Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.11.2014, Side 47

Fréttatíminn - 07.11.2014, Side 47
48 ferðalög Helgin 7.-9. nóvember 2014 Smekklegar ferðabækur Það er sennilega óhætt að fullyrða að ferðamenn smelli oftar af en þeir sem sitja heima og varla hefur dregið úr myndagleðinni eftir að snjallsímarnir komu til sögunnar. Mynd- unum deilum við svo oft með fólkinu heima á Facebook eða Instagram. Steller er hins vegar forrit fyrir þá sem vilja leggja meiri metnað í ferðafrétt- irnar. Hér er hægt að búa til myndabækur með stuttum textum í látlausum umbúðum að hætti hússins. Þegar bókin er tilbúin til útgáfu er hægt að deila henni á samfélagsmiðlunum, senda hana í tölvupósti á vel útvalda eða bara halda henni fyrir sjálfan sig. Fyrir einmana hótelgesti Sumir eiga erfitt með að vera einir á ferð og hafa engan til að tala við í morgunmatnum eða á hótelbarnum. Forritið HelloTel kemur þessum hópi fólks til bjargar með því að tengja saman gesti á ákveðnu hóteli eða á ákveðnu svæði. Forrit- inu svipar því til stefnumótaappsins Tinder og hefur fengið á sig nokkuð vafasaman stimpil. Þjórfé og margskiptir reikningar Það krefst dálítillar hugarleikfimi að reikna út hversu mikið þjórfé á að gefa í útlöndum og það er ekki alltaf einfalt að skipta reikningi jafnt á milli nokkurra. Appið Tipulator leysir þessi tvö vandamál því þar er hægt að setja inn upp- hæð reikningins, velja prósentutölu fyrir þjórfé og deila niðurstöðunni niður á fjölda greiðenda á skemmtilegri hátt en vasareiknirinn býður upp á. Ferðamyndband Með Cameo í sím- anum er hægt að útbúa allt að tveggja mínútna löng myndbönd sem eru samansett úr sex sekúndna myndskeiðum. Það má því gera einum degi eða jafnvel heilli ferð skil í einu vídeói. Not- andinn getur svo skreytt verkin með tónlist, texta og alls kyns grafík. Almenningssamgöngur Það er hægt að spara peninga og tíma í stór- borgunum með því að taka strætó og lestir. Það getur hins vegar verið flókið fyrir aðkomufólk að átta sig á strætó- leiðum en þar kemur Citymapper forritið að góðu gagni og finnur út úr því hvernig hægt er að ferðast á milli staða að hætti heimamanna. Þeir sem eru hjólandi geta líka fengið upplýsingar um bestu leiðina með þessu forriti. Google maps hefur líka álíka góðar upplýsingar en það er ánægjulegt að geta stundum notast við eitt- hvað annað en forrit frá Google. Enn sem komið er þá eru aðeins nokkrar borgir inni í Citymapper. Ferðagögnin Í stað þess að prenta út stað- festingar frá flug- félögum, hótelum og bílaleigum þá sendir þú þær til Tripit og þær birt- ast í framhaldinu í forritinu í réttri tímaröð. Allar tímasetningar og bókunarnúmer eru því aðgengilegar á einum stað.  Ferðalög Farsíminn er góður Félagi á Ferðalögum Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.isSnjallsímaforrit fyrir ferðalagið Vegabréf, greiðslukort og farsími eru senni- lega þeir þrír hlutir sem enginn ferðamaður vill gleyma heima. Hér eru nokkur forrit sem geta gert farsímann að enn þá betri ferða- félaga.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.