Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 45

Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 45
46 fjölskyldan Helgin 7.-9 nóvember 2014 Óhófleg eftirlátssemi K onan mín sýnir því lítinn skilning þegar strákurinn er hjá okkur og segir mig láta allt eftir honum. Kannski er eitthvað til í því en hann er nú bara stuttan tíma í einu hjá okkur og ég vil að honum líði vel. Það hefur ekki talist góð uppeldisaðferð hjá foreldrum að annað bannar og hitt leyfir. Aðferðin verður ekkert betri þó stjúpforeldri og foreldri sjái um uppeldið. Jafnvel skað- legri, sé ætlunin að skapa samhenta stjúpfjölskyldu. Stjúpforeldrar hafa yfirleitt ekki sömu stöðu í augum barna og foreldrar, þess vegna geta orð þeirra vegið léttar reyni þeir að banna það sem foreldrar leyfa. Sjaldan sjá börn ástæðu til að setja diskinn í uppþvottavélina eða þakka sérstaklega fyrir sig ef foreldri skeytir ekki um að kenna þeim almenna kurteisi og reglur heimilis- ins. Það getur vel verið að barni þyki það ákjósanleg staða í einhvern tíma að um það gilda aðrar reglur, en til lengdar hefur að áhrif á aðlögun þess í stjúpfjölskyldunni. Sérstaklega ef þetta sama foreldri er tilbúið til að fylgja reglunum af hörku gagnvart öðrum fjölskyldumeðlimum. Er það umhugsunarvert að sjá að mismunun gagnvart börnum í stjúpfjölskyldum virðist vera nokkuð algeng. Í könnun sem m.a. var lögð fyrir félagsmenn í Félagi stjúpfjölskyldna voru 45% svarenda mjög/sammála fullyrðingunni „Það gilda aðrar reglur um börn maka míns á heimilinu en mín börn (getur líka átt við barnabörn)“ og 38% voru mjög/sammála fullyrðingunni „Mér finnst maki minn gera meiri kröfur til minna barna en sinna eigin barna (getur líka átt við um barnabörn). Það bætir ekki ástandið ef foreldri setur ofan í við stjúpforeldri sem reynir að fylgja eftir „samþykktum“ heimilisreglum eða afsakar ókurteisi barnsins með van- líðan eða það komi svo sjaldan. Það þurfi því ekki að gera svona mikið mál úr hlut- unum. Hætta er á að heimilismenn skiptist á svipstundu upp í tvær andstæðar fylk- ingar með tilheyrandi pirringi og vonbrigðum. Í sumum tilvikum beinist pirringur stjúpforeldrisins gagnvart barninu sem talið er bera ábyrgð á líðan stjúpforeldrisins og aðstæðunum sem „það“ skapar í hvert sinn sem það kemur. Í stað þess að horfa á hegðun foreldrisins og samspil parsins. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að uppalendur í stjúpfjölskyldum eru ekki samstíga en stundum er það ekkert flóknara en svo að heimilisreglur hafa aldrei verið ræddar. Nú, svo leggur fólk áherslu á mismunandi hluti í uppeldinu og það getur tekið tíma að finna út hvaða reglur eigi að hafa að leiðarljósi á heimilinu. Það getur verið smekksatriði hvort nauðsynlegt sé að börnin gangi alltaf frá leikföngum eftir notkun í þar til gerðar hillur eða það sé látið duga að þau lagi til í herbergjum sínum einu sinnu í viku. Að kunna þakka fyrir sig, telst hinsvegar sjaldnast smekksatriði. Flestir foreldrar, óháð hjúskaparstöðu eða fjölskyldugerð, finna öðru hvoru til sektar- kenndar gagnvart börnum sínum og telja sig geta gert betur. Við skilnað og þegar farið er ný sambönd finna margir foreldrar mjög sterkt fyrir henni, meðvitaðir um þau áhrif sem breytingarnar geta haft á börn þeirra. Óánægja í svip barnanna ristir því djúpt í hjörtu sumra foreldra sem reyna hvað þeir geta til að má hana af og fá bros í hennar stað. Margir verða því eftirlátssamir á gjafir og peninga meira en góðu hófi gegnir eða horfa fram hjá ókurteisi og heimilisreglur fjúka út um gluggann af ótta við valda enn meiri leiðindum í lífi barna sinna. Oft umbuna foreldrar, venjulega ómeðvitað, fyrir slæma hegðun barna sinna í stað þess að veita þeim öruggi sem felst í kærleiksríkum reglum. Láti stjúpforeldrið í ljós óánægju sína er það í sumum tilvikum jafnvel vænt um að þola ekki barnið. Í viðleitni sinni að „vernda“ barnið gagnvart „slíku“ stjúpforeldri getur for- eldrið orðið enn eftirgefanlegra. Sé þetta ástand viðvarandi er hætta á miklum pirringi og reiði á heimilinu. Það þarf því ekki að undra að í sumum tilvikum geti koma barnsins verið kvíðvænleg. Óhófleg eftirlátssemi, hvort sem það er í fjármálum eða á öðrum sviðum, er kostnaðar- söm og gerir hvorki börnum né sambandinu gott. Flest jafna sig á breytingum. Sektar- kenndina má nýta til góðs, með því læra nýja færni og styrkja sig í foreldrahlutverkinu – en stundum er líka full ástæða til að spyrja sig: Hvað myndi ég gera ef hún væri ekki til staðar?“ Óhófleg eftirlátssemi, hvort sem það er í fjármálum eða á öðrum sviðum, er kostnaðarsöm og gerir hvorki börnum né sambandinu gott. Kostnaðarsöm sektarkennd Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi og kennari heimur barna fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420 Heimilistæki Heimilistækjadagar 20% afsláttur Kristniboðsdagurinn 9. nóvember 2014 Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar er á sunnudaginn. Kristniboð er mikilvægt og hluti af köllun kirkjunnar. Kristniboð er • boðun og fræðsla • kærleiksþjónusta á sviði heilsuverndar og menntunar • þróunarsamvinna og neyðarhjálp Vissir Þú að • rúmlega 40 íslenskir kristniboðar hafa starfað í afríku og asíu? • kristniboðarnir gera sér far um að læra tungumál og menn- ingu fólks? Kristniboðssambandið hefur • tekið þátt í að byggja 85 grunn- og framhaldsskóla í Pókot- héraði í Keníu • byggt upp heilsugæslu víða í eþíópíu og Keníu • stutt fjölda þróunarverkefna, s.s. á sviði landbúnaðar • boðað fagnaðarerindið og stofnað söfnuði, byggt kirkjur og kennt prestsefnum • alltaf lagt áherslu á að hjálpa konum og börnum til betra lífs starf kristniboðsins er víða kynnt í guðsþjónustum dagsins. tekið er við gjöfum til kristniboðsins í kirkjum landsins. gjafareikningur 0117-26-002800. Kennitala 550269-4149. www.sik.is. Kristniboðsfélag karla í reykjavík heldur árlega kaffisölu sína á kristniboðsdaginn sem hefst kl. 14 með helgistund og stendur til kl. 17 í Kristniboðssalnum, háaleitisbraut 58-60. í trú, von og kær lei ka KærleiKsþjónustusviðKristniboðssambandið Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn og sér. www.odalsostar.is ÓÐALSOSTUR TIGNARLEGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.