Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR Cochrane samtökin - öflugur bandamaður heilbrigðisþ j ónustu Cochrane eru alþjóðleg samtök, stofnuð 1993, sem hafa það markmið að aðstoða fólk við að taka upp- lýstar ákvarðanir um heilbrigðisþjónustu. Það gera samtökin með því að vinna, viðhalda og koma á framfæri kerfisbundnum yfirlitum yfir áhrif og gagn- semi einstakra heilbrigðisaðgerða, svo sem meðferð- ar, greiningar, forvarna og skipulags heiibrigðisþjón- ustu. Yfirlitin eru unnin af ýmsum hópum (Cochrane Review Groups) víðsvegar um heiminn sem hver sinnir ákveðnu sviði. Hóparnir eru nú 49 en yfirlitin nálgast 2000. Þau eru birt í Cochrane bókasafninu sem er endurnýjað á fjögurra mánaða fresti og er að- gengilegt íslendingum á www.hvar.is vef landsað- gangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Yfir- litin eru ekki aðeins dýrmæt vegna þess að þau eru unnin á kerfisbundinn hátt eftir stífum aðferðafræði- legum kröfum heldur líka vegna stöðugrar endurnýj- unar í ljósi nýrrar vitneskju (rannsókna eða faglegrar gagnrýni). Samtökin bera nafn Archie Cochrane faraldsfræð- ings frá Wales sem einna fyrstur gagnrýndi heilbrigð- iskerfið fyrir að nýta illa upplýsingar sem búið væri að afla. Hann benti á að skortur væri á skipulega unn- um og gagnrýnum yfirlitum þar sem dregnar væru fram niðurstöður íhlutunarrannsókna og að það þyrfti að búa til gagnagrunn yfir niðurstöður bestu rann- sókna (1,2). Hvað gerir þessa vinnu svo nauðsynlega og hvers vegna þarf að koma henni á framfæri? Hvers vegna þarf kerfisbundin yfirlit? Þótt við teljum okkur alltaf nota bestu upplýsingar og sannanir í okkar vinnu er löngu tímabært að þiggja aðstoð við að safna, meta og nýta þær upplýsingar sem til eru. Ástæður þessa eru einkum tvær. Annars vegar er magn upplýsinga orðið óheyrilegt og hins vegar er vandasamt að meta gæði þeirra upplýsinga sem fyrir okkur eru lagðar. I dag er áætlað að um tvær milljónir greina um læknisfræði og tengt efni séu birtar í um 23 þúsund tímaritum árlega. Sá sem ætlar að fylgjast með tíu leiðandi tímaritum í læknisfræði þarf að skoða mán- aðarlega um 200 greinar og 70 ritstjórnargreinar og þannig endist venjulegur vinnudagur ekki til daglegr- ar viðhaldsmenntunar ef lestur hverrar greinar tekur hálftíma til klukkutíma. Magn og gæði fara ekki alltaf saman og í æ ríkari mæli er lögð áhersla á formlegt mat á gæðum rann- sókna. Þegar unnið er að kerfisbundnu yfirliti skiptir máli að beita aðferðafræði sem minnkar líkur á skekkju við val og mat á rannsóknum (3). Það er hér sem orðið „kerfisbundið" treður sér inn því það merkir að vinnulagið fylgi ákveðnu ferli sem felur meðal annars í sér: • Áherslu á rannsóknir af ákveðnum gæðum (slembaðar íhlutunarrannsóknir ef hægt er). • Vinna fylgir skriflegri áætlun svipað og um rann- sókn væri að ræða. • Itarlega heimildaleit sem nær til allra mögu- legra rannsókna. • Að notuð eru skýr skilmerki um hvaða rann- sóknir eru teknar inn og hverjar ekki. • Að tryggt sé að gögn unnin úr rannsóknunum séu réttmæt og nákvæm. • Notkun staðlaðra aðferða til að meta gæði rannsókna. • Niðurstöður nokkurra rannsókna sameinaðar með yfirgreiningu ef það á við. Rétt er að leggja áherslu á að mikið af góðum upplýsingum liggja óútgefnar og helstu gagnabankar ná aðeins til hluta þeirra rannsókna sem til eru. Öflug heimildavinna er ein af mörgum aðferðum sem not- aðar eru til að draga úr hættu á skekkju í niðurstöð- um. Vei er þekkt að yfirgreiningum (metaanalysis) hættir til að ofmeta samband þeirra þátta sem verið er að rannsaka en við þessu er bæði brugðist með vandaðri upplýsingaöflun og með því að beita að- ferðum til að meta næmi niðurstöðu fyrir breyttum forsendum (3-5). Þannig er áherslan fyrst og fremst á að vinna vönduð yfirlit sem standast aðferðafræðilegar kröfur því eins og alkunna er sýna rannsóknir að hefðbund- in yfirlit sem ekki hafa verið unnin á kerfisbundinn hátt geta verið óáreiðanleg (5,6). Með vaxandi notk- un á kerfisbundnum yfirlitum sem hefur verið haldið við reglulega má hugsanlega greina fyrr hagstæð áhrif eða heilsuspillandi aukaverkanir einhverrar íhlutunar til hagsbóta fyrir neytendur. Einnig er ekki ólíklegt að benda megi á göt í þekkingu okkar þannig að beina megi rannsóknarfé frekar í rannsóknir sem svara mikilvægum ósvöruðum spurningum heldur en í verkefni sem bæta sennilega ekki við gagnlega þekk- ingu (6). í Cochrane bókasafninu eru nokkrir gagnagrunn- ar en sá sem flestir nota er Cochrane Database of Systematic Reviews (CDSR). Auk þess er í bóka- safninu gagnagrunnur yfir ágrip og umsagnir um önnur hágæðayfirlit í Database of Abstracts and Re- views of Effectiveness (D ARE) og viðamikill gagna- grunnur íhlutunarrannsókna sem heitir Cochrane Sigurður Helgason Höfundur er heimilislæknir og ritstjóri klínískra leiðbeininga hjá Landlæknisembættinu. Læknablaðið 2004/90 287
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.