Fréttatíminn - 07.11.2014, Qupperneq 66
Tríó Reykjavíkur.
Haustfagnaður Tríós Reykjavíkur
Haustfagnaður, ókeypis hádegistónleikar Tríós
Reykjavíkur ásamt nemendum úr Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, verð-
ur á Kjarvalsstöðum í dag, föstudag, klukkan
12.15. Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavík-
ur hafa verið í samstarfi um hádegistónleikaröð
á Kjarvalsstöðum síðan 2008.
Tríóið er skipað Guðnýju Guðmundsdóttur
á fiðlu, Gunnari Kvaran á selló og Peter Máté
á píanó. Að þessu sinni fá þau til liðs við sig
nemendur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík og
Listaháskóla Íslands: Heklu Finnsdóttur, Sól-
veigu Vöku Eyþórsdóttur og Herdísi Mjöll Guð-
mundsdóttur á fiðlur auk Ástu Pjetursdóttur
á víólu. Á tónleikunum verður flutt Haustið úr
hinum vinsælu Árstíðum eftir Vivaldi auk stór-
brotins píanótríós eftir Smetana.
Aukasýning á Róðaríi
Leiksýningin Róðarí í
Tjarnarbíói hefur fengið
góðar móttökur og því
hefur verið bætt við
einni aukasýningu, en
hún verður sú síðasta
á leikritinu að þessu
sinni. Sýningin verður á
morgun, laugardaginn 8.
nóvember, klukkan 20.
Fjögur systkini á
miðjum aldri og móðir
þeirra neyðast til að
hittast þegar ein systirin
veikist og þarf á hjálp að
halda. Samheldni er ekki
þeirra sterkasta hlið. Það
er því þrautin þyngri að
þurfa í sameiningu að
ráða fram úr málum.
Fjórar af þekktustu
leikkonum okkar stíga á
svið í Róðaríi eftir nokkurt
hlé frá leikhúsinu, Anna
Kristín Arngrímsdóttir,
Guðbjörg Thoroddsen,
Halldóra Björnsdóttir
og Margrét Guðmunds-
dóttir en auk þeirra leikur
einn karlleikari af yngri
kynslóðinni, Kolbeinn
Arnbjörnsson, í verkinu.
Leikritið er eftir Hrund
Ólafsdóttur. Erling Jó-
hannesson leikstýrir. -jh
Bækur rán Flygenring myndskreytir nýja BjórBók
Verður sybbin af bjór
Rán Flygenring myndskreytir veglega bók um bjór sem komin er út hjá Crymogeu. Rán er bú-
sett í Osló þar sem hún er í meistaranámi. Hún kveðst hafa reynt að gerast bjórnörd við vinnu
bókarinnar en er hrifnari af rauðvíni.
u ndanfarin þrjú ár hef ég nýtt mér þau forréttindi að geta bæði unnið og ferðast
og rekið minn sjálfstæða teiknibiss-
ness upp úr ferðatösku. Nú er ég
semsagt lent tímabundið í Noregi,
þangað sem ég á raunar rætur mínar
að rekja til hálfs,“ segir Rán Flygen-
ring, teiknari og grafískur hönnuður.
Rán myndskreytir nýja bók sem
Höskuldur Sæmundsson og Stefán
Pálsson skrifuðu og fjallar um þeirra
helsta hugðarefni, bjór. Bókin er afar
glæsileg og óhætt er að segja að Rán
setji sitt mark á hana.
Rán er í meistaranámi í hönnun í
Osló en var stödd í rannsóknarferð
í Helsinki í vikunni. Viðtalið fór því
fram í gegnum tölvupóst.
