Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 47
48 ferðalög Helgin 7.-9. nóvember 2014
Smekklegar
ferðabækur
Það er sennilega óhætt
að fullyrða að ferðamenn
smelli oftar af en þeir sem
sitja heima og varla hefur
dregið úr myndagleðinni
eftir að snjallsímarnir
komu til sögunnar. Mynd-
unum deilum við svo
oft með fólkinu heima á
Facebook eða Instagram.
Steller er hins vegar forrit
fyrir þá sem vilja leggja
meiri metnað í ferðafrétt-
irnar. Hér er hægt að
búa til myndabækur
með stuttum textum í
látlausum umbúðum að
hætti hússins. Þegar
bókin er tilbúin til útgáfu
er hægt að deila henni
á samfélagsmiðlunum,
senda hana í tölvupósti á
vel útvalda eða bara halda
henni fyrir sjálfan sig.
Fyrir einmana
hótelgesti
Sumir eiga erfitt
með að vera einir á
ferð og hafa engan
til að tala við í
morgunmatnum
eða á hótelbarnum.
Forritið HelloTel
kemur þessum
hópi fólks til
bjargar með því að
tengja saman gesti
á ákveðnu hóteli
eða á ákveðnu
svæði. Forrit-
inu svipar því til
stefnumótaappsins
Tinder og hefur
fengið á sig nokkuð
vafasaman stimpil.
Þjórfé og margskiptir
reikningar
Það krefst dálítillar
hugarleikfimi að reikna
út hversu mikið þjórfé
á að gefa í útlöndum og
það er ekki alltaf einfalt
að skipta reikningi jafnt
á milli nokkurra. Appið
Tipulator leysir þessi
tvö vandamál því þar er
hægt að setja inn upp-
hæð reikningins, velja
prósentutölu fyrir þjórfé
og deila niðurstöðunni
niður á fjölda greiðenda
á skemmtilegri hátt en
vasareiknirinn býður
upp á.
Ferðamyndband
Með Cameo í sím-
anum er hægt
að útbúa allt að
tveggja mínútna
löng myndbönd
sem eru samansett
úr sex sekúndna
myndskeiðum. Það
má því gera einum
degi eða jafnvel
heilli ferð skil í
einu vídeói. Not-
andinn getur svo
skreytt verkin með
tónlist, texta og alls
kyns grafík.
Almenningssamgöngur
Það er hægt að spara
peninga og tíma í stór-
borgunum með því að
taka strætó og lestir. Það
getur hins vegar verið
flókið fyrir aðkomufólk
að átta sig á strætó-
leiðum en þar kemur
Citymapper forritið að
góðu gagni og finnur út
úr því hvernig hægt er
að ferðast á milli staða að
hætti heimamanna. Þeir
sem eru hjólandi geta
líka fengið upplýsingar
um bestu leiðina með
þessu forriti. Google
maps hefur líka álíka
góðar upplýsingar en það
er ánægjulegt að geta
stundum notast við eitt-
hvað annað en forrit frá
Google. Enn sem komið
er þá eru aðeins nokkrar
borgir inni í Citymapper.
Ferðagögnin
Í stað þess að
prenta út stað-
festingar frá flug-
félögum, hótelum
og bílaleigum þá
sendir þú þær til
Tripit og þær birt-
ast í framhaldinu
í forritinu í réttri
tímaröð. Allar
tímasetningar og
bókunarnúmer eru
því aðgengilegar á
einum stað.
Ferðalög Farsíminn er góður Félagi á Ferðalögum
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.isSnjallsímaforrit fyrir ferðalagið
Vegabréf,
greiðslukort
og farsími
eru senni-
lega þeir
þrír hlutir
sem enginn
ferðamaður
vill gleyma
heima. Hér
eru nokkur
forrit sem
geta gert
farsímann
að enn þá
betri ferða-
félaga.