Fréttatíminn - 07.11.2014, Blaðsíða 61
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | F iskislóð 39
Prjónaðu þig inn í
veturinn!
Höfundurinn, Hélène Magnússon, hefur áður gefið út
bókina Rósaleppaprjón í nýju ljósi. Hún er textílhönnuður
og lögfræðingur að mennt en hefur síðustu ár rekið
hönnunarfyrirtækið Prjónakerlingu og starfað sem leið-
sögumaður með áherslu á prjóna- og gönguferðir um
hálendi Íslands. www. prjonakerling.com
Íslenskt prjón sækir innblástur í prjónafatnað og annan klæðnað og muni
sem varðveittir eru á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Flíkur og munstur
frá seinni hluta 19. aldar og fram á fyrri hluta 20. aldar eru hér færð í nútíma-
búning með því íslenska ullargarni sem framleitt er í dag.
Meðal uppskrifta í bókinni eru sokkar, vettlingar, húfur, treflar, peysur og sjöl.
Hér eru vestfirskir laufaviðarvettlingar, skagfirskir rósavettlingar, dásamleg
útprjónuð sjöl og skotthúfur, togarasokkar, rósaleppar og margt fleira sem
setur íslenska prjónahefð í nýjan og skemmtilegan búning.
ÍSLENSKT
PRJÓN
ÍSLEN
SKT PRJÓ
N Hélène Magnússon
Hélène M
agnússon
25 TILBRIGÐI VIÐ
HEFÐBUNDIÐ
HANDVERK
Íslenskt prjón
Íslensk prjónahefð í nýjum
og skemmtilegum búningi
eftir Hélène Magnússon.
Fjölbreyttar uppskriftir að
flíkum og smærri stykkjum.
Treflaprjón
Einfaldar og skýrar uppskriftir
að treflum, krögum og vefjum
fyrir börn og fullorðna eftir
Guðrúnu S. Magnúsdóttur.
Litlu skrímslin
Alls kyns dýr og furðuverur
prýða 20 falleg prjónasett
með lambhúshettum,
vettlingum, sokkum og
treflum.