Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.11.2014, Qupperneq 43

Fréttatíminn - 07.11.2014, Qupperneq 43
44 bílar Helgin 7.-9. nóvember 2014  ReynsluakstuR Volkswagen e-up Sniðug heimilisgræja Fáðu 20% afslátt af NOKIAN dekkjum og styrktu Bleiku slaufuna um leið Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða. ein öruggustu dekk sem völ er á ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla Bíldshöfða 5a, Rvk Jafnaseli 6, Rvk Dalshrauni 5, Hfj Aðalsímanúmer 515 7190 Opnunartími: Virka daga kl. 8-17 Laugardaga: sjá MAX1.is Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingum MAX1. Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum út nóvember og hluti söluágóða rennur til Krabbameinsfélagsins. SENDUM UM ALLT LAND Flutningur með Flytjanda 500 kr. hvert dekk Knarrarvogi 2, Rvk (ath. ekki dekkjaþjónusta) MAX1 & Nýjasti rafbíllinn frá Volkswagen er bíll fyrir umhverfisvæna borgarbúa. Hann er lítill og nettur, þægilegur í akstri og mengar ekki. Þú kemur ekki miklu í skottið á þessum nýja e-up, en þú getur lagt honum í hvaða stæði sem er. Þ að er sérstök upplifun að keyra þennan pínulitla raf-magnsbíl. Hann er eiginlega eins og hver önnur framlenging á græjum sem eru orðnar hversdags- legar á flestum heimilum í dag. Snjallsími, fartölva, spjaldtölva og rafmagnsbíll. Þegar batteríið í bílnum er að verða búið þá stingur þú honum í samband, annað hvort heima hjá þér eða á hleðslustöð út í bæ. Svo þegar batteríið er full- hlaðið færðu skilaboð frá Car-Net appinu í snjallsímanum um að þú getir keyrt aftur af stað. Þú kemst hvert á land sem er, þangað til það þarf að hlaða hann aftur, eftir um það bil 160 km. Mesta stressið er, líkt og með símann og tölvuna, að verða batt- eríslaus á versta tíma. Í tilfelli bíls- ins gæti það verið akkúrat þegar þú þarft að ná í krakkana í skólann eða mæta til tannlæknis. En þetta er allt spurning um vana. Í raun er best að muna bara eftir því að hlaða á nóttunni, eins og símann og tölvuna, sem er auðvitað löngu orðinn vani. Bíllinn er, eins og fyrr segir, pínulítill, sem þýðir að það kemst ekkert í skottið á honum en líka að það er alltaf hægt að finna stæði. Mér fannst í alla staði þægilegt að skjótast um á þessari græju. Þetta er bíll fyrir umhverfisvæna borgarbúa, sem fara ekki mikið út fyrir malbikið. Eini gallinn er að Reykjavík, ólíkt borgum erlendis, hefur ekki enn lagað sig að rafbíla- væðingunni svo hleðslustöðvar eru enn fáar. Sem getur verið pínu stressandi, þegar dagurinn kallar á mikið skutl með börn og buru. En þess getur nú ekki verið langt að bíða að borgin taki við sér, enda er rafmagn nú töluvert ódýrari og umhverfisvænni kostur en elds- neyti. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Volkswagen e-up Hleðsla og drægNi: Hæghleðsla aC 9 tímar Hæghleðsla aC Wallbox 6 tímar Hraðhleðsla dC 0,5 tímar (80%) Drægni 160 km Hröðun 0-100km 12,4 sek Nú eru 7 hraðhleðslustöðvar á landinu en fleiri eru væntanlegar. Þær eru á ON Bæjarhálsi, BL Sævarhöfða, Smáralind, Fitjum Keflavík, Shell Miklubraut, IKEA Garðabæ og N1 Borgarnesi. Verð: 3.680.000  rafmagnshitaðir og stillanlegir hliðarspeglar  sjálfvirk neyðarbremsa (City emergency Break)  rCd 215 útvarp fyrir geislaspilara og MP3 og 6 hátalarar  „Maps & More“ fullkomin upplýsinga- og aksturstölva ásamt leiðsögukerfi  Bluetooth búnaður fyrir síma og afspilun á tónlist s tyrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) mælist nú mjög hár víða um land vegna eldgoss- ins í Holuhrauni og mengunin virðist ná til allra landshluta, sam- kvæmt spákorti veðurstofu Íslands í dag. Brennisteinsdíoxíð er ein helsta ástæðan fyrir súru regni sem hefur víðtækar afleiðingar. Súrt regn hefur meðal annars í för með sér skemmdir á bílum. „Brennisteinsdíoxíð og súra regnið hefur slæm áhrif á lakk bif- reiða sem hefur því hlutverki að gegna að hlífa bílnum gegn ryði og tæringu auk þess að sjálfsögðu að gera hann fallegri,“ segir Páll Mar Magnússon, framkvæmdastjóri Löðurs. „Það eru nokkrir hlutir sem mega ekki sitja á bifreiðum og má þar nefna auk súra regnsins, rúðuvökva, fuglaskít, trjákvoðu, salt og fleira sem tærir lakk. Einn- ig má tjara ekki sitja á lakkinu þar sem að hún litar og herðir lakkið og gerir það stökkt,“ segir hann. Páll bendir á að silfurlitaðir bílar, sem að öllu jöfnu er hægt að spegla sig í, verða spanskgrænir. „Það er það fyrsta sem menn taka eftir, en í rauninni er öll bifreiðin að ryðga til grunna. Því þarf að halda bílunum hreinum og verja þá fyrir öllu sem getur haft áhrif á útlit þeirra og end- ingu,“ segir hann. Páll segir að það sé mikilvægt að þrífa bílinn með réttu efnunum. „Löður hefur boðið upp á undraefnið Rain-X sem er úðað yfir allan bílinn og býður upp á fullkomna yfirborðs- vörn. Þá erum við einnig með undir- vagnsþvottinn sem er með ryðvarn- arefnum í. Hvort tveggja býr til hjúp til varnar málmum bílsins og heldur honum hreinum og fallegum. Það má ekki gleyma að góð umhirða bíls veitir ekki einungis eiganda hans ánægju heldur stuðlar hún einnig að því að halda verðmæti bílsins sem bestu og hann verði söluvænlegri í endursölu,“ segir Páll. Unnið í samstarfi við Löður Súrt regn hefur slæm áhrif á lakk bifreiða Það er hægt að leggja nýja rafmagnabílnum frá Volkswagen næstum hvar sem er því hann er svo pínulítill, en að sama skapi kemst ekkert í skottið á honum. sem skiptir svo sem ekki öllu máli því billinn er ekki hugsaður til langferða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.