Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 90
umhirða húðar Helgin 7.-9. nóvember 201412
Svokölluð BB krem hafa náð gífur-
legum vinsældum í snyrtivöru-
heiminum á síðastliðnum árum.
BB stendur fyrir blemish balm, en
hefur einnig verið markaðsett sem
beauty balm. Kremið á uppruna
sinn að rekja til sjöunda áratugs síð-
ustu aldar og var upphaflega þróað
af húðlækni í Þýskalandi í þeim til-
gangi að vernda húð sjúklinga eftir
andlitsaðgerðir. Á níunda áratugn-
um náðu vinsældir BB kremsins
til Suður-Kóreu og var einna helst
komið á framfæri af þekktum leik-
konum sem urðu táknmynd fyrir
heilbrigða húð. Kremið hóf svo inn-
reið sína á vestrænan markað fyrir
um það bil tveimur árum og var tek-
ið opnum örmum.
BB krem líkist í raun rakakremi
en hefur auk þess léttan lit. Kremið
kemur yfirleitt í tveimur litatónum
sem aðlaga sig svo að húðlit hvers og
eins. Varan hentar konum sem kjósa
að bera léttan farða og er það ef til
vill ástæða þeirra gífurlegu vinsælda
sem kremið hefur notið. Kostir BB
kremsins eru þeir að hægt er að nota
það eitt og sér en einnig yfir serum
og rakakrem, sem og undir púður.
Nýlega voru svo CC krem kynnt
til leiks. CC stendur fyrir Color
Control eða Color Correcting og er
markmið kremsins að stuðla að full-
komnu litarhafti húðarinnar og leið-
rétta einkenni líkt og roða, þreytu
og litabletti. CC kremið hefur ekki
náð jafn mikilli útbreiðslu og BB
kremið en það gæti vissulega breyst
á komandi misserum.
BB krem – Töfralausn eða enn eitt æðið?
BB stendur fyrir Blemish Balm. Það lík-
ist rakakremi en hefur auk þess léttan
lit. Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages
FACE
BODY
HOME
Laugar Spa snyrti- og nuddstofa www.laugarspa.isFinndu okkur á facebook: facebook.com/laugarspa
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Hydra life
BB krem
frá Dior
BB krem sem
inniheldur
formúlu ríka
af pigmentum
með leiðrétt-
ingareigin-
leikum. Gefur
góða þekju
sem jafnar
húðlit og
húðin verður
náttúrulega
fersk og
ljómar.
Regenerist Luminous Skin
Tone Perfecting Cream
24 stunda Luminous Skin Tone Per-
fecting kremið er algjör orkubomba
fyrir húðina og gefur henni rosalega
góðan raka. Kremið lýsir upp dökka
bletti og jafnar húðlit með ótrúlegum
árangri. Gefur húðinni óaðfinnan-
legan húðljóma, ferskara útlit og
silkimjúka áferð. Sjáanlegur munur á
aðeins tveimur vikum og fullkominn
árangur á átta vikum. Niðurstaðan er
heilbrigðara og unglegra útlit.
Visible diffe-
rence BB krem
frá Elizabeth
Arden
Milt, áhrifaríkt og
hentar öllum húð-
gerðum. Inniheldur
formúlu úr lakkrísrótinni
sem dregur úr dökkum
blettum jafnframt því
að hylja þá. Kemur í 3
litatónum sem aðlaga
sig að lit húðarinnar.
BB kremfarði frá Bourjois
BB krem með 16 stunda endingu.
Mýkir, dregur úr þreytu og vinnur
gegn öldrun húðarinnar. Gefur lang-
varandi raka. Inniheldur SPF 20 og
er parabenfrír.
BB krem frá Gosh
Allt í einu kremi, léttur farði, farða-
grunnur og gefur raka. Létt þekja í 5
litatónum. Inniheldur jurtaformúlu
sem vinnur á fínum línum og gefur
húðinni orku. Innihldur SPF 15 og er
ilmefnalaust.
City Miracle CC
krem frá Lan-
côme
Kokteill virkra efna
sem vernda húðina
gegn utanaðkomandi
áreiti, eins og skjöldur
á húðina. Jafnar áferð
og mýkir húðina.
Gefur mikinn raka og
er endingargóð næring
sem veitir húðina heil-
brigðan ljóma.
Aquasource BB
krem frá Biot-
herm
BB kremið er létt litað
og gefur húðinni nátt-
úrulega og heilbrigða
áferð. Gefur mikinn
raka, sléttir og jafnar
áferð húðarinnar og
hún geislar af heil-
brigði. Hentar öllum
húðgerðum, einnig við-
kvæmri húð. Inniheldur
SPF 15.
Regenerist
Luminous Dark
Circle Correct-
ing Swirl
Augngel sem dregur úr
dökkum blettum undir
augum og öðrum mis-
fellum í húðinni. Lýsir
upp svæðið í kringum
augun og gefur
ferskara og unglegra
útlit.
Finndu rétta tóninn