Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 27

Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 27
grunnt á því góða? Dekkin eru einn mikilvægasti öryggisþáttur bílanna okkar, sér í lagi í vetrarakstri. Frá 1. nóvember gerir löggjann auknar kröfur um mynstursdýpt þeirra. Eftir það þurfa hjólbarðar bifreiða að hafa að lágmarki 3,0 mm mynstursdýpt yr vetrartímann. Markmið breytinganna er að auka öryggi þitt og þinna í umferðinni. Þetta snýst nefnilega um svo miklu meira en bílinn. Opið kl. 8 – 17 virka dagawww.adal.is Til að einfalda þér að ganga úr skugga um að dekkin þín uppfylli þessar nýju kröfur bjóðum við þér að nálgast þar til gerða lyklakippu á næstu skoðunarstöð okkar án endurgjalds á meðan birgðir endast. Við tökum vel á móti þér. segir Geir sem hefur ekki tölu á því hversu oft hann hefur hringt á sjúkrabíl fyrir sjálfan sig en segir það hafa komið þó nokkrum sinnum fyrir. Eitt af því sem Geir segir að hafi hjálpað sér mikið var að hafa ung- ur kynnst Snorra Páli Snorrasyni heitnum, lækni og fjölskylduvini. „Hann reyndist mér afskaplega vel og var mér eins og afi. Við þró- uðum með okkur sterka vináttu, þrátt fyrir að 60 ár væru á milli okkar. Eitt af því sem hann kom mér í skilning um var að þó það sé óþægilegt og truflandi að vera með kvíða þá verður kvíða- sjúklingurinn að muna að hann er ekki beint í neinni hættu. Kvíðinn er óþægilegur en ekki hættulegur. Kvíðinn hefur vissulega áhrif á félagsleg samskipti og getur komið fólki í kör ef ekki er unnið með hann. Þess vegna skiptir það kvíðasjúk- linga miklu að hlúa vel að sjálfum sér.“ Í dag segist Geir vera sérstaklega þakklátur fyrir að hafa leitað sér hjálpar. „Ég gafst ekki upp. Það sem bjargaði mér er að ég hugsa vel um mig, ég reyki ekki, ég drekk ekki, ég stunda líkams- rækt og reyni að borða hollan mat. Ég finn að það skiptir máli og ég fann fyrir því að eftir að ég byrjaði að stunda líkamsrækt af kappi þá urðu líkamlegu ein- kennin og þreytan eftir kvíðaköstin minni.“ Þá hefur hann frá árinu 2003 verið í reglulegum viðtölum hjá Ólafi Þór Ævarssyni geðlækni. „Ég var heppinn að kynnast Ólafi. Hann er frábær læknir sem hefur mikla ástríðu fyrir því sem hann er að gera. Það er gott að vera skjólstæð- ingur læknis sem er ekki sama,“ segir Geir sem hefur síðasta ára- tuginn að jafnaði farið um tvisvar sinnum í mánuði til Ólafs. „Þekking Ólafs og kunnátta breytti eiginlega öllu hjá mér til hins betra. Ég er honum þakklátur og ég er líka þakklátur fyrir að eiga góða fjölskyldu. Það eru ekki allir sem eru það heppnir að eiga góða að.“ Geir segist hafa prófað að taka kvíðastillandi lyf en eins og staðan er nú tekur hann þau ekki reglulega heldur á þau þannig að hann geti gripið til þeirra í verstu kvíðaköstunum. Heiður að vinna að þörfu mál- efni Geir finnst hann á góðum stað í lífinu, hann er trúlofaður hinni kólumbísku Adriana Patricia Sanches og er að vinna að fjórðu plötu sinni sem kemur væntanlega út á næsta ári. „Ég er að vinna að plötunni sem kemur til með að heita „Geir Ólafs sings Jóhann G.“ Okkur Jóhanni varð vel til vina áður en hann féll frá og hann lét mér í hendur óútgefið efni sem hann vildi að ég myndi syngja. Ég og unnusta mín, sem býr í Madríd, erum líka dugleg að heimsækja hvort annað.