Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 2

Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 2
Halla Harðardóttir halla@ frettatiminn.is Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? Nýr meirihluti tekur við í borginni Í Háskólanum í Reykjavík er kennd- ur áfangi í samstarfi við North Eastern University í Boston um sjálfbærni í sjávarútvegi, ferðaþjón- ustu og orkumálum, með áherslu á þá nálgun sem á sér stað á Íslandi. Áfanginn fer fram á einum mánuði með tveimur vikum í kennslu, einni viku í hringferð um landið og loka- viku í lokaverkefni sem nemendur vinna með Íslandsstofu. „Þegar við byrjuðum með þennan kúrs fyrir þremur árum komu fimm nemendur, núna voru þeir átján og á næsta ári komast færri að en vilja,“ segir Kristján Vigfússon, for- stöðumaður MBA námsins í HR. Nemendurnir, sem kynntu í gær niðurstöður ferðarinnar og náms- ins, voru hæstánægðir með allan lærdóminn. „Þau voru mjög hrifin af því hversu sjálfbær fiskistofninn okkar er, en bentu þó jafnframt á að við gætum bætt það hvernig við náum í fiskinn, með því að minnka olíueyðslu og bætt notkun á veiðar- færum. Þau komu líka með athygl- isverða hugmynd fyrir ferðaþjón- ustuna sem gengur út á að bæta hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla í samstarfi við bílaframleiðendur og bjóða ferðamönnum upp á að ferðast um landið á rafmagnsbíl.“ Einn af hápunktum ferðarinnar var ferðin í Þríhnjúka. „Hópurinn vann þar að verkefni síðustu helgi í samfélagslegri sjálfbærni sem sneri að því að bæta og lagfæra göngustíginn upp í Þríhnjúka. Hann var orðinn ansi illa farinn og ferðamenn búnir að vera að brjóta sig þar. Nemarnir unnu þar hörðum höndum allan daginn og fengu svo að launum að síga niður í eldfjallið eftir erfiði dagsins.“ M yndin er tilbúin og okkur líst vel á þau brot sem við höfum séð úr henni,“ segir Sindri Már Finnbogason. Sindri er einn framleiðenda kvikmyndarinnar The Three Dogateers Save Christmas sem frumsýnd verður vestanhafs fyrir jólin. Um er að ræða jólamynd fyrir alla fjölskylduna og í aðalhlutverki er leikarinn Dean Cain. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Superman í þáttunum Lois & Clark: The New Adventures of Super- man. Síðustu ár hefur Cain einbeitt sér að fjölskyldu- myndum, þar sem dýr koma gjarnan við sögu. Auk Sindra eru þeir Georg Holm og Orri Páll Dýra- son úr hljómsveitinni Sigur Rós á meðal framleiðenda. Í hópnum eru sömuleiðis Kári Sturluson, einn um- boðsmanna Sigur Rósar, Andri Freyr Viðarsson út- varpsmaður og mæðginin Helga Olafsson og Kristján Olafsson. Þau bera öll titilinn „Executive Producer“ að Hollywoodsið. „Ég var í fríi í Los Angeles hjá Kristjáni og okkur fannst tilvalið að fara út í kvikmyndabransann,“ segir Sindri léttur í bragði þegar hann er spurður um tilurð þessa verkefnis. „Við fórum á fund með leikstjóranum, Jesse Baget, en hann gerir aðallega „low budget“ hryll- ingsmyndir. Hann var með þrjár hugmyndir að hryll- ingsmyndum sem okkur leist ekki nógu vel á en nefndi svo þessa hundamynd og við sögðum já um leið. Hann ætlaði að gera myndina fyrir lítinn pening en við stung- um upp á að við myndum redda aðeins meiri pening og fá þekkt nafn í aðalhlutverkið,“ segir Sindri. Fljótlega bættust hinir fjárfestarnir í hópinn og boltinn hefur rúllað hratt síðan. „Myndin var kynnt á American Film Market-hátíðinni og fékk fínar við- tökur. Hún komst meðal annars á forsíðu Variety. Nú er búið að selja myndina, henni verður dreift í stórmörk- uðum í Bandaríkjunum og fer í kjölfarið á Netflix og iTunes,“ segir Sindri. Draumurinn er svo að The Three Dogateers Save Christmas verði sýnd í íslenskum kvik- myndahúsum fyrir jólin. Hann vill ekki gefa upp hvað íslensku framleiðendurnir hafi lagt mikla peninga í myndina. Um hvað fjallar myndin? „Hún fjallar um þrjá talandi hunda sem persóna Deans Cain á. Hann skilur þá óvart eftir heima og þeir enda á að lenda í ævintýri... en að lokum bjarga þeir jólunum.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  Sjálfbærni SaMStarf Hr við bandaríSkan HáSkóla Bandarískir nemar lagfæra stíginn að Þríhnjúkum Bandarísku nemarnir lögðu sitt af mörkum í samfélagslegri sjálfbærni og fengu að síga niður í hellinn eftir allt erfiðið.  bíó Strákarnir úr Sigur róS í biSneSS Með SuperMan-leikara Íslendingar framleiða hundamynd í Hollywood Þekktir Íslendingar framleiða fjölskyldumynd í Hollywood þar sem talandi hundar koma við sögu. Í aðalhlutverki er Superman-leikarinn Dean Cain. Draumurinn er að myndin verði sýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi. Nokkrir Íslendingar hafa tekið höndum saman við Superman-leikarann Dean Cain við gerð myndarinnar The Three Dogateers Save Christmas. Frá vinstri eru Georg Holm, Andri Freyr Viðarsson, Orri Páll Dýrason, Sindri Már Finnbogason og Dean Cain. Samsett mynd/Hari Hund- arnir lenda í ævintýri... en að lokum bjarga þeir jólunum. Hafmeyjan aftur í Tjörnina Jón Gnarr borgarstjóri tók í gær formlega á móti höggmyndinni Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundson í Hljómskálagarðinum. Það er verslunarmiðstöðin Smáralind sem færði Reykjavíkurborg styttuna að gjöf. Helgi S. Gunnarsson, stjórnarformaður Smáralindar, afhenti borgarstjóra verkið. Hafmeyjan verður meðal fleiri verka í sér- stökum höggmyndagarði sem komið verður upp í Hljómskálagarðinum til minningar um formæður íslenskrar höggmyndalistar. Á sínum tíma keypti Reykjavíkurborg afsteypu af Hafmeyjunni og var hún afhjúpuð í Reykjavík í ágúst 1959. Miklar umræður voru í fjölmiðlum um styttuna og voru menn á öndverðum meiði. Svo fór að Hafmeyjan var sprengd í loft upp aðfaranótt nýársdags 1960. Nýja afsteypan af Hafmeyjunni hefur staðið í Sumargarðinum við Smáralind frá opnun verslunarmiðstöðvarinnar árið 2001. Nýr meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna í Reykjavík kynnti áherslur sínar og verkaskiptingu í vikunni. Meðal helstu stefnumála er uppbygg- ing 2.500 til 3.000 nýrra íbúða á næstu þremur til fimm árum. Kjör barnafjölskyldna verða bætt og verður fjármagn til skóla- og frístundasviðs aukið um 100 milljónir króna árið 2015 og árið 2016 verða settar 200 milljónir til viðbótar til lækkunar á námsgjöldum í leik- skólum. Systkinaafslættir verða teknir upp og frístundakort hækkað um 5000 krónur á barn. Þá verður Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn efldur, unnið verður að eflingu strætó og komið verður á fót hjólaleigu- kerfi í Reykjavík. Dagur B. Eggertsson mun taka við embætti borgar- stjóra, S. Björn Blöndal verður formaður borgarráðs og Sóley Tómasdóttir mun taka sæti forseta borgarstjórnar. Halldór Auðar Svansson mun gegna formennsku í nýrri fastanefnd í stjórnkerfi borgarinnar, Stjórnkerfis- og lýðræðisnefnd. 2 fréttir Helgin 13.-15. júní 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.