Læknablaðið - 15.04.2004, Page 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 37
Faraldsfræði í dag
Ferilrannsóknir
Skilgreining og mæling áreitis og úlkomu eru með-
al grundvallaratriða í hönnun ferilrannsókna. Fyrsta
skrefið í hönnun ferilrannsóknar er að skilgreina áreit-
ið eða áhættuþáttinn og leggja þar með grunn að vali
einstaklinga í hópana sem bera á saman, áreitishóp
(exposed group) og samanburðarhóp (nonexposed,
comparison group). Mikilvægt er að skilgreina áreitið
sem nákvæmast og tilgreina þau skilmerki sem ein-
staklingar þurfa að uppfylla til að geta talist hafa orð-
ið fyrir því. Petta getur verið ansi flókið af ýmsum
ástæðum. í sumum tilfellum er áreitið til staðar hjá
öllum eða flestum einstaklingum í þýðinu og þarf þá
að skilgreina hve mikið það þarf að vera til að geta
talist áreiti, það er við hvaða gildi telst einstaklingur
tilheyra áreitishópnum en ekki samanburðarhópn-
um. Þetta á til dæmis við í rannsóknum sem fjalla um
áhættuþætti (áreiti), svo sem líkamsþyngd eða loft-
mengun. Einnig getur verið erfitt að mæla eða fá upp-
lýsingar um hið raunverulega áreiti og er þá stundum
notast við einhvers konar mark eða vísi (e. marker) í
staðinn. Til dæmis eru iðulega notaðar upplýsingar
frá læknum eða sjúklingum varðandi lyfjanotkun en
ekki mæld þéttni lyfsins í blóði sem er auðvitað mark-
tækari en jafnframt dýrari og flóknari aðferð.
Skilgreining þeirra skilmerkja sem útiloka einstak-
ling frá áreitishópnum (og rannsókninni almennt) er
ekki síður mikilvægt. Ef gera á rannsókn á áhrifum
tiltekins áreitis á tilurð sjúkdóms er mikilvægt að úti-
loka þá einstaklinga sem gætu þegar haft sjúkdóminn
á byrjunarstigi. Pví er iðulega reynt að leggja til grund-
vallar upplýsingar um sjúkdómsleysi í byrjun rann-
sóknar.
Um skilgreiningu útkomu gilda sömu lögmál, nauð-
synlegt er að skilgreina nákvæmlega hvaða skilyrði
þarf að uppfylla lil að teljast hafa útkomuna. Þetta
þarf að gera áður en nokkur upplýsingasöfnun hefst.
Eins og með áreitið er aðalatriðið auðvitað að setja
þetta skýrt niður fyrir sér í upphafi. Ef um er að ræða
rannsókn þar sem ákveðin tegund krabbameins er
útkoman þarf að skilgreina hvað telst sönnun þess að
það sé til staðar. Er nóg að taka greiningar úr sjúkra-
skrá eða af dánarvottorði, eða á útkoman því aðeins
að teljast með ef fyrir liggur greining meinafræðings
(PAD svar)?
Auk vísindalegs mikilvægis þess að skilgreina
áreiti og útkomu á sem skilmerkilegastan hátt strax í
upphafi er rétt að nefna að oft er söfnun gagna um
þessi atriði mjög tímafrek og kostnaðarsöm og því
borgar sig að vinna þessa heimavinnu vel.
Pá er komið að því að safna gögnum um áreitið og
útkomuna samkvæmt skilgreiningu. Til þess eru ýmsar
leiðir og stundum þarf að nota fleiri en eina til að
tryggja heildstæð og nákvæm gögn um sem flesta þátt-
takendur. í raun tekur hönnun slíkra rannsókna, með-
al annars skilgreining áreitis og útkomu, oft mið af
því hvaða gögn liggja fyrir og eru auðfengin.
Upplýsingar um áreiti er gjarnan safnað úr ýmsum
skrám og skýrslum sem haldnar hafa verið óháð
rannsókninni. Þar má nefna starfsmannaskrár fyrir-
tækja, sjúkraskrár, manntalsgögn og svo framvegis.
Gallinn við slíkar skrár er að oft innihalda þær ekki
nógu nákvæmar upplýsingar um áreitið, til dæmis
gefur starfsmannatal aðeins ákveðnar vísbendingar
(svo sem starfsheiti, vinnutíma) um áreiti, til dæmis
meðferð rokgjarnra efna á vinnustað, en segir ekki
nákvæmlega til um umfang áreitis fyrir hvern starfs-
mann. Auk þess skortir slíkar skrár oft upplýsingar
um mikilvæga raskandi þælti, svo sem reykingar. Því
er iðulega leitað í aðrar uppsprettur gagna. Stundum
eru notaðir spurningalistar (eða viðtöl) til að afla
gagna meðal þátttakenda í rannsókninni, lækna eða
jafnvel ættingja þátttakenda. í sumum tilfellum er áreit-
ið skráð samkvæmt læknisskoðun eða einhvers konar
mælingum, lil dæmis á blóðgildum eða loftmengun á
vinnustað. Petta gildir að sjálfsögðu aðeins um feril-
rannsóknir þar sem útkoman hefur ekki átt sér stað í
upphafi rannsóknar (það sem sumir nefna prospec-
tive cohort).
Hvernig gögnum um útkomuna er safnað fer fyrst
og fremst eftir því hvort um er að ræða sögulega feril-
rannsókn (historical cohort) þar sem bæði áreitið og
útkoman hafa átt sér stað þegar rannsóknin er gerð
eða hvort um raunverulega eftirfylgni er að ræða þar
sem fylgst er með einstaklingunum yfir ákveðinn
tíma og skráð jafnóðum og útkoman kemur fram.
Þetta er það sem stundum er kallað framsæ ferilrann-
sókn (prospective) cohort en mætti kannski kalla
rauntímaferilrannsókn þar sem eftirfylgnin fer fram í
rauntíma en ekki sögulegum. í sögulegum ferilrann-
sóknum reiða menn sig yfirleitt algerlega á fyrirliggj-
andi gögn. Ef um er að ræða rauntímaferilrannsókn
er hins vegar um virka gagnasöfnun að ræða þar sem
fylgst er með skráningu útkomunnar til dæmis í sjúkra-
skrár og dánarvottorð. Jafnframt er oft safnað gögn-
um með spurningalistum til þátttakenda, læknisskoð-
unum, eða ýmsum mælingum sem gefa útkomuna til
kynna.
María
Heimisdóttir
mariahei@landspitali.is
María er faraldsfræðingur
á Landspítala.
Læknablaðið 2004/90 345