120 litlar bjórsögur
Rán segir að útgefandi bókarinnar
hafi komið að máli við sig í byrjun
árs og sagst vilja gera fallega bjór-
bók. „Ekki með sveittum bjórglös-
um, heldur teiknuðum sveittum bjór-
glösum. Það gleður mig auðvitað
mikið í hvert skipti sem útgefandi
sér tækifærið í að nota teikningu á
þennan hátt, þar sem teikning hefur
möguleikann á að vera virkur hluti
efnis og innihalds en ekki mynd-
skreyting. Ég fékk mjög frjálsar
hendur við að nálgast viðfangsefnið,
en vann stóran hluta efnisins í nánu
samstarfi við Hörð Lárusson, hönn-
uð bókarinnar. Fyrir utan umfang-
ið og fjölda bjóranna var áskorunin
bæði teiknara og hönnuðar kannski
helst sú að halda myndefninu áhuga-
verðu og innihaldsríku í gegnum alla
bókina. Með þetta í huga ákvað ég
að hverfa frá öllum hugmyndum
um að teikna flöskur og miða svo
þekkjanlegir væru, og heldur velja
einkennandi eða áhugavert atriði
úr sögu eða karakter hvers bjórs og
teikna þannig 120 litlar bjórsögur og
-aðstæður. Þannig verður efni bók-
arinnar ekki listi yfir bjórtegundir,
heldur ferðalag í gegnum sögu og
landsvæði. Ég held og vona að þann-
ig eigi bjórbókin erindi við fleiri en
svarna bjóraðdáendur og leiði til að
mynda bindindismenn inn að textum
Stefáns og Höskuldar því þeir eru
stórskemmtilegir, burtséð frá öllum
almennum bjóráhuga.“
Ældi eftir ferð í Bjórskólann
Er einhver mynd í bókinni í sérstöku
uppáhaldi hjá þér? Ég var sjálfur
mjög hrifinn af bjórgufubaðinu við
Anchor Steam Beer…
„Já, vel valið! Ég trúi ekki öðru en
að þetta hljóti að spretta upp um allt
fljótlega. Sjálf held ég töluvert upp á
Móra, litlu hafmeyju með Carlsberg
Pilsner flöskuskeytið og svo kannski
Saison Dupont, uppfinningarinnar
vegna.“
Mér sýndist ég sjá á Facebook að
þú drykkir ekki bjór. Er ekki von-
laust að teikna bjórnörda-bók án þess
að drekka bjór? Kemst maður virki-
lega í réttu stemninguna?
„Góð spurning. Og það er rétt. Ég
er mjög lítið hrifin af bjór. Maður
verður svo fjári sybbinn og útþembd-
ur af því brauði. Ég aðhyllist frekar
rauðvínsdeildina, og er satt að segja
að vona að ég fái einhverntímann að
teikna í rauðvínsbók, en það er annað
mál. Sjálf var ég á báðum áttum hvort
bjórteiknari gæti verið fullgildur
bjórteiknari án þess að drekka hann
líka og gerði þess vegna mitt besta til
að bæta úr því máli. Ég fór til dæmis
í Bjórskólann (ældi því smakki öllu
skömmu eftir heimkomu) og svo
fór ég næstum á hausinn hér í Osló
þegar ég keypti sjö spesjal bjóra í
vínmónópólinu. Upp úr þessu krafsi
hafðist annars vegar kærkomin upp-
götvun á súrbjórum (uppáhalds: Can-
tillon Rose de Gambrinus) og hins-
vegar sú hugmynd um að verða fyrsti
bjórnördinn sem drekkur bara helst
ekki bjór. Miðað við áhuga minn á
bjórbókinni og efni hennar þá er það
alveg mjög hægt.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Rán Flygenring myndskreytir bókina
um bjórinn. Hún hefur áður unnið með
Hugleiki Dagssyni og teiknað myndir
í útibúi Arionbanka, svo eitthvað sé
nefnt. Mynd/Sebastian Ziegler
Lína Langsokkur – HHHH – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Fös 7/11 kl. 18:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 16:00
Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Lau 27/12 kl. 13:00
Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Sun 28/12 kl. 13:00
Sun 9/11 kl. 13:00 21.k. Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Lau 3/1 kl. 13:00
Sun 9/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Sun 4/1 kl. 13:00
Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Lau 10/1 kl. 13:00
Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 11/1 kl. 13:00
Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k.
Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Fös 26/12 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Sun 9/11 kl. 20:30 8.k. Þri 11/11 kl. 20:00 Aukas. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Sýningin 11. nóvember. verður textuð á ensku.
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 7/11 kl. 20:00 19.k. Sun 16/11 kl. 20:00 aukas. Lau 22/11 kl. 20:00 25.k.
Lau 8/11 kl. 20:00 20.k. Þri 18/11 kl. 20:00 Sun 23/11 kl. 20:00 aukas.
Fim 13/11 kl. 20:00 21.k. Mið 19/11 kl. 20:00 Lau 29/11 kl. 20:00 26.k.
Fös 14/11 kl. 20:00 22.k. Fim 20/11 kl. 20:00 aukas.
Lau 15/11 kl. 20:00 23.k. Fös 21/11 kl. 20:00 24.k.
