafnframt nota warfarin. Gæta skal varúðar þegar celecoxib er notað samtímis warfarini. Celecoxib hamlar CYP2D6. Enda þótt það sé ekki öflugur hemill þessa enzýms kann að vera nauðsynlegt að minnka skammta þeirra lyfja sem skömmtuð eru einstaklingsbundið og umbrotna fyrir tilstilli CYP2D6 (sjá Milliverkanir). Celecoxib getur dulið hita. Líklega er ekki það mikill mjólkursykur í hverju hylki (149,7 mg í 100 mg hylkjum og 49,8 mg í 200 mg hylkjum) að hann kalli fram sértæk einkenni mjólkursykursóþols. Milliverkanir Lyfhrifamilliverkanir: Fylgjast á með blóðstorkuvirkni hjá sjúklingum sem nota warfarin eða svipuð lyf, einkum á nokkrum fyrstu dögunum eftir að meðferð með celecoxibi hefst og þegar skömmtum celecoxibs er breytt. Greint hefur verið frá blæðingum í tengslum við lengingu protrombintíma, einkum og sér í lagi hjá öldruðum sjúklingum, sem nota samtímis warfarin og celecoxib.NSAID geta dregið úr virkni þvagræsilyfja og háþrýstingslyfja.Eins og við á um NSAID getur hætta á bráðri nýrnabilun aukist við samtímis notkun ACE-hemla og celecoxibs. Á það hefur verið bent að samtímis notkun NSAID og cidosporins eða tacrolimus geti aukið eiturverkanir cidosporins og tacrolimus á nýru. Því skal fylgjast náið með nýmastarfsemi þegar celecoxib er notað samtímis öðru hvoru þessara lyfja. Nota má celecoxib samtímis litlum skömmtum af acetýlsalicýlsýru en það kemur þó ekki í stað acetýlsalicýlsýru sem notuð er til fyrirbyggjandi meðferðar við hjarta- og æðasjúkdómum. Lyfjahvarfamilliverkanir: Áhrif celecoxibs á önnur lyf Celecoxib hemur CYP2D6. Við meðferð með celecoxibi jókst plasmaþéttni CYP2D6 hvarfefnisins dextrómetorfans um 136%.Við samtímis meðferð með celecoxibi getur plasmaþéttni þeirra lyfja aukist, sem umbrotna fyrir tilstilli þessa enzýms.Meðal lyfja sem umbrotna fyrir tilstilli CYP2D6 eru geðlægðarlyf (þríhringlaga og SSRI), sefandi lyf (neuroleptics), lyf við hjartsláttartruflunum og fleiri. Þegar byrjað er á samtímis meðferð með celecoxibi þarf hugsanlega að minnka skammt CYP2D6 hvarfefna, sem skömmtuð eru einstaklingsbundið, eða auka skammtinn þegar meðferð með celecoxibi er hætt. In vitro rannsóknir gefa til kynna að celecoxib geti hamlað CYP2C19 hvöttum umbrotum. Klínískt mikilvægi þessara in vitro vísbendinga er ekki þekkt. Dæmi um lyf sem umbrotna fyrir tilstilli CYP2C19 eru diazepam, citalopram og imipramin. í milliverkanarannsókn hafði celecoxib engin marktæk klínísk áhrif á fyfjahvörf getnaðarvamalyfja til inntöku (I mg noretísteron/35 míkróg etinylestradiol). Celecoxib hefur ekki áhrif á lyfjahvörf tolbutamiðs (CYP2C9 hvarfefni) eða glibendamids í þeim mæli að það skipti klínísku máli. Hjá sjúklingum með iktsýki hafði celecoxib engin tölfræðilega marktæk áhrif á lyfjahvörf (plasma- og nýmaúthreinsun) metótrexats (í þeim skömmtum sem notaðir eru við gigt). Engu að síður skal íhuga viðeigandi eftirlit með eiturverkunum tengdum metótrexati, þegar þessi tvö lyf eru notuð samtímis. Hjá heilbrigðum einstaklingum sem fengu celecoxib 200 mg tvisvar sinnum á sólarhring og litíum 450 mg tvisvar sinnum