Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 45
46 fjölskyldan Helgin 7.-9 nóvember 2014
Óhófleg eftirlátssemi
K onan mín sýnir því lítinn skilning þegar strákurinn er hjá okkur og segir mig láta allt eftir honum. Kannski er eitthvað til í því en hann er nú bara stuttan tíma í einu hjá okkur og ég vil að honum líði vel.
Það hefur ekki talist góð uppeldisaðferð hjá foreldrum að annað bannar og hitt leyfir.
Aðferðin verður ekkert betri þó stjúpforeldri og foreldri sjái um uppeldið. Jafnvel skað-
legri, sé ætlunin að skapa samhenta stjúpfjölskyldu. Stjúpforeldrar hafa yfirleitt ekki
sömu stöðu í augum barna og foreldrar, þess vegna geta orð þeirra vegið léttar reyni þeir
að banna það sem foreldrar leyfa.
Sjaldan sjá börn ástæðu til að setja diskinn í uppþvottavélina eða þakka sérstaklega
fyrir sig ef foreldri skeytir ekki um að kenna þeim almenna kurteisi og reglur heimilis-
ins. Það getur vel verið að barni þyki það ákjósanleg staða í einhvern tíma að um það
gilda aðrar reglur, en til lengdar hefur að áhrif á aðlögun þess í stjúpfjölskyldunni.
Sérstaklega ef þetta sama foreldri er tilbúið til að fylgja reglunum af hörku gagnvart
öðrum fjölskyldumeðlimum.
Er það umhugsunarvert að sjá að mismunun gagnvart börnum í stjúpfjölskyldum
virðist vera nokkuð algeng. Í könnun sem m.a. var lögð fyrir félagsmenn í Félagi
stjúpfjölskyldna voru 45% svarenda mjög/sammála fullyrðingunni „Það gilda aðrar
reglur um börn maka míns á heimilinu en mín börn (getur líka átt við barnabörn)“
og 38% voru mjög/sammála fullyrðingunni „Mér finnst maki minn gera meiri kröfur
til minna barna en sinna eigin barna (getur líka átt við um barnabörn).
Það bætir ekki ástandið ef foreldri setur ofan í við stjúpforeldri sem reynir að
fylgja eftir „samþykktum“ heimilisreglum eða afsakar ókurteisi barnsins með van-
líðan eða það komi svo sjaldan. Það þurfi því ekki að gera svona mikið mál úr hlut-
unum. Hætta er á að heimilismenn skiptist á svipstundu upp í tvær andstæðar fylk-
ingar með tilheyrandi pirringi og vonbrigðum. Í sumum tilvikum beinist pirringur
stjúpforeldrisins gagnvart barninu sem talið er bera ábyrgð á líðan stjúpforeldrisins
og aðstæðunum sem „það“ skapar í hvert sinn sem það kemur. Í stað þess að horfa á
hegðun foreldrisins og samspil parsins.
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að uppalendur í stjúpfjölskyldum eru ekki samstíga
en stundum er það ekkert flóknara en svo að heimilisreglur hafa aldrei verið ræddar. Nú,
svo leggur fólk áherslu á mismunandi hluti í uppeldinu og það getur tekið tíma að finna
út hvaða reglur eigi að hafa að leiðarljósi á heimilinu. Það getur verið smekksatriði hvort
nauðsynlegt sé að börnin gangi alltaf frá leikföngum eftir notkun í þar til gerðar hillur
eða það sé látið duga að þau lagi til í herbergjum sínum einu sinnu í viku. Að kunna þakka
fyrir sig, telst hinsvegar sjaldnast smekksatriði.
Flestir foreldrar, óháð hjúskaparstöðu eða fjölskyldugerð, finna öðru hvoru til sektar-
kenndar gagnvart börnum sínum og telja sig geta gert betur. Við skilnað og þegar farið er
ný sambönd finna margir foreldrar mjög sterkt fyrir henni, meðvitaðir um þau áhrif sem
breytingarnar geta haft á börn þeirra. Óánægja í svip barnanna ristir því djúpt í hjörtu
sumra foreldra sem reyna hvað þeir geta til að má hana af og fá bros í hennar stað. Margir
verða því eftirlátssamir á gjafir og peninga meira en góðu hófi gegnir eða horfa fram hjá
ókurteisi og heimilisreglur fjúka út um gluggann af ótta við valda enn meiri leiðindum í
lífi barna sinna. Oft umbuna foreldrar, venjulega ómeðvitað, fyrir slæma hegðun barna
sinna í stað þess að veita þeim öruggi sem felst í kærleiksríkum reglum.
Láti stjúpforeldrið í ljós óánægju sína er það í sumum tilvikum jafnvel vænt um að þola
ekki barnið. Í viðleitni sinni að „vernda“ barnið gagnvart „slíku“ stjúpforeldri getur for-
eldrið orðið enn eftirgefanlegra. Sé þetta ástand viðvarandi er hætta á miklum pirringi
og reiði á heimilinu. Það þarf því ekki að undra að í sumum tilvikum geti koma barnsins
verið kvíðvænleg.
Óhófleg eftirlátssemi, hvort sem það er í fjármálum eða á öðrum sviðum, er kostnaðar-
söm og gerir hvorki börnum né sambandinu gott. Flest jafna sig á breytingum. Sektar-
kenndina má nýta til góðs, með því læra nýja færni og styrkja sig í foreldrahlutverkinu
– en stundum er líka full ástæða til að spyrja sig: Hvað myndi ég gera ef hún væri ekki til
staðar?“
Óhófleg eftirlátssemi, hvort sem það er í fjármálum
eða á öðrum sviðum, er kostnaðarsöm og gerir hvorki
börnum né sambandinu gott.
Kostnaðarsöm sektarkennd
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Heimilistæki
Heimilistækjadagar 20% afsláttur
Kristniboðsdagurinn
9. nóvember 2014
Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar er á sunnudaginn.
Kristniboð er mikilvægt og hluti af köllun kirkjunnar.
Kristniboð er
• boðun og fræðsla
• kærleiksþjónusta á sviði heilsuverndar og menntunar
• þróunarsamvinna og neyðarhjálp
Vissir Þú að
• rúmlega 40 íslenskir kristniboðar hafa starfað í afríku
og asíu?
• kristniboðarnir gera sér far um að læra tungumál og menn-
ingu fólks?
Kristniboðssambandið hefur
• tekið þátt í að byggja 85 grunn- og framhaldsskóla í Pókot-
héraði í Keníu
• byggt upp heilsugæslu víða í eþíópíu og Keníu
• stutt fjölda þróunarverkefna, s.s. á sviði landbúnaðar
• boðað fagnaðarerindið og stofnað söfnuði, byggt kirkjur
og kennt prestsefnum
• alltaf lagt áherslu á að hjálpa konum og börnum til betra lífs
starf kristniboðsins er víða kynnt í guðsþjónustum dagsins. tekið
er við gjöfum til kristniboðsins í kirkjum landsins. gjafareikningur
0117-26-002800. Kennitala 550269-4149. www.sik.is.
Kristniboðsfélag karla í reykjavík heldur árlega kaffisölu sína
á kristniboðsdaginn sem hefst kl. 14 með helgistund og stendur
til kl. 17 í Kristniboðssalnum, háaleitisbraut 58-60.
í trú, von og kær
lei
ka
KærleiKsþjónustusviðKristniboðssambandið
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu
hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg,
frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með
örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna.
Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða
bara einn og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR