Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 76
Myndlist Ólöf Björg Málar portrett af sýningargestuM
Óklárað portrett af Óla Palla í verslunarmiðstöð
Myndlistarkonan Ólöf Björg Björns-
dóttir heldur um þessar mundir sýn-
ingu í nýopnuðu galleríi í verslunar-
miðstöðinni Fjörður í Hafnarfirði.
Ólöf sýnir þar myndlist sem hún
hefur verið að mála að undanförnu.
„Ég er í rauninni að opna útibú frá
vinnustofunni minni í galleríinu,
þar sem ég mun mála myndir á
meðan sýningunni stendur,“ segir
Ólöf sem rekur vinnustofu sína alla
jafna í Fornubúðum í Hafnarfirði.
„Ég bjó til rými í sýningarsalnum
þar sem fólk fær sér sæti í góðum
umhverfi, kertaljósum og þægilegri
stemningu þar sem ég mála portrett
af þeim,“ segir Ólöf.
„Ég læt fólk draga spil sem eru
úr táknakerfi indjána í Norður-Am-
eríku og ég mála mynd eftir þeirri
leiðsögn. Fólk vill helst vera allan
daginn hjá mér, en ef það er komin
biðröð þá er ég um það bil 20 til 40
mínútur með hverja mynd. Á spilun-
um eru myndir af dýrum og fólk vel-
ur sína liti. Ég mála svo myndirnar
með aðstoð anda dýranna, svo þetta
er heilun í bland við myndlistina.“
Á Facebook síðu Ólafar má sjá
útvarpsmanninn Ólaf Pál Gunn-
arsson sem módel hjá listamann-
inum. „Óli Palli kom hingað og
lét mála mynd, en svo var hann
að flýta sér og við náðum ekki að
klára. Svo myndin hangir hér enn
en við stefnum á að klára hana sem
fyrst,“ segir Ólöf sem ætlar að vera
í sýningarsalnum um helgina og
á mánudag og þriðjudag að mála
portrettmyndir.
Í nóvember verður hún með sýn-
ingu í Gallerí Stafni í Reykjavík og
leggur svo land undir fót og verð-
ur með einkasýningu í St.Croix á
Bresku Jómfrúareyjunum. -hf
Ólöf Björg myndlistarkona og módelið
Óli Palli.
sjÓnvarp daBBi er hægri hönd andra á færeyjaflandri
Sonur Magga Kjartans
ærir málfarsráðunaut RÚV
Ný þáttaröð með útvarpsmanninum Andra Frey Viðarssyni byrjaði í Ríkissjónvarpinu á fimmtu-
daginn. Þættirnir, sem nefnast Andri á Færeyjarflandri, verða sex talsins en í þeim fær hljóð-
maður þáttanna, Davíð Magnússon, aukið vægi. Davíð er sonur Magga Kjartans og kveðst vera
með nógu breitt bak til að taka athyglinni sem fylgir þáttunum.
v ið Andri erum vinir og ég fór með honum og leikstjór-anum Kristófer Dignus til
Kanada þegar þeir gerðu þættina
sem gerðust þar. Ég bjó á þeim tíma
í Kanada svo þetta lá beinast við,“
segir Davíð Magnússon, eða Dabbi
eins og hann er kallaður. „Við Andri
vorum saman í herbergi í þeirri ferð
sem var í 17 daga og menn verða
nánir og kynnast vel á svo löngum
tíma. Svo þegar kom að því að fara
til Færeyja fannst Andra hann þurfa
einhvern með sér í þættinum sem
hann gæti haft samskipti við. Andri
er líka feiminn og þorir ekkert, svo
ég tók þetta bara á mig. Ég er alltaf
til í að prófa hluti og smakka mat
sem Andri vill ekki, hann er svo
pjattaður,“ segir Dabbi.
Dabbi vinnur sem hljóðmaður
um þessar mundir í Berlín hjá tölvu-
leikjafyrirtækinu Klang Games og
verkefnið átti bara að vera tíma-
bundið en hann segist alveg geta
hugsað sér að ílengjast í Berlín.
„Ég hef búið lengi erlendis og það
hentar mér mjög vel. Ég er að búa
til hljóðheim í tölvuleik fyrirtækis-
ins og undanfarið hef ég líka verið
að vinna með Agli Sæbjörnssyni
myndlistarmanni sem er búsettur
hér, “ segir Dabbi. „Ég hef ekki séð
neitt af þáttunum sem voru að byrja
nema bara einhver stutt klipp sem
mér hafa verið send,“ segir Dabbi.
