Læknablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / SVEFNRANNSÓKNIR
Heimamælingar þolast betur en
inniliggjandi mælingar á svefnháðum
öndunartruflunum
Karl Æ. Karlsson1
DOKTORSNEMI í
TAUGAVÍSINDUM
Bryndís
Halldórsdóttir2
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Þorbjörg Sóley
Ingadóttir2
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Þórarinn Gíslason2
SÉRFRÆÐINGUR 1
LUNGNASJÚKDÓMUM
Eyþór Björnsson2
SÉRFRÆÐINGUR í
LUNGNASJÚKDÓMUM
'Department of Psychology,
University of Iowa, 2Land-
spítala, Lyflækningadeild 1,
lungnaskor.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Eyþór Björnsson, Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
eythorbj@landspitali. is
Lykilorð: kœfisvefn,
heimamœlingar.
Ágrip
Tilgangur: Niðurstöður rannsókna á svefnháðum önd-
unartruflunum eru mjög háðar því að svefn sé full-
nægjandi rannsóknarnóttina. Spítalaumhverfi og óþæg-
indi af mælitækjum geta haft þar umtalsverð áhrif.
Þessari rannsókn var ætlað að bera saman svefngæði
einstaklinga sem gengust undir svefnmælingar í
heimahúsi og þeirra sem mældir voru á sjúkrahúsi.
Efniviður og aðferðir: Rannsakaðir voru 70 sjúkling-
ar með áður greindan kæfisvefn sem kailaðir voru inn
í eftirlitsmælingu vegna meðferðar með blásturstæki
(continous positive airway pressure - CPAP). Mæl-
ingarnar fóru fram á legudeild á Vífilsstöðum annars
vegar og á heimili sjúklings hins vegar. Samskonar
mælitæki voru notuð hjá báðum hópunum. Einstak-
lingarnir svöruðu spurningaeyðublaði um væntingar
til svefns rannsóknarnóttina og um raunveruleg gæði
svefnsins að henni lokinni.
Niðurstöður: Sjúklingar sem mældir voru í heimahúsi
sváfu yfirleitt betur, áttu auðveldara með að sofna og
voru minna kvíðnir en þeir sem mældir voru á legu-
deild.
Ályktun: Mælingar á svefnháðum öndunartruflunum
ætti fremur að gera á heimili sjúklings en inniliggj-
andi hvenær sern slíkt er framkvæmanlegt.
Inngangur
Aukinn kostnaður við heilbrigðisþjónustu veldur því
að sífellt er leitað leiða til að minnka útgjöld, þar með
talið við rannsóknir af ýmsu tagi. Til að fækka dýrum
legudögum hefur verið reynt að færa bæði meðferð
og rannsóknir út af sjúkrahúsunum. í takt við þá til-
hneigingu hafa sjúklingar grunaðir um svefnháðar
öndunartruflanir á undanförnum árum verið skimað-
ir í heimahúsi fremur en að þeir séu lagðir inn nætur-
langt á sjúkrahús lil slíkrar rannsóknar. Þó svo skim-
anir heima fyrir séu án efa ódýrari valkostur, hafa
inniliggjandi rannsóknir augljósa kosti (1). Heil-
brigðisstarfsmaður getur fylgst með mælingu yfir
nóttina og brugðist við ef eitthvað fer úrskeiðis. Á
hinn bóginn getur sjúkrahúsumhverfið sem er sjúk-
lingnum framandi valdið honum erfiðleikum, sér-
staklega við að sofna. í versta falli sefur sjúklingurinn
lítið eða ekki og ónýtist þá rannsóknin. Þegar valið er
hvort mælingar skulu gerðar inniliggjandi eða í heima-
húsi þarf því ekki einungis að taka tillit til fjárhags-
legra og tæknilegra þátta heldur einnig þæginda fyrir
sjúklinginn. Telja verður líklegt að svefngæði við
ENGLISH SUMMARY
Karlsson KÆ, Halldórsdóttir B, Ingadóttir ÞS, Gíslason
Þ, Björnsson E
Ambulatory measuraments are better tolerated
than in-hospital measuraments of sleep apnea
Læknablaöið 2004; 90: 311-3
Objective: This study compares self reported measures of
sleep quality between groups of patients undergoing
ambulatory or in-hospital annual control of Continuous
Positive Airway Pressure (CPAP) therapy.
Methods: 70 consecutive Obstructive Sleep Apnea
Syndrome (OSAS) patients scheduled for an annual
control of CPAP therapy were randomly assigned to either
ambulatory or in the hospital conditions. The same
recording equipment was used in both conditions.
Results: Overall the ambulatory group slept better, had
less difficulties falling asleep, and was less anxious about
the study than the in-hospital group.
Conclusion: The results provide one reason for regarding
ambulatory recordings more favourably than similar
registration done in-hospital.
Key words: sleep apnea, ambulatory measurements.
Correspondance: Eyþór Björnsson,
eythorbj@landspitali. is
heimamælingu séu að jafnaði betri en eftir svipaða
mælingu innan sjúkrahúsveggja. Þetta hefur þó ekki
fyrr verið staðfest í samanburðarrannsókn og er það
markmið eftirfarandi greinar.
Aöferöir
Þátttakendur
Rannsóknin fór fram á Vífilsstaðaspítala í maí til júní
1999. Sjötíu sjúklingum með greindan kæfisvefn var
boðin þátttaka. Þetta var gert, fremur en að rannsaka
áður ógreinda sjúklinga, til að minnka truflandi áhrif
af sjúkdómnum sjálfum. Þessir einstaklingar sem allir
voru á meðferð með CPAP blásturstæki (continuous
positive airway pressure) voru fengnir jafnóðum af
biðlista fyrir árlega eftirlitsmælingu. Sjúklingum var
af handahófi skipt í hópa fyrir inniliggjandi mælingu
eða heimamælingu. 35 sjúklingur voru í hvorum hóp:
6 konur og 29 karlar í inniliggjandi hópnum og 4 kon-
ur og 31 karl í heimamælingarhópnum (tafla I).
Upplýsingum um sjúklinga var safnað afturvirkt úr
Læknablaðið 2004/90 311