Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 18
A
uðvitað fannst mér
þetta erfitt, rétt eins
og öllum sem lenda
í því að vera sagt
upp starfi sem er
þeim raunverulega allt. Ég er líka
kominn á þann aldur að ég geng
ekkert inn í næsta leikhús,“ segir
stórleikarinn Theódór Júlíusson
um umdeilda uppsögn hans hjá
Borgarleikhúsinu í vor en leik-
hússtjóri dró síðan uppsögnina til
baka.
Það vakti gríðarlega umræðu
þegar eitt fyrsta verk Kristínar
Eysteinsdóttur sem leikhússtjóra
Borgarleikhússins var að segja
upp Theódóri og Hönnu Maríu
Karlsdóttur sem bæði hafa notið
mikilla vinsælda, hafa starfað í
áratugi hjá leikhúsinu og eru auk
þess að nálgast eftirlaunaaldur-
inn. „Þetta kom okkur báðum
algjörlega í opna skjöldu. Sú mikla
athygli sem uppsögnin fékk leiddi
til þess að ég fékk mikinn stuðn-
ing, jafnvel frá ókunnugu fólki sem
hringdi í mig, sendi mér tölvupóst
eða gaf sig á tal við mig á förnum
vegi. Mér fannst athyglin samt
líka stundum óþægileg og ég fór
að loka mig af á tímabili. Ég átti
erfitt með að fara út í búð þar sem
fólk sem ég þekkti ekkert vildi
ræða uppsögnina við mig. Meira
að segja kom fyrir að þegar ég
var að borga fór afgreiðslufólkið á
kassanum að tala um þetta við mig
og öll röðin var stopp á eftir mér.
Auðvitað var fólk að gera þetta til
að styðja mig en stundum var þetta
mjög óþægilegt.“
Lék í opnunarsýningu Borgar-
leikhússins
Theódór tekur á móti mér á heimili
sínu við Þinghólsbraut með útsýni
yfir voginn sem bærinn Kópavogur
er nefndur eftir. Í stofuglugganum
blasir við fjöldi verðlauna sem
Theódór hefur fengið fyrir leik-
listarsigra sína, flest fyrir leik í
myndinni Eldfjall sem vakti heims-
athygli, og eru verðlaunin meðal
annars frá leiklistarhátíðum í Sao
Paulo, Fiji-eyjum og Kasakstan.
Þarna eru líka Edduverðlaun og til-
nefningaskildir vegna Grímuverð-
launanna fyrir leik hans í Borgar-
leikhúsinu. Síðast en síst er það
viðurkenningargripur sem Theó-
dór fékk á dögunum þegar hann
var útnefndur heiðurslistamaður
Kópavogs. „Ég varð gríðarlega
snortinn yfir þeim mikla heiðri og
fylltist auðmýkt að vera kominn
í hóp þeirra sem áður hafa verið
útnefndir, til að mynda stórmenni
á borð við skáldið Jón úr Vör,
leikarann Róbert Arnfinnsson, tón-
listarmanninn Jónas Ingimundar-
son, stórsöngvarann heimsfræga
Kristin Sigmundsson og ég tala nú
ekki um Þórunni Björnsdóttur kór-
stjóra.“ Theódór segir mjög gaman
að eiga alla þessa verðlaunagripi
en virðist eilítið feiminn yfir því að
þeir séu þarna allir til sýnis: „Hún
Guðrún mín stillir þessu öllu upp.“
Þau hjónin fluttu suður árið
1989 þegar Borgarleikhúsið var
opnað eftir langa byggingarsögu
en Theódór hafði þá verið boðið
starf þar sem leikari og lék í opn-
unarsýningu á Stóra sviðinu, „Höll
sumarlandsins“ eftir Laxness í
leikgerð Kjartans Ragnarssonar.