„Þetta lítur út fyrir að vera miklu
meira en ég gerði mér grein fyrir
og Andri hefur fegrað þetta mjög.
Ég er þó mest forvitinn að vita
hvernig íslenskufræðingarnir taka
í þennan þátt því við slettum svo
mikið,“ segir Dabbi.
„Hausinn á málfarsráðunaut-
unum á eftir að springa þegar
hafnfirskur sonur keflvísks popp-
ara byrjar að sletta í sjónvarpinu,“
segir Dabbi sem er sonur Magnús-
ar Kjartanssonar tónlistarmanns.
„Auðvitað verður þetta alltof mikil
athygli fyrir mann, en ég er með
breitt bak. Það var mjög gaman að
koma til Færeyja og mjög skemmti-
legt að vinna að þessum þáttum,“
segir Dabbi Magg, hljóðmaðurinn
sem verður á skjánum hjá RÚV
næstu fimmtudagskvöld.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Davíð Magnússon er hægri hönd Andra Freys í Færeyjum. Mynd/Spessi
Dóri DNA er út-
lenski drengurinn
Grínistinn Dóri DNA, sem er þekktur
fyrir uppistand og er einn meðlimur
uppistandshópsins Mið-Ísland, leikur sitt
fyrsta hlutverk á sviði í leikverkinu Út-
lenski drengurinn, sem verður frumsýnt í
Tjarnarbíói þann 16. nóvember.
Í lýsingu á sýningunni segir að Dóri litli,
sem leikinn er af Dóra, sé ýkt útgáfa af
Dóra DNA sjálfum 12 ára. Það verður fróð-
legt að sjá hvernig þessum góða grínara
tekst til á leiksviðinu. Verkið er eftir
Þórarin Leifsson og er Vigdís Jakobsdóttir
leikstjóri.
Läckberg kemur út
á sama tíma í Sví-
þjóð og Íslandi
Camilla Läckberg er einn mest lesni rithöf-
undur Evrópu. Bækur hennar hafa selst í
meira en 12 milljónum eintaka og koma út í
50 löndum um allan heim. Hennar nýjasta
bók sem heitir Ljónatemjarinn er níunda
bókin í bókaflokknum um lögreglumanninn
Patrik Hedström og rithöfundinn Ericu Falck.
Þetta er fyrsta bók Läckberg í ein 3 ár og
hefur hennar verið beðið með mikilli eftir-
væntingu. Það er Sigurður Þór Salvarsson
sem þýðir að venju og Sögur gefa út. Bókin
kemur út í lok nóvember og aðeins nokkrum
dögum síðar kemur hún út á Íslandi, sem
er óalgengt. Eiginlega bara heppni, segir
Tómas Hermannsson hjá Sögum.
Uppselt á 7 tónleika
í Þýskalandi
Þungarokkssveitin Sólstafir er stödd á
gríðarlega stóru og löngu ferðalagi um
Evrópu. Sveitin heldur rúmlega 20 tónleika
víðsvegar um Evrópu og er uppselt á 7 tón-
leika Sólstafa í Þýskalandi á næstu dögum.
Eftir Evrópuferðina heldur hljómsveitin svo
til Bandaríkjanna og spilar þar á rúmlega
10 tónleikum um alla álfuna áður en hún
kemur heim til Íslands rétt fyrir jól.
Tímamót í útgáfu hljóðbóka
Brotið verður blað í sögu hljóðbókaútgáfu á Íslandi í dag,
föstudag. Þá kemur fjórða Sturlungabók Einars Kárasonar,
Skálmöld, fyrst út sem hljóðbók. Þannig fá unnendur hljóðbóka
fimm daga forskot áður en bókin kemur út á prenti en bókin
kemur út þann 12. nóvember á almennan bókamarkað. Ekki er
vitað til þess að þetta hafi gerst áður hérlendis en algengt er
að þeir sem kjósa að hlusta frekar en lesa hafi þurft að bíða
dögum, vikum eða jafnvel árum saman eftir hljóðbókinni
ef hún kemur þá út yfir höfuð. Undanfarin fjögur hefur
fyrirtækið Skynjun staðið fyrir vaxandi og fjölbreyttri
útgáfu hljóðbóka og útgáfa Skálmaldar nú er sam-
vinnuverkefni þeirra, Forlagsins og Einars Kárasonar
sem les bókina af miklum eldmóði. Allar nánari upp-
lýsingar má finna á heimasíðunni www.skynjun.is
fridaskart.is
Strandgötu 43
Hafnarrði
íslensk hönnun í gulli og silfri
78 dægurmál Helgin 7.-9. nóvember 2014