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Gaukar (Nýja sviðið)
Sun 9/11 kl. 20:00 Fim 20/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00
Fös 14/11 kl. 20:00 14.k. Lau 29/11 kl. 20:00
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fim 13/11 kl. 20:00 7.k. Sun 23/11 kl. 20:00 15.k. Lau 6/12 kl. 20:00
Fös 14/11 kl. 20:00 8.k. Fim 27/11 kl. 20:00 16.k. Sun 7/12 kl. 20:00
Lau 15/11 kl. 20:00 9.k. Fös 28/11 kl. 20:00 17.k. Lau 13/12 kl. 20:00
Sun 16/11 kl. 20:00 10.k. Lau 29/11 kl. 20:00 18.k. Lau 13/12 kl. 20:00
Þri 18/11 kl. 20:00 aukas. Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Sun 14/12 kl. 20:00
Mið 19/11 kl. 20:00 11.k. Fim 4/12 kl. 20:00 Fös 19/12 kl. 20:00
Fim 20/11 kl. 20:00 12.k. Fim 4/12 kl. 20:00 Lau 20/12 kl. 20:00
Fös 21/11 kl. 20:00 13.k. Fim 4/12 kl. 20:00
Lau 22/11 kl. 20:00 14.k. Fös 5/12 kl. 20:00
Drepfyndin SÝning sem flæðir beint í æð!
Hamlet litli (Litla sviðið)
Lau 15/11 kl. 17:00 2.k. Sun 16/11 kl. 17:00 aukas. Sun 23/11 kl. 17:00 3.k.
Táknmálstúlkuð sýning 23. nóv kl. 17
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Karitas (Stóra sviðið)
Fös 7/11 kl. 19:30 9.sýn Sun 16/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 28/11 kl. 19:30 18.sýn
Lau 8/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 20/11 kl. 19:30 14.sýn Lau 29/11 kl. 19:30 19.sýn
Fim 13/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 21/11 kl. 19:30 15.sýn Fim 4/12 kl. 19:30 20.sýn
Fös 14/11 kl. 19:30 12.sýn Lau 22/11 kl. 19:30 16.sýn Fös 5/12 kl. 19:30 21.sýn
Lau 15/11 kl. 19:30 13.sýn Fim 27/11 kl. 19:30 17.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 22.sýn
Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu.
Konan við 1000° (Kassinn)
Fös 7/11 kl. 19:30 24.sýn Fim 20/11 kl. 19:30 Aukas. Fim 4/12 kl. 19:30 35.sýn
Lau 8/11 kl. 19:30 25.sýn Fös 21/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 5/12 kl. 19:30 36.sýn
Fim 13/11 kl. 19:30 26.sýn Fim 27/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 37.sýn
Fös 14/11 kl. 19:30 27.sýn Fös 28/11 kl. 19:30 31.sýn
Lau 15/11 kl. 19:30 28.sýn Lau 29/11 kl. 19:30 33.sýn
5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 9/11 kl. 13:00 26.sýn Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 29/11 kl. 11:00 Lau 6/12 kl. 14:30 Sun 14/12 kl. 13:00
Lau 29/11 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 11:00 Sun 14/12 kl. 14:30
Lau 29/11 kl. 14:30 Sun 7/12 kl. 13:00 Lau 20/12 kl. 11:00
Sun 30/11 kl. 11:00 Sun 7/12 kl. 14:30 Lau 20/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 11:00 Lau 20/12 kl. 14:30
Sun 30/11 kl. 14:30 Lau 13/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 11:00
Lau 6/12 kl. 11:00 Lau 13/12 kl. 14:30 Sun 21/12 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 Sun 14/12 kl. 11:00 Sun 21/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu.
Hamskiptin (Stóra sviðið)
Mið 19/11 kl. 19:30 Aukas.
Aðeins ein aukasýning í nóvember.
Ofsi (Kassinn)
Sun 23/11 kl. 19:30 Frums. Mið 26/11 kl. 19:30 2.sýn Mið 3/12 kl. 19:30 4.sýn
Þri 25/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 30/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 7/12 kl. 19:30 5.sýn
Átök sturlungaaldar á leiksviði
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 15/11 kl. 17:00 4.sýn Sun 16/11 kl. 20:00 5.sýn
Sápuópera um hundadagakonung
Fiskabúrið (Kúlan)
Lau 15/11 kl. 14:00 Sun 16/11 kl. 14:00 Lau 22/11 kl. 14:00
Lau 15/11 kl. 16:00 Sun 16/11 kl. 16:00 Lau 22/11 kl. 16:00
Sannkölluð töfrastund fyrir yngstu áhorfendurna.
68 menning Helgin 7.-9. nóvember 2014