“ Adriana er mennaður markaðsfræðingur og starfar í höfuð- stöðvum Santander bankans sem er einn stærsti banki Spánar. „Hún er virkilega klár kona og það er gaman að hafa kynnst henni. Við eigum vel saman og mér þykir heiður að fá að vera með henni,“ segir Geir en íslenskir fjölmiðlar greindu frá trúlofun þeirra á síð- asta ári. Þá kemur Geir reglulega fram á tón- leikum og syngur hann á árlegum tónleikum forvarna- og fræðslu- sjóðsins ÞúGetur sem haldnir verða í næstu viku. Ólafur, geðlækn- ir Geirs, er einn af stofnendum sjóðsins og segir Geir að sér þyki heiður að fá að vinna að þessu þarfa málefni. „Eitt af markmiðum sjóðsins er að minnka fordóma gegn þeim sem glíma við geðrask- anir. Mig varðar ekki um hvað fólki finnst um að ég sé að berjast við kvíða. Það hafa allir nóg með sitt og þurfa að líta í eigin barm. Allir hafa eitthvað sem þeir þurfa að vinna með hjá sjálfum sér, af hvaða toga sem er, og það hefur enginn efni á að dæma aðra.“ Við erum komin aftur í næsta nágrenni við Borgartún og viðtal- inu lýkur þar sem það hófst, í bíln- um hans Geirs við kaffihúsið. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Hver er Fæddur 14. ágúst 1973. Borinn og barnfæddur í Reykjavík. Trúlofaður hinni kólumbísku Adriana Patricia Sanches. Barnlaus, enn sem komið er. Faðir Geirs var trommuleikari í Sóló, Sextett Óla Ben og Lúdó og Stefáni. Spilaði knattspyrnu sem drengur og fór ungur að hafa áhuga á tónlist. 16 ára leysti hann Stefán Hilmarsson af á tónleikum Sálar- innar á Gauknum. Hefur komið fram á tónleikum í New York, Los Angeles, Moskvu og Róm. Geir hefur sent frá sér þrjár plötur og sú fjórða er í bígerð. Er í óperunámi hjá Kristjáni Jóhannssyni. Hápunktar ferilsins: Að spila djass með goðsögninni Don Randi og samstarfið við Kristján Jóhanns- son stórsöngvara. Geir Ólafsson ? leysi. Þetta var einkasamkvæmi og ég fékk svo mikinn óútskýrðan kvíða að ég fann að mér var um megn að syngja. Sá sem hafði með samkvæmið að gera hafði engan skilning á þessu, var mjög ósáttur og sagði mér bara að harka þetta af mér. Mörgum árum síðar kom þessi sami maður til mín og sagði að sonur sinn hefði átt við alvar- legan kvíða að etja og að nú skildi hann betur hvað ég hefði verið að ganga í gegnum. Þetta var hans leið til að biðjast afsökunar á að hafa farið offari.“ Hef hringt á sjúkrabíl fyrir sjálfan mig Algengast er að þessi óskýrðu kvíðaköst komi á morgnana og segist Geir til að mynda hafa feng- ið eitt slíkt morguninn áður. „Ég var bara að koma á fætur og ætlaði í rólegheitunum að fá mér morgun- mat.“ Hann segir misjafnt hvað hann gerir nákvæmlega í þessum kvíðaköstum og að þau leggist mis illa á hann. „Stundum nær þetta svo miklum tökum á mér að ég hef hringt á sjúkrabíl fyrir sjálfan mig. Þeir koma þá og hlúa að mér,“ Tónleikar í þágu geðsjúkra Forvarna- og fræðslusjóður- inn ÞúGetur hefur frá stofn- un árið 2008 veitt 101 náms- styrk til fólks sem er með eða hefur glímt við geð- sjúkdóm. Markmið sjóðsins eru að vinna gegn for- dómum og er það gert með fræðslu til aðstandenda, námsstyrkjum til geðsjúkra og hvatningaverðlaunum til fagfólks í geðheilbrigðis- þjónustunni. Helsta fjáröflunarleið sjóðsins eru árlegir stór- tónleikar. Næstu tónleikar verða haldnir í Háskóla- bíói miðvikudagskvöldið 12. nóvember. Þeir sem koma fram á tónleikunum gefa vinnu sína en þeirra á meðal eru Geir Ólafs- son og Kristján Jóhanns- son, Amabadama, Sigríður Thorlacius og Ný Dönsk. Verndari tónleikanna er frú Vigdís Finnbogadóttir. Í stjórn ÞúGetur sitja: Ólafur Þór Ævarsson, Siv Frið- leifsdóttir, Pálmi Matthías- son, Sigurður Guðmunds- son og Ragna Árnadóttir. Nánari upplýsingar má finna á ThuGetur.is og á Fa- cebook-síðunni „Þú getur“. Miðasala er hafin á Midi.is. - eh Mig varðar ekki um hvað fólki finnst um að ég sé að berjast við kvíða. Það hafa allir nóg með sitt. 28 viðtal Helgin 10.-12. nóvember 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.