Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2004, Page 41

Læknablaðið - 15.04.2004, Page 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÁMSKEIÐ Viðar Magnússon leiðbeinir lœknum á námskeiði um bráðalœkningar ulan sjúkrahúsa sem haldið var í Hlíða- smáranum ífyrravor. „BLUS-námskeiðið þjálfar lækna mjög vel til þess að bregðast við ef þeir eru kallaðir til að veita aðstoð í neyðartilvikum, en það er ef til vill nokkuð ýtarlegt fyrir þá lækna sem ekki þurfa að sinna neyðarútköllum í starfi sínu. Til að koma til móts við þann hóp lækna erum við að undirbúa námskeið í fyrstu hjálp fyrir lækna og kenndum það reyndar í fyrsta skipti á Læknadögum nú í janúar við góðar viðtökur þátttakenda. Það er ætlað læknum sem fásl við skrifstofustörf, rannsóknir og kennslu eða ein- göngu sérhæfðari vandamál innan læknisfræðinnar, en eru ekki að fást við bráðveika sjúklinga dags dag- lega. Viðfangsefnin þar eru ekki ósvipuð og á nám- skeiðum í fyrstu hjálp fyrir almenning en þau eru sér- sniðin fyrir lækna og þess vegna er farið mun dýpra í námsefnið. Sú þjálfun miðast öll við hvað læknir get- ur gert á vettvangi ef hann óvænt er kallaður til í neyðartilviki án þess að hafa nokkurn búnað með- ferðis. Vonandi getum við farið af stað með þessi námskeið nú í vor, en þau munu standa yfir í um fjór- ar klukkustundir og henta því vel sem kvöldnám- skeið.“ Mikiö spurt um námskeiðin - Hvernig hafa viðtökur verið við BLUS-námskeið- unum? „Það hefur verið fullt á tveim fyrstu námskeiðun- um en við getum tekið við 24 á hvert námskeið. Næsta námskeiðið verður haldið í lok apríl og hægt er að nálgast upplýsingar um það á vefslóðinni; www.endurmeimhtn.is Það er talsvert spurt um þau þannig að læknar hafa greinilega áhuga á að þjálfa sig betur í bráðaviðbrögðum. Vonandi öðlast skyndi- hjálparnámskeiðin fyrir lækna líka vinsældir. Það er að okkar mati afar mikilvægt að læknum sé gert fært að halda við þjálfun sinni í þeim efnum því slík nám- skeið fyrir almenning hafa verið að breytast mikið á seinni árum, “ sagði Hjalti Már Björnsson. Þörf og góð námskeið Læknablaðið ræddi við tvo lækna sem sótt hafa námskeið í bráðalækningum og skyndihjálp og innti þá el'tir því hvernig þeim hefði líkað við þau. Agúst Oddsson heilsugæslulæknir á Hvammstanga tilheyrir markhópi BLUS-námskeiðanna og hann er á því að slík námskeið eigi að vera fastur liður á dagskrá allra kollega sinna á svona tveggja til þriggja ára fresti. - Þetta var mjög gott námskeið, vel upp- byggt og þarft fyrir landsbyggðarlækna. Við sem störfum meðfram hringveginum getum alltaf átt von á því að vera kallaðir á vettvang þar sem alvarleg slys hafa orðið. Sem belur fer gerist það sjaldan en þegar það gerist er eins gott að vera viðbúinn og það eru menn einfaldlega ekki nema þeir hafi sótl svona námskeið, sagði Agúst. Agúst er þeirrar skoðunar að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni eigi að gera þá kröfu til lækna sinna að þeir sæki svona námskeið reglulega. - Þær eiga að bera kostnaðinn af þeim, enda er þetta liður í því að gera okkur kleift að veita þá þjónustu sem almenningur krefst af okkur. Vinnuumhverfi lækna hefur verið að breytast. Nú er hægt að ná í okkur hvar og hvenær sem er, kröfur fólks hafa aukist og þeir sem lenda í alvarlegum slysum eiga heimtingu á því að fá lækna sem ráða við aðstæður á vetlvangi. Svona námskeið bæta lífs- líkur þeirra sem slasast á landsbyggðinni, sagði Ágúst og hafði það eitt út á námskeiðin að setja að þau væru fullstutt. Þau mættu alveg vera full vinnu- vika. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í Reykjavík sótti skyndihjálparnámskeiðið sem haldið var á Lækna- dögum og lét vel af því. - Það er ómetanlegt fyrir mig að geta sótt svona námskeið vegna þess að ég vil geta brugðist rétt við ef ég kem á slysstað. Það hefur orðið fagleg þróun á þessu sviði læknisfræð- innar eins og öðrum og margt breyst og þetta nám- skeið var kærkomið tækifæri til að rifja upp það sem manni var kennl á sínum tíma og kynnast þeim breyt- ingum sem orðið hafa. Fræðslan á námskeiðinu var skýr og markviss og markmiðið var að kenna rétt viðbrögð við slysum á fólki. Einnig var farið í grunnatriði endurlífgunar og það er gott að rifja upp þá kunnáttu. í raun ættu allir læknar að fá reglulega fræðslu og upprifjun um slíkt. Það er aldrei að vita hvenær maður lendir í því að þurfa að bregðast við slíkum aðstæðum, sagði Ólafur Þór. Læknablaðid 2004/90 321

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.