Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 80
Mikilvægt er að nota rakakrem og rakagefandi snyrtivörur yfir vetrartímann. Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages
Málmfríður Einarsdóttir, eigandi Carita snyrtingar í Hafnarfirði. Ljósmynd/Hari
umhirða húðar Helgin 7.-9. nóvember 20142
Húð getur verið viðkvæm fyrir kulda
en þegar kalt er í veðri missir hún
rakastig og því er mikilvægt að bera
rakakrem á húðina í ríkulegu magni
yfir vetrartímann. Þegar veturinn
nálgast getur verið gott að fara í and-
litshreinsun því húðin okkar breytist
í takt við veðurfarsbreytingar. Það
er því tilvalið að hefja veturinn með
alveg tandurhreina húð.
Notkun rakakrems er mikilvæg
yfir vetrartímann og ráðlagt er að
nota krem sem leyfir húðinni að anda
og kemur svitanum í burtu af yfir-
borði húðarinnar. Á veturna getur
verið gott að bæta við rakagefandi
snyrtivörum þegar kemur að húð-
umhirðu. Serum er tilvalið að nota
þegar jafna þarf áferð húðarinnar og
auka virkni hennar því serum inni-
heldur fjölda virkra innihaldsefna.
Efnið kemur oftast í gelformi og til
að ná hámarks virkni er best að nota
serum undir andlitskrem.
Olíur hafa róandi áhrif á húðina
og eru því tilvaldar við húðumhirðu
yfir vetrartímann þegar húðin er
mun viðkvæmari fyrir þurrki en yfir
sumartímann. Segja má að olíur hafi
gengið í endurnýjun lífdaga í snyrti-
vöruheiminum nýlega, en nú búa þær
yfir léttari áferð og fara hraðar inn
í húðina. Notkunarmöguleikar olí-
unnar eru því orðnir neytendavænni.
Þurrar varir má oft tengja við kóln-
andi veðurfar. Úrval varasalva er
gríðarlegt og við val á slíkum er gott
að hafa í huga að velja salva sem inni-
heldur náttúruleg efni en forðast þá
sem innihalda efni líkt og menthol og
sterk ilmefni, en þau efni veita aðeins
tímabundna vellíðunartilfinningu en
næra ekki varirnar. Varaskrúbbur get-
ur einnig verið góð lausn á varaþurrki,
en flestir innihalda sykur sem er nátt-
úrulegur rakagjafi og dregur úr raka-
tapi. Forðast skal þó að skrúbba var-
irnar of oft.
Litríkar húðvörur úr
náttúrulegum efnum
H úðvörurnar frá Ole Hen-riksen hafa skapað sér sess í snyrtivöruflóru landsins og ekki að
ástæðulausu því vörurnar skera sig
úr á margan hátt. Sú ástríða sem
eigandi merkisins, Daninn Ole Hen-
riksen, gefur vörum sínum hefur
skapað honum nafn um allan heim
og er hann í uppáhaldi meðal við-
skiptavina og fjölmiðlafólks víðs
vegar um heiminn. Hann er þekkt-
ur fyrir glaðværan persónuleika og
má segja að litríkar pakkningar á
snyrtivörunum hans endurspegli
hans frjálslega fas.
Húðvörur úr náttúrulegum og
virkum efnum
Húðvörur Ole Henriksen eru unnar
úr náttúrulegum innihaldsefnum
og einkennast af einfaldleika og
skemmtilegri litadýrð og eru efnin
án parabena. Vörurnar hafa ekki
bara jákvæð áhrif á húðina heldur
ber sérhver vara með sér sérstakan
ilm sem gefur umhirðu húðarinnar
nýja upplifun. Vörurnar eru allar
unnar úr virkum efnum sem finnast
í náttúrunni og er það skoðun Ole
Henriksen að fegurðin eigi að vera
náttúruleg og án þjáninga. „Hann
hefur það að leiðarljósi við hönnun
línunnar að allir eigi að geta verið
með fallega húð en það þurfi rétt
efni fyrir hverja og eina húðgerð,“
segir Málmfríður Einarsdóttir, eig-
andi Carita snyrtingar í Hafnarfirði,
en þar er boðið upp á heildrænar
Ole Hendriksen meðferðir.
Fjölbreytt vöruúrval
Ole hefur frá upphafi haft það að
leiðarljósi að allir geti verið með fal-
lega húð og því er vöruúrvalið breitt
svo allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Í Ole Henriksen línunni er að
finna andlitshreinsa, andlitsvötn, ser-
um, andlitskrem, augnkrem, maska,
kornakrem og ýmsar vörur fyrir lík-
amann. Mikil rannsóknarvinna og
sérþekking liggur að baki hverrar
vöru sem hver er hönnuð til að takast
á við eða meðhöndla ólík húðvanda-
mál. Sítrus er afgerandi innihalds-
efni hjá Ole Henriksen og áhrif
LIGHT UP THE ROOM
WHEN YOU WALK IN.
YOUR BEST BEAUTIFUL
YOUR BEAUTIFUL BEST
NÝTT
• ORKUMEIRI OG JAFNARI HÚÐ
Á AÐEINS 2 VIKUM
• DREGUR ÚR DÖKKUM BLETTUM OG
JAFNAR HÚÐLIT Á AÐEINS 8 VIKUM
• FRÍSKAR OG VEKUR UPP HÚÐINA
• HEILBRIGÐARA OG UNGLEGRA ÚTLIT
OLAY REGENERIST LUMINOUS
GEFUR HÚÐINNI
ÓAÐFINNANLEGAN HÚÐLJÓMA
www.medico.is
Vörn fyrir veturinn
Töfrakremið
frá Arden
8 stunda línan frá Elizabeth Arden
Það eru hátt í hundruð ár síðaan 8 stunda
kremið var framleitt af hinni einu og sönnu
Elizabeth Arden. 8 stunda kremið er gott á
exem, frunsur, þurrkubletti og kuldabletti.
Það verndar húðina einstaklega gegn áhrifum
óblíðra náttúruafla, óskakrem fyrir útivistar-
fólk. Árangur er heilbrigt útlit og það má nota
hvar sem er og eins oft og maður vill.