Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 53
54 heilsa Helgin 7.-9. nóvember 2014
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero 2198,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
1. Hugleiddu
Tuttugu mínútna hugleiðsla kvölds og morgna getur aðstoðað líkamann við að verjast
sjúkdómum. Hugleiðsla verður til þess að líkaminn endurnærir sig og heldur jafnvægi
og er þannig betur í stakk búinn þegar pestir herja á.
2. Taktu sólhatt
Jurtalyfið sólhattur hefur lengi verið notað til að styrkja ónæmis-
kerfið. Fjöldi rannsókna hefur verið gerður sem benda til þess að
neysla á sólhatti minnki líkur á því að fá kvef um helming en
einnig getur hann gagnast gegn alvarlegri öndunarfæra-
sjúkdómum.
3. Hreyfðu þig reglulega
Regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif til lang-
frama, styrkir líkamann á alla vegu og bætir
blóðflæði. Fólk velur hreyfingu við hæfi og
hálftíma göngutúrar fimm daga vikunnar
gera sitt. Þá ber að hafa í huga að óhóf-
leg hreyfing, sem líkaminn ræður illa
við, veikir ónæmisvarnirnar.
4. Sofðu vel
Þeir sem þykir gott að kúra
gleðjast eflaust við þær fregnir
að það styrkir ónæmiskerfið
að sofa vel. Svefn er okkur
svo mikilvægur að það er
nauðsynlegt að ná minnst
7 tíma samfelldum svefni á
nóttu til að minnka líkur á fá
kvef eða flensu.
5. Hugsaðu jákvætt
Jákvæðar hugsanir geta
hreinlega gert kraftaverk
þegar kemur að því að
styrkja ónæmiskerfið. Að
sama skapi kemur stress
og neikvæðni niður á
ónæmiskerfinu. Þannig er það
beinlínis slæmt fyrir heilsuna
að vera neikvæður. Ef stressið
er að plaga þig er best að ráðast
að rótum þess.
6. Drekktu grænt te
Alsiða er á Íslandi að drekka kaffi á
morgnana og þó hófleg kaffidrykkja
ætti ekki að skaða heilsuna er mun
betra að drekka grænt te í stað kaffis.
Græna teið inniheldur koffein en einnig
andoxunarefni. Mikið úrval af grænu tei er
að finna í verslunum, jafnvel bragðbættu.
7. Hugaðu að mataræðinu
Mataræðið skiptir lykilmáli þegar kemur að heilbrigði
yfir veturinn. Þannig neytirðu þeirra vítamína og stein-
efna sem líkaminn þarf til að styrkja ónæmisvarnir sínar.
Sérstaklega mælum við með sítrusávöxtum og berjum til að fá
C-vítamín; fiski, baunum og rauðu kjöti til að fá járn; osti, fræjum
og eggjum til að fá zink; og hnetum fiski og mung baunum til að fá
selenium.
8. Taktu D-vítamín
Húðin framleiðir D-vítamín eftir að hafa verið í sólskini en hér á norðurhjara veraldar
búum við ekki svo vel að hafa sól árið um kring. Þar sem D-vítamín hefur mikilvæg áhrif á
ónæmiskerfið er mikilvægt að taka vítamín yfir veturinn eða taka þorskalýsi sem er ríkt af D-vítamíni.
8 leiðir til að styrkja ónæmiskerfið
Veturinn er sannarlega kominn og umgang-
spestir farnar að gera vart við sig. Það er ýmis-
legt sem við getum gert til að styrkja varnir
líkamans þannig að hann geti betur varist kvefi
og alvarlegri smitsjúkdómum sem óhjákvæmi-
lega fylgja vetrinum. Hér eru 8 ráð sem geta
hjálpað í baráttunni við pestirnar.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is