Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 13
Ý
Ýmsir hafa átt sér þann draum að Ísland
verði í framtíðinni olíuvinnsluríki. Það er
skiljanlegt, einkum vegna þess að rann-
sóknir á Drekasvæðinu svokallaða, á hafs-
botni norðaustur af Íslandi, hafa gefið það
til kynna að þar finnist olía í vinnanlegu
magni. Slíkt er skoðað vegna þess ábata
sem olíuvinnsla getur skilað til samfélags-
ins.
Í því ferli öllu loga þó viðvörunarljós og
þeim fer fjölgandi. Íslendingar
hljóta því að hugsa sig vel um
áður en þeir semja um slíka
vinnslu í norðurhöfum. Haf-
dýpið á Drekasvæðinu er frá
800-2000 metrar, þar er kalt
úthafsloftslag og meðalhiti
undir 10 gráðum allt árið, um
5-8 stig á sumrin en 2 til 0 stig
að vetri til. Þar er þokusamt
og ísingarhætta.
Í viðtali Ríkisútvarpsins á
dögunum við Stephen Macko,
prófessor í jarðefnafræði við Háskólann í
Virginíu, kom það mat fram að olíuvinnsla á
þessum slóðum væri ekki áhættunnar virði
en Macko hélt erindi á ráðstefnu á vegum
Rannsóknarseturs um norðurslóðir við
Háskóla Íslands. Hann segir olíuvinnslu á
norðurslóðum varhugaverða þar sem erfitt
geti verið að bregðast við mengunarslysum.
Hann segir sömu aðferðir notaðar til að
hreinsa upp olíuleka nú og fyrir 25 árum –
og olíuvinnslu fylgi alltaf einhver leki – stór
eða smár.
Jarðefnaprófessorinn segir að mörgum
spurningum sé ósvarað um hvernig bregð-
ast eigi við olíuslysi á norðurslóðum. Á með-
an það ástand ríki sé olíuvinnsla á þessum
slóðum vart áhættunnar virði. Það sé til að
mynda ekki víst hvernig best sé að hreinsa
upp olíu þar sem ís er fyrir. Olían leggist
utan á ísinn og fari undir hann. En ekki sé
aðeins erfiðara að hreinsa upp eftir stóran
olíuleka á þessum slóðum, heldur geti að-
stæður til að stöðva slíkan leka verið miklu
erfiðari en víðast hvar annars staðar.
Þetta eitt og sér hlýtur að vera Íslending-
um umhugsunarefni, fiskveiðiþjóðinni við
Norður-Atlantshaf sem á svo mikið undir
fiskistofnum allt umhverfis landið, stofnum
sem þrífast í ómenguðum sjó.
Jón Steinsson, dósent í hagfræði við
Coumbia háskóla í New York, vakti fyrir
tveimur árum athygli á ábyrgð Íslendinga
kæmi til olíuslyss á þessu svæði og minnti á
olíuslysið mikla sem varð í Mexíkóflóa árið
2010 þegar sprenging varð í olíuborpalli
British Petrolium. Í því slysi flæddi olía án
afláts í hafið í þrjá mánuði áður en unnt var
að loka borholunni. Jón nefnir að þetta hafi
átt sér stað á yfirráðasvæði voldugra Banda-
ríkjanna þar sem stjórnvöld settu mikinn
þrýsting á þau fyrirtæki sem að komu.
Hann veltir því hins vegar fyrir sér við
hver slagþungi íslenskra stjórnvalda væri í
þeim efnum, jafnvel þótt þau nytu fulltingis
norskra yfirvalda.
Þá hefur að undanförnu verið vakin at-
hygli á því að olíumarkaðurinn í heiminum
hafi breyst, olíuverð lækkað og framboð
aukist. Í tímaritinu Economist hefur komið
fram að olíuiðnaðurinn sé að hætta við
ýmis verkefni sem verið hafa á döfinni, sér-
staklega á norðurslóðum, þar sem olíuverð
standi ekki undir vinnslukostnaði.
Við þetta bætist síðan, sem kann að hafa
einna mest áhrif þegar til lengdar lætur,
að loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna er
afdráttarlaus hvað varðar notkun jarðefna-
eldsneytis. Í skýrslu hennar, sem kynnt
var í vikubyrjun, kemur fram að ríkis-
stjórnir verði að bregðast hratt við vegna
styrks gróðurhúsalofttegunda í andrúms-
lofti jarðar, sem sé nú 40% meira en fyrir
iðnbyltinguna og hafi ekki verið meira í að
minnsta kosti 800.000 ár. Því verði að draga
stórlega úr notkun jarðefnaeldsneytis, olíu
og gass, og hætta henni algerlega fyrir lok
þessarar aldar.
Það er því augljóst að þróunin verður í átt
að „hreinni“ orkugjöfum, líklega kjarnorku
með kostum hennar og göllum.
Ásókn stórþjóða á svæði norðurslóða
hefur aukist mjög. Framtíðarbarátta Íslend-
inga snýst því líklega frekar um vörn fyrir
ósnortnar norðurslóðir en áhættusama olíu-
vinnslu.
Viðvörunarljósunum fjölgar
Olíuvinnslan vart áhættunnar virði
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTÝsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
www.sagamedica.is
Sama góða varan í nýjum umbúðum
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
49
16
Ég nota
SagaPro
Helga Arnardóttir, húsmóðir
„Stóla á SagaPro á daginn“
14 viðhorf Helgin 7.-9. nóvember 2014