Læknablaðið - 15.04.2004, Síða 73
ÞING
Aðalfundur
Svæfinga- og gjör-
gæslulæknafélags
íslands 2004
verður haldinn föstudaginn 14. maí nk. kl. 17:00 á
Nordica hóteli.
Dagskrá
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Stjórnin
Aðalfundur
Skurðlæknafélags
íslands 2004
verður haldinn föstudaginn 14. maí nk. kl. 17:00 á
Nordica hóteli.
Dagskrá
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Stjórnin
XVI. þing Félags íslenskra lyflækna
Skilafrestur ágripa rennur út 15. apríl! Skráið þátttöku sem fyrst!
Þing Félags íslenskra lyflækna verður haldið á Sauðárkróki dagana 4.-6. júní næstkomandi.
Á þinginu gefst þátttakendum að venju kostur á að kynna rannsóknir sínar og styðjast þá annaðhvort við skyggn-
ur eða veggspjald. Lögð verður meiri áhersla en áður á notkun veggspjalda við kynningu.
Leiðbeiningar fyrir ágrip erinda og veggspjalda
* Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar án nafna höfunda og stofnana.
* Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
* Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þessari röð: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað, vinnustaðir meó til-
vísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, helstu niðurstöður og ályktanir. Semja þarf sérstaklega um
birtingu á töflum og myndum.
* Höfundar taki fram hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald.
* Ágrip skal senda í tölvupósti sem viðhengi á netfang: birna@birna.is
* Notaöur verður tölvuskjávarpi við flutning erinda.
* Stærð veggspjalda er 190 cm breidd x 120 cm hæð. Ef um aðra stærð er að ræða þarf að óska sérstaklega
eftir því. Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Stjórn Félags íslenskra lyflækna mun meta hvort ágrip verði kynnt með erindi eða veggspjaldi.
Skráning: Á veffangi: www.birna.is
Þátttökugjald: Fullt gjald er 12.000 kr., 9.000 kr. fyrir unglækna, frítt fyrir læknanema. Gjaldið greiðist við skrán-
ingu á þingstað. Innifalin eru þinggögn, kaffi á þingstað, boð í hádegisverð á laugardag og kvöldverðir á föstu-
dags- og laugardagskvöldi.
Gisting: Gist verður á Fosshóteli Áningu, Hótel Tindastóli, Gistiheimilinu Koti og Gistiheimilinu 550. Pantanir:
www.birna.is Ekki er unnt að staðfesta pöntun á gistingu nema kortanúmer sé uppgefið.
Kort: Tekið við greiðslu með VISA/Eurocard/Masteröard.
Skipuleggjandi: Menningarfylgd Birnu ehf. - Birna Þórðardóttir -
Veffang: www.birna.is - Netfang: birna@birna.is - S.: 862 8031
Stjórn Félags íslenskra lyflækna:
Davíð O. Arnar, ritari
Hlíf Steingrímsdóttir
Rafn Benediktsson
Runólfur Pálsson, formaður
Sigurður Guðmundsson, landlæknir
Sigurður Ólafsson, gjaldkeri
Læknablaðið 2004/90 353