Læknablaðið - 15.04.2004, Side 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝ H E I L S U G Æ S L U S T Ö Ð
Stækkum í takt víð íbúafjöldann
- Rætt við læknana Böðvar Örn Sigurjónsson og Hauk Valdimarsson sem buðu lægst í
rekstur heilsugæslustöðvar í Sala- og Lindahverfi í Kópavogi
Böðvar Örn Sigurjónsson
til vinstri og Haukur Valdi-
marsson yfirlœknir í bið-
stofu Salastöðvarinnar.
í vaxtarbroddi höfuðborgarsvæðisins, Salahverfi í
Kópavogi, var opnuð ný heilsugæslustöð í lok janúar.
Þessi stöð er frábrugðin öðrum að því leyti að rekstur
hennar var boðinn út og er í einkaeigu. Mörgum
heimilislækninum þykir þessi tilraun spennandi í Ijósi
þeirrar stefnu sem rekin hefur verið af hálfu heil-
brigðisyfirvalda í málefnum heilsugæslunnar í land-
inu undanfarin ár.
Læknablaðið sótti á dögunum heim læknana
Böðvar Örn Sigurjónsson og Hauk Valdiniarsson en
þeir eiga helmingshlut í Salus ehf. sem varð hlut-
skarpast í útboði ráðuneytisins. Hinn helmingurinn
er í eigu ráðgjafarfyrirtækisins Nýsis hf. en helstu for-
svarsmenn þess eru Sigfús Jónsson og Stefán Þórar-
insson. Eigendurnir hafa skipt með sér verkum á
þann hátt að Böðvar og Haukur bera fyrst og fremst
hitann og þungann af heilbrigðisþættinum en þeir
Sigfús og Stefán sinna rekstri og fjármálum stöðvar-
innar.
Fjögur stööugildi lækna
Salastöðin er á annarri hæð í verslunar- og skrif-
stofuhúsi á horni Salavegar og Fífuhvammsvegar,
talsverðan spöl austan Reykjanesbrautar og Smára-
Þröstur lindar. Haukur sýndi mér húsakynninn meðan Böðv-
Haraldsson ar sinnti sjúklingum og kom fram að hæðin er skipt
niður í einingar. í þremur hornum eru stofur fyrir tvo
lækna og hefur hver þeirra skrifstofu og skoðunar-
herbergi. Auk þess eru stofur fyrir hjúkrunarfræð-
inga og annað starfsfólk. í tengslum við móttöku er
aðstaða fyrir ritara og geymslur fyrir sjúkraskrár og
önnur gögn. I miðrými er aðgerðastofa og aðstaða til
að geyma lífsýni, sótthreinsa og sinna öðrum verkum.
Auk þeirra Hauks og Böðvars starfa í stöðinni
Hjördís Birgisdóttir hjúkrunarforstjóri, Ólöf Leifs-
dóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, móttökurit-
arar í hálfu öðru stöðugildi og læknaritari í hálfu
stöðugildi. Starfsfólkinu mun fjölga innan tíðar því
þegar er búið að auglýsa eftir tveimur læknum til við-
bótar og er áætlað að annar hefji störf í júní en hinn á
haustmánuðum.
Samningurinn kveður á um að Salastöðin sinni al-
mennri heilsugæslu, mæðra- og ungbarnaeftirliti og
skólaheilsugæslu í skólum hverfisins. Ekki er gert ráð
fyrir starfsemi heimahjúkrunar frá stöðinni, enda er
sá þáttur heilbrigðisþjónustunnar nú starfræktur mið-
lægt frá Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík og Heilsu-
gæslunni í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að hægt verði
að gera algengustu blóðrannsóknir og þess háttar í
stöðinni en til að byija með var tekinn sá kostur að
semja við Rannsóknastofuna í Mjódd fram til næstu
áramóta um að annast rannsóknir og kemur meina-
tæknir þaðan tvisvar í viku eins og er. Niðurstöður
rannsókna eru svo sendar til baka með rafrænum
hætti.
Góðar viðtökur
Salus ehf. gerði samning við heilbrigðisráðuneytið til
átta ára um rekstur stöðvarinnar með möguleika á
framlengingu án útboðs í fjögur ár til viðbótar. Eftir
það verður reksturinn boðinn út aftur. Greiðslur hins
opinbera fyrir þjónustuna eru fjórskiptar: greidd er
árlega föst upphæð á hvern sjúkling sem skráður er
hjá stöðinni, ákveðin upphæð fyrir hverja komu eða
vitjun, ákveðin upphæð fyrir skólaheilsugæsluna og
loks eru greiðslur upp í rekstrarkostnað húsnæðis
stöðvarinnar. Ríkið leigir húsnæðið sem stöðin er í til
25 ára en húsgögn og tækjabúnaður er í eigu Salus
ehf.
Þeir félagar reikna með því að stöðin verði full-
mönnuð áður en langt um líður því hverfið sem þeir
starfa í er ört vaxandi. Nú býr á sjötta þúsund manns
í Sala- og Lindahverfi en þegar nýja hverfið við
Vatnsenda verður risið mun sú tala sennilega tvöfald-
322 Læknablaðið 2004/90