á sólarhring jókst Cmax litíums að meðaltali um 16% og AUC litíums jókst að meðaltali um 18%. í upphafi og við lok meðferðar með celecoxibi skal því fylgjast náið með sjúklingum sem nota litíum. Ahrif annarra lyfía á celecoxib: Vegna þess að celecoxib umbrotnar að langmestu leyti fyrir tilstilli CYP2C9, skal nota helming ráðlagðs skammts hjá sjúklingum sem nota fluconazol. Samtímis notkun staks 200 mg skammts celecoxibs og fluconazols 200 mg, sem er öflugur CYP2C9 hemill, einu sinni á sólarhring leiddi til þess að Cmax celecoxibs jókst að meðaltali um 60% og AUC jókst að meðaltali um 130%. Plasmaþéttni celecoxibs getur minnkað við samtímis notkun CYP2C9 hvata, svo sem rifampicins, carbamazepins og barbiturlyfja. Þess hefur ekki orðið vart að ketoconazol eða sýrubindandi lyf hafi áhrif á lyfjahvörf celecoxibs. Meðganga og brjóstagjöf: Engar klínískar upplýsingar liggja fyrir um notkun celecoxibs á meðgöngu. í dýrarannsóknum (rottur og kanínur) hafa sést eiturverkanir á æxlun, þ.á m. Fósturskemmdir. Hugsanleg hætta fyrir menn er ekki þekkt en ekki er unnt að útiloka hana. Eins og önnur lyf sem hemja nýmyndun prostaglandina getur celecoxib valdið legtregðu (uterine inertia) og ótímabærri lokun á brjóstgangi (ductus arteriosus) á síðasta þriðjungi meðgöngu. Þungun og hugsanleg þungun er frábending fyrir gjöf celecoxibs. Verði kona þunguð í meðferð með celecoxibi skal hætta meðferðinni. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á útskilnaði celecoxibs í brjóstamjólk. Hjá rottum útskilst celecoxib í mjólk í þéttni sem svarar til plasmaþéttni. Konur sem nota celecoxib eiga ekki að hafa bam á brjósti. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Sjúklingar sem finna fyrir sundli, svima eða syfju þegar þeir nota celecoxib eiga ekki að aka bifreið eða nota vélar. Aukaverkanir: Algengar (= I %): Bjúgur á útlimum/vökvasöfnun. Kviðverkur, niðurgangur, meltingartruflun, vindgangur. Sundl. Svefnleysi. Kokbólga, nefslímubólga, skútabólga, sýkingar í efri hluta öndunan/egar. Útbrot. Sjaldgæfar (0.1 %-1 %): Blóðleysi. Hjarta og æðar: Háþrýstingur, hjartsláttarónot. Hægðatregða, ropi, magabólga, munnbólga, uppköst. Óeðlileg lifrarstarfsemi, hækkuð gildi transamínasa. Óeðlileg nýmapróf (aukning kreatíníns og þvagefnis, blóðkalíumhækkun). Þokusýn, ofspenna vöðva, náladofi (paraesthaesia). Kvíði, geðlægð. Hósti, mæði.Ofsakláði. Sinadráttur, eymasuð, þreyta, þvagfærasýkingar. Mjög sjaldgæfar (<0,l%): Hvítfrumnafæð, blóðflagnafæð. Sármyndun í maga, skeifugöm og vélinda, kyngingartregða, gatmyndun í meltingarvegi, vélindisbólga, sortusaur. Ósamhæfing vöðvahreyfinga. Hários, aukið Ijósnæmi. Breytt bragðskyn. Frá því lyfið var markaðssett hefur verið tilkynnt um höfuðverk, ógleði og liðverki auk eftirtalinna aukaverkana sem koma örsjaldan fyrir < l/l 0.000 eða sem einstök tilvik eru um: Alvarlegt ofnæmi, bráðaofnæmislost, ofsabjúgur. Blóðfrumnafæð.Hjartabilun, hjartadrep. Blæðingar í meltingarvegi, bráð brisbólga. Æðabólga, vöðvabólga. Lifrarbólga, gula. Rugl. Bráð nýmabilun. Berkjukrampar. Einstök tilvik um skinnflagning, þ.