Fréttatíminn - 07.11.2014, Page 29
T ulipop er vörumerki þar sem heillandi persónur eru í forgrunni, líkt og vörumerkin Hello Kitty,
Barbapabbi og Múmínálfarnir,“
segir Signý Kolbeinsdóttir, vöru-
hönnuður og teiknari hjá Tulipop.
Signý stofnaði Tulipop árið 2010
ásamt, vinkonu sinni,
Helgu Árnadóttur sem
sér um viðskiptahlið
fyrirtækisins. Fyrstu
fjárfestarnir komu inn
í fyrirtækið á síðasta
ári sem gerði því kleift
að stækka meira. Nú er
svo komið að vörur Tuli-
pop eru seldar í um 60
verslunum í 8 löndum
utan Íslands og er lögð
sérstök áhersla á Bret-
landsmarkað. „Við erum
mjög ánægðar með þær
viðtökur sem Tulipop
hefur fengið í Bretlandi
en Tulipop hefur fengið
lofsamlega umfjöllun í
breskum fjölmiðlum og
komist að í fjölmörgum
fallegum verslunum. Í
Bretlandi er hefðbund-
inn hluti af markaðs-
setningu á vörum eins
og okkar að senda
sýnishorn til þekktra
einstaklinga, krossa svo
fingur og vonast eftir
jákvæðum viðbrögðum.
Í því samhengi er meðal annars
gaman að segja frá því að við
sendum börnum Stellu McCart-
ney Tulipop vörur og fengum
nýlega myndskreytt þakkarbréf
frá krökkunum til baka þar sem
kemur fram að elsta
dóttir hennar sé með
Mr. Tree lampann
á náttborðinu sínu
og að sonur hennar
elski Fred matar-
stellið sitt. Það er
virkilega hvetjandi að
fá svona viðbrögð,“
segir Helga.
Stækka við sig
Þær segja Tulipop í
raun vera fyrir alla og
því til sönnunar benda
þær á merkingar á kassa
utan um matarstell þar sem
stendur að vörurnar séu fyrir
0-99 ára. „Stærstu aðdáendurnir
eru samt krakkar á aldrinum 3ja
til 12 ára og þeir er líklegastir til
að þekkja nöfnin á öllum persón-
unum,“ segir Signý. Matarstellin
eru framleidd úr melamín plasti og
uppfyllir framleiðslan alla staðla
Evrópusambandsins. „Við leggjum
mikinn metnað í framleiðsluna og
vörurnar eru prófaðar
til að uppfylla skilyrði
sem eru mun þrengri
heldur en gerð eru á Ís-
landi,“ segir hún.
Auk þess að hanna
vörur undir nafninu
Tulipop hafa þær á
undanförn-
um árum
tekið að sér
að framleiða
vörur fyrir
önnur fyrir-
tæki og eru
hinar svoköll-
uðu VÍS-húfur
dæmi um það.
Þetta er fjórða
árið þar sem
trygginga-
félagið VÍS
er í samstarfi
við Tulipop en
viðskiptavinir
í F plús hafa
fengið ókeypis
skínandi húfur
á þjónustuskrif-
stofum VÍS um
land allt. Í ár er einnig
hægt að fá eyrnabönd sem
hafa slegið rækilega í gegn.
Tulipop framleiddi einnig spari-
baukinn Mosa, fyrir MP banka,
fyrir nokkrum árum og er hann
enn seldur til styrktar
UNICEF. „Vegna þess
hversu fjölbreytileg
vörulína Tulipop er
höfum við verið
í samstarfi
við ólíka
fram-
leið-
endur
og
höfum
Börn Stellu McCartney elska Tulipop
Íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop hefur vaxið gríðarlega
á þeim fjórum árum sem það hefur starfað. Nýir fjárfestar
komu inn í fyrirtækið á síðasta ári og nýbúið er að auglýsa eftir
verkefnastjóra. Stofnendur Tulipop, þær Signý Kolbeinsdóttir
og Helga Árnadóttir, lögðu alltaf upp með að selja Tulipop utan
landsteinana og hafa aflað sér góðra tengsla í Bretlandi.
______________________________________________________________
facebook.com/UKinIceland
@UKinIceland
Hver er
Aldur:
36 ára.
MAKi:
Heimir Snorrason
sálfræðingur.
Börn:
Svava, 5 ára, og
Snorri, 10 ára.
MeNNTuN:
B.A. í vöruhönnun
frá Listaháskóla
Íslands.
ÁHugAMÁl:
Hönnun, myndlist,
arkitektúr, tónlist
– öll sköpun í allri
sinni dýrð. Hesta-
mennska, útivist
og ferðalög. Hefur
einnig gaman af
að elda og borða
góðan mat.
Signý
Kolbeinsdóttir
?
Hver er
Aldur:
35 ára.
MAKi:
Ingvi Hrafn Óskars-
son lögmaður.
Börn:
Guðmundur, 2ja
ára, Steinunn, 4
ára og Ingibjörg
(stjúpdóttir), 12
ára.
MeNNTuN:
B.Sc. í tölvunar-
fræði frá HÍ og
MBA frá London
Business School.
ÁHugAMÁl:
Útivera og ferðalög
með fjölskyldunni,
að elda góðan mat
og borða í góðra
vina hópi, spila
tennis og golf þegar
tækifæri gefst, lesa
góða bók og svo
er það auðvitað
vinnan sem er eitt
helsta áhugamálið.
Helga
Árnadóttir
?
komið okkur upp góðum
tengslum. Nokkuð er um að
íslensk fyrirtæki leiti eftir
samstarfi við okkur um fram-
leiðslu og það er
meðal annars
vegna þess sem
við erum nú
að stækka við
okkur og vorum
að auglýsa eftir
verkefnastjóra,“
segir Helga en
ráðningarferlið
er á lokastigi.
Gekk um með
stafrófsplakatið
Nýlega gaf Tulipop út
stafrófsapp sem hægt
er að fá bæði á ensku
og íslensku. Appið
kom til í framhaldi
af því að þær gerðu
stafrófsplaköt sem
slógu óvænt í gegn,
en plakötin er líka
hægt að fá hvort sem
er með íslenska eða
enska stafrófinu. „Við
áttum báðar stelpur
sem voru að byrja að
læra stafina og fannst
sniðugt að gera svona
plaköt. Dóttir Signýjar
var svo heilluð af
plakatinu að hún gekk
með það innrammað
Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir, stofnendur Tulipop, ásamt dætrum sínum, Steinunni,
Svövu og síðan Hönnu Katrínu sem er dóttir sölustjóra Tulipop. Stelpurnar eru allar með húfur
og eyrnabönd frá VÍS. Ljósmyndir/Hari
um allt hús og okkur datt
þá í að gera eitthvað með-
færilegra líka og þá kom
hugmyndin að appinu,“ segir
Helga. Vegna þess hversu
vel appinu hefur verið tekið
stendur til að gera fleiri öpp
þegar fram líða stundir.
Vörur Tulipop fást í helstu
hönnunarbúðum á Íslandi,
auk þess að fást í Fríhöfninni
og völdum búðum Eymunds-
son. „Tulipop hefur verið
svakalega vel tekið á Íslandi
og lykilþáttur í velgengninni
er gott samstarf við okkar
söluaðila. Í dag eru vörur
Tulipop seldar í um 25 versl-
unum um land allt,“ segir
Helga en Tulipop er einnig
með netverslun.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Matarstellin
eru framleidd úr
melamíni og eru vörurnar
prófaðar til að uppfylla
gæðastaðla evrópusambandsins.
30 viðtal Helgin 7.-9. nóvember 2014