Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 31
Faraldsfræði í dag
Faraldsfræði eða tölfræði
- hver er munurinn?
Ég var spurð að því um daginn hver væri munurinn
á faraldsfræði og tölfræði. Þegar þannig er spurt geng
ég út frá því að átt sé við líftölfræði (biostatistics) en
ekki tölfræði almennt eða einhverja aðra undirgrein
hennar. Líftölfræði og faraldsfræði eru auðvitað ná-
skyldar greinar en eru þó alls ekki ein og sama fræði-
greinin.
Báðar greinarnar eru taldar undirstaða lýðheilsu-
fræða og framhaldsmenntun í þeim, það er masters-
eða doktorsnám, fer yfirleitt fram innan veggja lýð-
heilsudeilda í háskólum eða innan vébanda lækna-
skóla, það á þó frekar við um faraldsfræði en töl-
fræði. Yfirleitt er grunnnám í faraldsfræði hluti af
læknanámi og faraldsfræði var lengi vel bundin innan
læknisfræðinnar sem sérgrein en nú stunda hana
einnig margir sem ekki eru læknar, ekki síst í Banda-
ríkjunum. Líftölfræðin hins vegar er að miklu leyti
sprottin úr ýmsum greinum líffræði, ekki síst land-
búnaðarfræði (agricultural science), og hefur ekki
eins sterk tengsl við læknanám og læknisfræði og
raun ber vitni með faraldsfræðina.
Uppbygging framhaldsnáms í faraldsfræði og líf-
tölfræði er að mörgu leyti svipað, í báðum greinum
er lögð áhersla á aðferðafræði rannsókna og tengsl
við lýðheilsu. Grunnurinn í báðum námsbrautum er
yfirleitt sá sami en síðan greinist námið og sérhæfist
er lengra líður. I faraldsfræði er lögð mikil áhersla á
smíð rannsóknarspurainga og kenninga, val rann-
sóknarsniða, aðferðir við samsetningu rannsóknar-
hópa, söfnun gagna, túlkun niðurstaðna og samþætt-
ingu við aðrar upplýsingar og þekkingu, meðal ann-
ars með tilliti til orsakakenninga (causal theories).
Líftölfræðin beinist hins vegar frekar að gagnaum-
sýslu (data management), tölfræðilegum grundvelli
úrtaka (sampling theory) og tölulegri úrvinnslu
gagna. Með þessu vil ég þó alls ekki gefa í skyn að
hlutverk tölfræðinga sé bundið við það að keyra
tölfræðiforrit. Sá misskilningur er alltof algengur að
ekki þurfi annað til en góðan tölfræðipakka og þá
séu mönnum allir vegir færir. Traust tölfræðiþekking
og skilningur á þeim reikningum og greiningum sem
fram fara með aðstoð tölfræðiforrita er auðvitað
nauðsynleg forsenda skynsamlegrar úrvinnslu og
túlkunar niðurstaðna.
Snertifletir tölfræði og faraldsfræði eru margir og
iðulega þurfa báðar greinar að koma að sama um-
fjöllunarefni, til dæmis vali og útfærslu á rannsóknar-
sniði. Sniðið er þá gjarnan valið út frá faraldsfræði-
legum þáttum, svo sem gerð rannsóknarspurningar,
eðli þýðisins og þeirra þátta sem á að rannsaka, og
fyrirliggjandi þekkingu um samband þessara þátta.
Þegar hugmyndir um heppilegt rannsóknarsnið liggja
fyrir kemur til kasta tölfræðinga að leggja línurnar
um aðferðafræði við samsetningu og stærð úrtaks til
rannsóknarinnar og bestu aðferðir til að vinna úr
gögnunum.
f sumum tilfellum er munurinn á greinunum ekki
endilega fólginn í verkaskiptingu eða því hvaða að-
ferðum er beitt heldur hvernig aðferðunum er beitt
eða hvaða spurningum er leitast við að svara. Þannig
eru til dæmis reiknilíkön, svo sem aðhvarfsgreining,
iðulega notuð bæði í tölfræði og faraldsfræði en
stundum á nokkuð ólíkan hátt. Faraldsfræðingar
nota slík líkön gjarnan til að lýsa flóknu sambandi
margra þátta (svo sem lýðfræðilegra breytna, áhættu-
þátta og erfðaþátta) við ákveðna útkomu en tölfræð-
ingar líta oft meira á slík líkön sem verkfæri til að spá
fyrir um ákveðnar útkomur og greina hve vel líkanið
fellur að gögnunum.
Eins og í öðrum greinum fer verkefnaval tölfræð-
inga og faraldsfræðinga auðvitað eftir áhugasviðum
hvers og eins, margir faraldsfræðingar stunda mjög
viðamiklar tölfræðirannsóknir og fjöldi tölfræðinga
sinnir verkefnum sem eru skyldari faraldsfræði en
tölfræði. Sterkari tengsl faraldsfræðinnar við lækna-
vísindin gerir það þó að verkum að yfirleitt nýtist að-
ferðafræði faraldsfræðinnar víðar innan heilbrigðis-
kerfisins en aðferðafræði tölfræðinnar. Þannig er far-
aldsfræðilegum aðferðum oft beitt (samt kannski
ekki nógu oft) við klíníska ákvarðanatöku (stundum
í formi rafrænna stuðningskerfa við ákvarðanatöku,
clinical decision support), gæðaþróun, árangursmæl-
ingar og við stefnumótun í heilbrigðiskerfinu.
María
Heimisdóttir
mariahei@landspitali.is
Læknablaðið 2003/89 629