á m. Stevens-Johnson heilkenni, dreplos húðþekju (epidermal necrolysis), regnbogaroðasótt. Pakkningar og verð I. maí 2003: Hylki. hart 100 mg: 100 stk. (þynnupakkað) 7.543 kr. Hylki. hart 200 mg: 10 stk. (þynnupakkað) 1.986 kr., 20 stk (þynnupakkað) 3.256 kr., 100 stk. (þynnupakkað) 13.050 kr. Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðslufyrirkomulag: E. Handhafi markaðsleyfis: Pharmacia AS. Overgaden neden Vandet 7. 1414 Kcbenhavn K, Danmörk. Umboðsaðili á íslandi: PharmaNor hf„ Hörgatúni 2,210 Garðabæ. Sérlyfjaskrártexta í fullri lengd (síðast uppfært I. júlí 2002), má nálgast hjá Pfizer, PharmaNor hf„ Hörgatúni 2, 210 Garðabæ. CELEBRA (CELECOXIB) Detrusitol® Retard (tolterodin) RE Hvert hylki inniheldur: Tolterodintartrat 2 mg og 4 mg, samsvarandi tolterodini 1,4 mg eöa 2,8 mg. Litarefni i 1,4 mg foröahylkinu: Indígókarmín (E132), gult járnoxíö (E172) og títantvioxíö (E171). Litaæfni i2,8 mg foröahylkinu: Indígókarmin (E132) og titantvíoxíö (E171). Ábendingar: Detrusitol Retard er ætlaö til meöferöar á bráöa þvagleka (urge incontinence) og/eöa tiöum og bráöum þvaglátum, svo sem getur komiö fyrir hjá sjúklingum meö óstööuga þvagblööru (unstable bladder). Skammtar og lyfjagjöf: Forðahylkin mátaka meö mat eöa án og þau verðuraö gleypa I heilu lagi. Eftir6 mánaöa meöferöskal endurskoöa þörf fyrir áframhaldandi meðferö. Skammtastæröirhandafullorönum (þarmeötaliöaldraöir): Ráölagðurskammturer 2,8 mg einu sinni á sólarhring. Hjá sjúklingum meö skerta lifrarstarfsemi er ráölagöur skammtur 1,4 mg einu sinni á sólarhring. Komi óþægilegar aukaverkanir fram má minnka skammtinn úr 2,8 mg i 1,4 mg einu sinni á sólarhring. Skammtastæröir handa börnum: Ekki hefur enn veriö sýnt fram á öryggi og verkun hjá börnum. Notkun Detrusitol Retard foröahylkja er þvi ekki ráðlögö handa börnum fyrr en frekari upplýsingar liggja fyrir. Frábendingar: Frábendingar fyrir gjöf tolterodins eru: Þvagteppa (urinary retention). Ómeðhöndluð (uncontrolled) þrönghornsgláka. Vöövaslensfár. Þekkt ofnæmi fyrir tolterodini eöa einhverju hjálparefnanna. Alvarleg sáraristilbólga. Risaristill vegna bólgu (toxic megacolon). Varnaöarorö og varúöarreglur: Gæta skal varúöar viö notkun tolterodins hjá sjúklingum meö: Marktæka tæmingarhindrun þvagblööru (bladder outlet obstruction) og hættu á þvagtregöu. Þrengsli i meltingarvegi t.d. portþrengsli í maga. Nýrnasjúkdóm. Taugakvilla í ósjálfráðataugakerfinu. Vélindisgapshaul (hiatus hernia). Hættu á skertum hreyfanleika í meltingarvegi. Svo sem ætíö á viö þegar óstöðug blaöra er meöhöndluö skal athuga skal líffræöilegar ástæöur fyrir bráöa þvagleka og tíöum þvaglátum áður en meðferð er hafin. Samtímis notkun kröftugra CYP3A4- hemla er ekki ráölögö (sjá Milliverkanir). Sjúklingar meö sjaldgæfa, erfðabundna sjúkdóma er varöa frúktósaóþol, skert frásog glúkósu-galaktósu eöa skerta virkni súkrasa-ísómaltasa eiga ekki að nota þetta lyf. Milliverkanir: Ekki er mælt meö samtímis gjöf öflugra CYP3A4-hemla til almennrar (systemic) notkunar eins og sýklalyfja í flokki makrólíöa (erýtrómýcín og klaritrómýcín), sveppalyfja (ketócónazól og ítracónazól) og próteasa-hemla, vegna aukinnar þéttni tolterodins i sermi hjá þeim sem eru meö lítil CYP2D6 umbrot og eru í hættu hvaö varöar ofskömmtun. Verkun og aukaverkanir tolterodins geta aukist viö samtímis notkun lyfja sem hafa andmúskarínvirk áhrif. Hins vegar getur verkun tolterodins minnkaö viö samtímis notkun lyfja meö múskarinkólínvirk áhrif (muscarinic cholinergic receptor agonists). Tolterodin getur dregiö úr verkun hreyfingahvetjandi lyfja eins og metóklópramíös og cisapríös. Samtimis notkun meö flúoxetíni (öflugur CYP2D6-hemill) veldur ekki klínískt marktækri milliverkun þvi tolterodin og CYP2D6 umbrotsefni þess, 5-hýdroxýmetýltolterodin, eru jafnvirk. Rannsóknir á milliverkunum viö lyf hafa hvorki leittí Ijós milliverkanir við warfarin né samsett getnaöarvarnarlyf (etinýlestradíól/levonorgestrel). Klínisk rannsókn hefur gefiö vísbendingar um aö tolterodin hamli ekki umbrot sem veröurfyrirtilstilli CYP2D6,2C19,3A4eða1A2. Meðgangaog brjóstagjöf: Ekki mæltmeð notkun Detrusitol Retard á meögöngu. Foröast skal notkun tolterodins þann tíma sem barn er haft á brjósti. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Þar sem lyfiö getur valdiö sjónstillingartruflunum og haft áhrif á viöbragösflýti getur þaö dregiö úr hæfni til aksturs og notkunar véla. Aukaverkanir: Tolterodin getur valdiö vægum til í meðallagi miklum andmúskarinvirkum áhrifum t.d. munnþurrki, meltingartruflun og augnþurrki. Algengar (> 1 %): Augu: Augnþurrkur, óeölileg sjón (þar á meöal sjónstillingartruflanir). Almennar: Þreyta, höfuöverkur, brjóstverkur. Meltingarfæri: Meltingartruflanir, hægöatregða, kviðverkur, vindgangur, uppköst. Taugakerfi: Sundl, svefnhöfgi, náladofi (paraesthesia). Geörænar: Taugaóstyrkur. Húö og undirliggjandi vefur: Húðþurrkur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Bjúgur, bjúgur á útlimum. Mjög sjaldgæfar (< 0,1%): Ónæmiskerfi: Ofnæmi, ekki nánar tilgreint. Geörænar: Rugl (confusion), ofskynjanir. Nýru og þvagfæri: Þvagteppa (urinary retention). Hjarta: Hraösláttur (tachycardia). Önnur aukaverkun sem greint hefur veriö frá viö notkun tolterodin er bráöaofnæmi (kemur örsjaldan fyrir). Útlitslýsing: 1,4 mg foröahylkiö er blágrænt meö hvitri áletrun (tákn og 2). 2,8 mg forðahylkið er bláttmeö hvitri áletrun (tákn og 4). Markaösleyfishafi: PharmaciaAS, Danmörku. Umboösaöili á fslandi: PharmaNor hf„ Hörgatún 2, Garðabær. Pakkningar og verö 1. maí2003: Foröahylki, hart 1,4 mg: 30stk. kr. 6.972 ,- Foröahylki, hart2,8 mg: 30stk. kr. 7.216,- Foröahylki, hart 2,8 mg: 100 stk. kr. 21.053,- Stytting átexta Sériyfjaskrár janúar 2002. Hægt er að nálgast sérlyfjaskrártexta og samantekt á eiginleikum lyfs SPC ífullri lengd hjá lyfjaumboösdeild Pfizer, PharmaNor hf. Heimildir: 1. M. Chancelloretal.: “Tolterodine, an Effective and Well ToleratedTreatmentforUrge Incontinence and OtherOveractive BladderSymptoms", 2000 Feb: 19(2): 83-91. ÍÍDetrusitolRetard tölterodin Læknablaðið 2003/89 637
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.