Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 3
É g hef greint framlög til bókasafna og árangur þeirra og mín niðurstaða er
í samræmi við erlendar rannsóknir
– sérhver króna sem varið er til
bókasafna skilar sér fjórfalt til
baka,“ segir dr. Ágúst Einarsson,
prófessor við Háskólann á Bifröst
og fyrrverandi rektor skólans.
Í nýútkominni bók hans, Hag-
ræn áhrif ritlistar, fjallar hann
um þau efnahagslegu umsvif sem
eru tengd ritlist, eftirspurn og
framboð innan ritlistar, útgáfu og
bókasöfn. Þegar hefur verið fjallað
um í fjölmiðlum að Ágúst áætlar
að hagræn áhrif ritlistar til lands-
framleiðslu á Íslandi nemi 1,5% eða
27 milljörðum króna á þessu ári til
verðmætasköpunar. Um tímamóta-
verk er að ræða en aldrei hefur
verið lagst í jafn umfangsmiklar
rannsóknir á hagrænum áhrifum
ritlistar á Íslandi.
Á Íslandi eru yfir 300 bókasöfn
af ýmsum stærðum og gerðum
og á þeim starfa yfir 700 manns.
„Starfsemi bókasafna er lykilatriði
í ýmsum sveitarfélögum og eru
stór þáttur í menntun á hverjum
stað. Bókasöfn snúast ekki aðeins
um útlán bóka heldur eru þau mið-
stöð þekkingar og jafnvel félags-
miðstöð. Niðurstaða mín er sú að
það sé ábatasamt að styðja betur
við bókasöfn. Þau eru að mestu
leyti á vegum sveitarfélaganna
og þar má sannarlega gera betur.
Fjöldi rannsókna hefur einnig sýnt
að skólabókasöfn eru í miklum
vandræðum. Eftir hrun hafa fjár-
framlög til skólabókasafna verið
skorin niður sem er sérlega alvar-
legt í ljósi þess að lesskilningur
barna á Íslandi er slakur og hefur
farið hnignandi í alþjóðlegum
samanburði,“ segir hann.
Ágúst bendir á að
bókasöfn séu mun
meira en almennings-
bókasöfn. Hér eru
háskólabókasöfn, fag-
bókasöfn hjá fyrir-
tækjum og félögum,
auk Stofnunar Árna
Magnússonar. „Bóka-
söfn eru mikilvæg fyr-
ir viðhald menningar
okkar, aukinn lestur
leiðir til aukinnar
menntunar og mennt-
un eykur framleiðni.
Bókasöfn eru miðstöð
þekkingar og verða
það áfram. Það sem
ég hef gert í mínum rannsóknum
er það sama og gert er erlendis,
ég hef metið áhrif
bóksafna í menntun
á ákveðnu svæði.
Niðurstaðan er sú
að þar sem eru lítil
eða engin bókasöfn
er minni uppgangur
og menntun,“ segir
hann.
Aukin tæknivæð-
ing kemur ekki í veg
fyrir nauðsyn þess
að góð bókasöfn séu
starfrækt, að sögn
Ágústs. „Því hefur
oft verið spáð að
rafbókin taki yfir en
þróunin hefur alls
ekki verið þannig. Það er frekar
þannig að það sem við getum
nálgast á netinu er hrein viðbót.
Bókasöfn eru ekki að verða úrelt.
Formið á því sem má nálgast á
bókasöfnum er heldur ekki alltaf
prentað. Miðlunarmöguleikar hafa
aukist.“
Ágúst segir að bókasöfn hafi
verið vanmetin og í bók sinni
leggur hann fram nokkrar tillögur
um hvernig stjórnvöld geti eflt rit-
list á Íslandi. „Ég legg beinlínis til
að fjárframlög til bókasafna verði
aukin. Fjárframlög til ritlistar skila
sér fljótt og margfalt til baka,“
segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Spaugstofan tekin af dagskrá
Grínþátturinn Spaugstofan hefur verið
tekinn af dagskrá Stöðvar 2. Karl Ágúst
Úlfsson segir að Spaugstofumenn hafi
hug á að setja upp sýningu í leikhúsi.
Í útrás til Kaupmannahafnar
66°Norður hefur opnað verslun í Kaup-
mannahöfn. Verslunin er 130 fermetrar
og er við Sværtegade 12.
7.200
manns hafa skráð sig rafrænt sem líf-
færagjafa á vef Landlæknis.
Af skjánum í stjórastólinn
Kristján Kristjánsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri N4. Kristján
hefur starfað hjá N4 frá árinu 2011 og
sinnt ýmsum störfum, nú síðast var
hann framkvæmdastjóri framleiðslu-
deildar auk þess að láta til sín taka á
skjánum.
4.500
manns mótmæltu aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar á Austurvelli á mánudag.
Aðalræðumaður var tónlistarmaðurinn
Svavar Knútur Kristinsson.
Vikan sem Var
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslands-
banka, hlaut verðlaunin Markaðs-
maður ársins þegar markaðsverðlaun
ÍMARK, samtaka markaðsfólks á Ís-
landi, voru afhent í gær. Nova var valið
Markaðsfyrirtæki ársins.
Markaðsmaður ársins
Demantshringur 0.70ct
Verð 680.000.-
www.siggaogtimo.is
Demantshringur 2.25ct
Verð 2.100.000.-
Veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
N-átt og kólNaNdi vEður.
SNjóar á fjallvEgum N- og a-laNdS.
HöfuðborgarSvæðið: StREKKiNGuR
oG LéttiR tiL.
froSt um laNd allt. HríðarvEður
a-laNdS, EN bjart Sv-til.
HöfuðborgarSvæðið: LéttSKýjAð
oG fREMuR KALt Í VEðRi.
Hægari N-átt og Hiti uNdir froStmarki.
Él N- og a-laNdS.
HöfuðborgarSvæðið: ÁfRAM BjARtViðRi
MEð VæGu fRoSti.
veðrabrigði og með
kólnandi vetrarveðráttu
Í dag, föstudag, er einn af þessum umbreyt-
ingardögum í veðrinu, þegar veðurlagi sem
ríkt hefur í nokkra daga lýkur og annað
tekur við. NA og N-átt í dag og á morgun
laugardag. Allhvass vindur og gæti hæglega
orðið stormur um austanvert
landið. Þar mun snjóa nokkuð
fram á sunnudag, en úrkoma
meira sem él á Norðurlandi
og Vestfjörðum. Sunnan- og
vestanlands birtir upp og þar
frystir sem og annars staðar
á landinu. Gæti snjóað syðst
seint á sunnudag.
3
0 2
2
4
-2
-3 -5 -1
-3
-4
-4 -6 -2
-3
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Dr. Ágúst Einarsson var að
senda frá sér bók þar sem
hann kortleggur hagræn
áhrif ritlistar á Íslandi.
menntun FjárFramlög til ritlistar skila sÉr margFalt til baka
Hver króna til bókasafna
skilar sér fjórfalt til baka
Dr. Ágúst Einarsson segir að hver króna sem varið er til bókasafna skili sér fjórfalt til baka.
Bókasöfn eru meðal þess sem hann skoðar í nýrri bók sinni, Hagræn áhrif ritlistar. Ágúst bendir á
að skólabókasöfn grotna niður á sama tíma og lesskilningi barna hrakar. Hann leggur til að fjár-
framlög til bókasafna verði aukin.
Ágúst leggur til að fjárframlög til bókasafna verði aukin enda skili fjárframlög til
þeirra sér margfalt til baka.
4 fréttir Helgin 7.-9. nóvember 2014