Læknablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FJARLÆKNINGAR
Ahugakönnun
heimilislækna
á fjarlækningum meðal
Margrét
Valdimarsdóttir
LÆKNIR
Jörundur
Kristinsson
HKIMILISLÆKNIR
Þorgeir Pálsson
SVIÐSSTJÓRI LANDSPÍTALA
Ásgeir Haraldsson
BARNALÆKNIR
Hannes Petersen
HÁLS-, NEF- OG
EYRNALÆKNIR
Margrét
Oddsdóttir
SKURÐLÆKNIR
Rúnar Reynisson
HEIMILISLÆKNIR
Sigurður
Kristjánsson
BARNA- OG OFNÆMISLÆKNIR
Þann 1. október síðastliðinn var send út könnun til
allra heimilislækna á landinu varðandi afstöðu þeirra
til og áhuga á fjarlækningum. Þessi könnun er hluti af
fyrsta áfanga rannsóknarverkefnis urn fjarlækningar.
Verkefnið er samvinnuverkefni heilsugæslustöðva og
Landspítala þar sem sjúkrahúslæknar innan nokk-
urra sérgreina á spítalans veita sérfræðiráðgjöf með
aðstoð fjarfundabúnaðar. Verkefnið er styrkt af Rann-
ís og markmiðið með því er að setja fram líkan að
skipulagi og starfrækslu fjarlækningaþjónustu sem
henta myndi hér á landi. Með þetta í huga var áhugi
heimilislækna á fjarlækningum kannaður.
Fjarlækningar má skilgreina sem aðferð til að
senda sjúklingagögn með rafrænum hætti frá einum
stað til annars. Markmiðið er skjótvirk sending gagna
til að fá sem fyrst úrlausn þess vanda er fyrir liggur.
Gögnin geta annars vegar verið þess eðlis að sjúk-
lingur sé óbeinn þátttakandi við sendingu gagna, svo
sem þegar send er röntgenmynd eða hjartarit. Hins
vegar getur sjúklingur sjálfur verið viðfangsefni
læknisskoðunar með aðstoð fjarfundabúnaðar og í
vissum tilvikum sérhæfðs jaðarbúnaðar. Þá er um að
ræða bein samskipti læknis/lækna og sjúklings.
Fjarlækningar bjóða upp á ýmsa möguleika fyrir
heilsugæslu og sjúkrahús. Möguleiki er á úrlestri
mynda og annarra gagna, hægt að taka þátt í klínísk-
um funduni, fá ráðgjöf sérfræðinga í öðrum greinum
og svo framvegis. Sérfræðiráðgjöf í bráðatilfellum er
einn möguleiki. I sumum nágrannalöndum okkar hef-
ur slík þjónusta er að ofan greinir verið lil staðar und-
anfarin ár, til dæmis í Noregi þar sem fjarlækningar
hafa fengið fastan sess. Fjarlækningar á Islandi eru
vart stundaðar í dag með skipulegum hætti en verk-
efni á einstökum sviðum sérgreina hafa verið unnin á
undanförnum árum.
Niðurstöður
Spurningalistinn var eins og áður sagði sendur í októ-
ber 2003 til 219 lækna sem slörfuðu á heilsugæslustöð
samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Félags íslenskra
heimilislækna. Itrekunarbréf var sent nokkru síðar til
að auka heimtur. Um áhugakönnun var að ræða, sjá
spurningalista. Alls svöruðu 98 læknar könnuninni,
eða 45% aðspurðra. Af þeim lýstu 79 læknar, eða rúm-
lega 1/3 allra starfandi heimilislækna, yfir áhuga á að
nýta sér fjarlækningar í sínu starfi, eða um 80% þeirra
sem svöruðu. Ef miðað er við að hver heimilislæknir
hafi að meðaltali 1500 manna upptökusvæði hafa
heimilislæknar 118 þúsund íslendinga áhuga á að
nota fjarlækningar í sínu starfi. Varðandi upplýsingar
um þátttakendur vísast í töflu I.
Um 86% læknanna sem þátt tóku í könnuninni
voru með þéttbýli sem upptökusvæði, þar af sinnti
37% þeirra einnig dreifbýli, sbr. töflu I. Rúmur helm-
ingur læknanna starfaði utan höfuðborgarsvæðisins.
Ahuga læknanna við að nýta sér hinar ýmsu tegund-
ir eða notkunarmöguleika Ijarlækninga sést í töflu II.
Þar tróna efst á blaði fræðslufundir sem gefa möguleika
á aukinni símenntun. Einnig var áhugi mikill á húð-
lækningum, hjartalækningum og röntgenlækningum.
Heimilislæknar af höfuðborgarsvæðinu höfðu í
um 90% tilvika áhuga á fleiri greinum fjarlækninga
en fræðslufundum eingöngu.
Spurt var um þörf fyrir bráða sérfræðiráðgjöf
(konsúlt) með fjarlækningum á heilsugæslustöðinni
Tafla 1. Upplýsingar um þátttakendur.
Fjöldi Fjöldi
Kyn Upptökusvæði
kvk 12 Einungis þéttbýli 48
kk 56 Einungis dreifbýli 10
Ekki svarað 30 Hvorutveggja 36
Ekki svaraö 4
Aldur
yfir 65 ára 4 Staösetning
55-64 ára 19 Höfuðborgarsvæði 44
45-54 ára 41 Utan höfuöborgarsvæðis 53
35-44 ára 27 Ekki svarað 1
25-34 ára 2
Ekki svarað 5 Sjúkrahús á staðnum
já 61
nei 31
ekki svarað 6
Tafla II. Áhugi heimilislækna fyrir hinum ýmsu sviöum
IJarlækninga.
Tegund fjarlækninga Áhugi lækna, fjöldi
Fræðslufundir 64
Húðlækningar 63
Hjartalækningar 56
Röntgenlækningar 54
Bæklunarlækningar 38
Augniækningar 24
Öldrunarlækningar 23
Geðlækningar 22
Kvensjúkdómalækningar 19
Háls-, nef- og eyrnalækningar 18
Barnalækningar 17
Endurhæfingarlækningar 16
Lyflækningar 11
Skurðlækningar 11
332 Læknablaðið 2004/90