„Ég bara tímdi ekki að sleppa
þessu tækifæri. Það var mikill við-
burður þegar Borgarleikhúsið var
opnað og eflaust verður ekki byggt
viðlíka leikhús næstu hundrað
árin eða svo.“ Stefán Baldursson
var leikstjóri verksins og þekkti
hann Theódór frá störfum sínum
hjá Leikfélagi Akureyrar. Stefán
hafði þar meðal annars leikstýrt
honum í „Fiðlaranum á þak-
inu“ þar sem Theódór lék Tevje
mjólkurpóst, sem einmitt er eitt af
eftirminnilegustu hlutverkum sem
hann fór með á Akureyri, ásamt
hlutverki Búa Árland í „Atómstöð“
Laxness og sjálfs Sölva Helga-
sonar, einnig þekktur sem Sólon
Íslandus, í sýningunni „Ég er gull
og gersemi.“
Bakari og konditor
Theódór er fæddur og uppalinn
á Siglufirði þar sem flest snerist
bókstaflega um síldina. Faðir hans
var þó mikils metinn áhugaleikari
og fylgdist Theódór með honum
allan sinn uppvöxt. Það var þó
aldrei ætlun Theódórs að leggja
leiklistina fyrir sig heldur lærði
hann bakaraiðn og útskrifaðist
með sveinspróf um svipað leyti
og hann giftist sinni heittelskuðu
Guðrúnu Stefánsdóttir, og hafa
þau síðan eignast fjórar dætur.
„Ég var nítján ára og þurfti því að
fá undanþágu frá dómsmálaráð-
herra. Hún var líka nítján en það
var í lagi því á þessum tíma þurftu
stúlkur bara að vera átján ára til að
gifta sig en karlmenn 21s árs.“ Þau
hjónin fluttu síðan til Noregs með
nýfædda dóttur, Hrafnhildi, þar
sem Theódór fór í konditor-nám.
Til stóð að þau flyttu upp frá því
til Reykjavíkur þar sem Theódór
bauðst að taka við nýju bakaríi
sem átti að opna í hinum nýbyggða
Glæsibæ en af varð að hann tók við
Gamla bakaríinu á Ísafirði um
tveggja ára skeið.
„Ég hafði auglýst í blöðunum
eftir starfi í Reykjavík en í mig
hringdi kona frá Ísafirði og þó ég
hefði aldrei áður komið til Ísafjarð-
ar ákvað ég að slá til.“ Theódór tók
síðan við bakaríinu á Siglufirði en
fór brátt að leiðast þófið, hætti sem
bakari og gerðist æskulýðs- og
íþróttafulltrúi Siglufjarðarkaup-
staðar. Meðfram bakaraiðninni
og síðar æskulýðsstarfinu byrjaði
Theódór að taka þátt í uppsetn-
ingum áhugaleikhópa við góðan
orðstír, varð drifkrafturinn í leik-
húslífinu víða og var loks boðið
starf við Leikfélag Akureyrar
sem leikari árið 1978. „Mér fannst
virkilega gaman að starfa þar, við
settum að jafnaði upp 5 verk á ári
Hélt að heiðursnafnbótin væri aprílgabb
Stórleikarinn Theódór
Júlíusson var útnefndur
heiðurslistamaður Kópavogs
á dögunum. Ungur nam hann
bakaraiðn en leiklistin var
aldrei fjarri og tók hann þátt
í fjölda uppsetninga áhuga-
leikhópa. Eftir leiklistarnám
í London var hann ráðinn til
Borgarleikhússins og hefur
starfað þar frá upphafi. Það
kom honum í opna skjöldu
þegar honum var skyndilega
sagt upp í vor og þó sú upp-
sögn hefði verið dregin til
baka ákvað Theódór að leita
sér andlegrar hjálpar á Heilsu-
stofnuninni í Hveragerði. Hann
vonast til að snúa aftur enn
sterkari leikari en áður.
Framhald á næstu opnu
Ég hafði
lokað mig af
því ég vildi
ekki tala við
fólk um upp-
sögnina.
Theódór hefur fengið ófá
verðlaun fyrir leiklist, flest
fyrir leik sinn í kvikmyndinni
Eldfjall sem vakti heimsat-
hygli og eru verðlaunin meðal
annars frá leiklistarhátíðum
í Sao Paulo, Fiji-eyjum og
Kasakstan. Ljósmynd/Hari
18 viðtal Helgin 13.-15. júní 2014