Fréttatíminn - 07.11.2014, Qupperneq 7
G uðmundur Karl Snæbjörns-son hefur unnið í Svíþjóð í rúmlega tuttugu ár og
ákvað að stofna atvinnumiðlunina
Hvítir sloppar þegar kreppan skall
á 2008, en það ár fækkaði læknum
á Íslandi um allt að 10%. Hann
segist vera með hundruð af lausum
stöðum í hverri viku, tímabundnar
stöður og fastar stöður, fyrir al-
menna lækna og fyrir sérfræðinga.
„Þetta er ein stærsta atvinnu-
skrifstofa lækna á Norðurlöndun-
um en ég sé um íslenska hlutann,“
segir Guðmundur Karl. Hann
segir hafa verið vöntun á læknum í
Svíþjóð síðan í bankakrísunni 1992
og að íslenskir læknar séu og hafi
alltaf verið mjög eftirsóttir starfs-
kraftar.
„Ég sit oft á fundum með sænsk-
um yfirmönnum spítala og það er
ítrekað talað vel um íslenska lækna
í sérfræðinámi. Þeir eru valdir
fram yfir sænska lækna því þeir
eru svo ótrúlega góðir.“
Vinnuumsóknum hefur fjölgað
vegna verkfallsins
Á Íslandi eru byrjunarlaun lækna
eftir 6 ára háskólanám 340.734
kr. en laun sérfræðings, eftir 6
ára nám í viðbót, eru 530.556. kr.
Flestir auka tekjurnar með vakta-
vinnu á kvöldin og um helgar til
að auka tekjurnar. Læknir með
sérfræðileyfi í Svíðjóð fær frá
53.100 sænskum krónum, eða
um 1.056.690 íslenskar krónur
í grunnlaun, en það fer allt eftir
staðsetningu og stöðu. En dæmið
snýst ekki bara um launin. Lækna-
starfið er fjölskylduvænna í Sví-
þjóð þar sem hvíldarákvæðin eru
rýmri og hægt er að fá yfirvinnu
greidda í fríi. Þess utan er leigan í
flestum tilfellum lægri en í Reykja-
vík og leikskólar eru ókeypis. Í
ljósi þessa spyr maður sig af hverju
læknar ættu að kjósa Ísland fram
yfir Svíþjóð.
Guðmundur Karl segir lang-
flesta íslenska lækna vilja koma
heim eftir sérnám því hjartað slái
alltaf á heimaslóðunum. Þegar
hann hafi verið í sérnámi ætluðu
allir hans kollegar að snúa heim,
ekkert annað hafi komið til greina.
En nú sé öldin önnur og ungir
sérlæknar kjósi í auknum mæli að
vera eftir úti. Hann segir vinnu-
msóknum hjá Hvítum sloppum
hafa fjölgað um leið og verkfallið
barst í tal.
20% íslenskra sérfræðinga
vinna líka erlendis
Samkvæmt félagatali Lækna-
félagsins hafa tæplega 40 fleiri
læknar flutt frá landinu en til
þess á síðastliðnum fimm árum.
Læknafélagið áætlar að um 400
starfandi læknar hafi nú fasta
búsetu í Svíþjóð en þar að auki
vinna mjög margir læknar, sem
og aðrir heilbrigðisstarfsmenn,
sem verktakar erlendis, meðfram
vinnu á Íslandi. Læknafélagið
gerði könnun á því hversu margir
sérfræðilæknar á Landspítalanum
ynnu sem verktakar erlendis árið
2012. Niðurstaðan var 20%. Guð-
mundur Karl hjá Hvítum sloppum
segir eðlilegt að fjöldi lækna fari
út sem verktakar. „Af hverju ættu
þeir ekki að gera það þegar þar
er hægt að vinna sér inn íslensk
mánaðarlaun á nokkrum dögum?“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Verkfallið togar lækna út
Eftirspurn eftir vinnu lækna á Norðurlöndunum hefur aukist að sögn Guðmundar Karls Snæ-
björnssonar, en hann rekur atvinnumiðlunina Hvítir sloppar sem sérhæfir sig í að finna störf fyrir
íslenska lækna í Svíþjóð. Hann segir íslenska lækna vera mjög eftirsótta starfskrafta sem slegist
sé um. Það eina sem þeir þurfi að gera til að fá betri lífskjör en bjóðast hér, sé að sækja um starf
því af nógu sé að taka. Nú hafa um 400 íslenskir læknar fasta búsetu í Svíþjóð.
„Slopparnir bjóða öllum
almennum læknum á Íslandi
kjaratilboð í tilefni komandi
verkfalls og skerðingar launa.
Við bjóðum yngri kollegum
hærri tekjur, frítt flugfar
(fram og til baka) ef vinnu-
tímabilið er 2 vikur eða fleiri í
senn. Þar að auki er húsnæðið
innifalið eins og áður og
jafnvel útvegun stærra hús-
næðis ef því er við komið, t.d.
ef maki eða barnapía fylgja
með. Skoðaðu tilboðin okkar
og láttu freistast.“
Svona hljóðar auglýsing frá
Hvítum sloppum, en það er
atvinnumiðlun sem sérhæfir
sig í að finna störf fyrir ís-
lenska lækna í Svíþjóð.
20%
íslenskra sérfræðilækna
vinna erlendis meðfram
fastri vinnu á Íslandi til að
auka tekjurnar.
Um 400
íslenskir
læknar hafa
fasta búsetu
í Svíþjóð.
Laun á Íslandi:
Byrjunarlaun eftir
6 ára háskólanám
340.734 kr.
Laun sérfræðings,
eftir 6 ára nám
í viðbót, eru
530.556. kr.
Laun í Svíþjóð:
Laun sérfræðings;
frá 53.100 sænskum
krónum, eða
1.056.690 íslenskar
krónur í grunnlaun,
fer eftir staðsetningu
og stöðu.
www.icewear.is
ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR
VETRAR- OG ÚTIVISTARFATNAÐUR
FÁKAFEN 9 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 555 7412
EMILIA Vatteraður jakki
Verð áður: 22.900
Verð nú: 4.990
Rauði krossinn á Íslandi leitar að góðu
húsnæði, helst neðarlega á Laugavegi,
Skólavörðustíg eða á því svæði.
Um er að ræða rekstur verslunar sem
nú er á Laugavegi 12. Traustur leigutaki.
Allar nánari upplýsingar veitir Sandra
Grétarsdóir í síma 898 7179 eða
sandra@redcross.is.
Óskum eir
verslunarhúsnæði
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-2
4
5
6
DRAGÐU FRAM
ÞAÐ BESTA Í MATNUM
Gerðu engar málamiðlanir – notaðu Santa Maria
næst þegar þú eldar.
8 fréttaskýring Helgin 7.-9. nóvember 2014