Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Síða 34

Fréttatíminn - 13.06.2014, Síða 34
Þarfaþing á hvert heimili Í Í mínu ungdæmi var til sérkennileg rík- isstofnun sem hét Sölunefnd varnarliðs- eigna. Hún var með forstjóra og eflaust slatta af starfsmönnum en stofnun þessi tók við góssi af Vellinum, sem svo var kall- aður með stóru Vaffi. Varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli fylgdi ómælt magn tækja af öllum stærðum og gerðum, vinnuvélar, heimilistæki og bílar, auk margs annars. Þegar ameríska herliðið hafi nýtt þessar græjur voru þær seldar Íslendingum, lík- lega allar nema flugflotinn. Það var aldrei hægt að kaupa notaða herþotu í Sölunefnd- inni. Þetta var svolítið spennandi staður fyrir græjuóða – eða þá sem vildu ná sér í tæki á góðu verði, eins konar markaðstorg þar sem hægt var að gramsa að vild. Betra var að vísu að hafa það í huga að raftækin voru gerð fyrir 110 volta spennu, að bandarísk- um sið, en ekki 220 volta eins og tíðkast hér á landi. Varnarsvæðið var eyland, út- lent svæði þótt á Miðnesheiði væri. Því þurfti spennubreyti við raftækin ef þau áttu að gagnast í innstungum landsmanna. Fyrir flesta voru bílarnir samt það fýsi- legasta sem rak á fjörur Sölunefndarinnar, ekki síst á þeim tíma þegar þeir voru mun- aður – og jafnvel leyfisskyldir á haftatíma. Pabbi átti stundum amerísk dollaragrín þegar ég var strákur, bíla sem líklega hafa komist í hendur Íslendinga í gegnum Sölunefnd varnarliðseigna. Amerískir bílar voru málið, kraftmiklir kaggar sem báru af rússneskum bílum sem fengust í skiptum fyrir fisk eða vélarvana alþýðuvögnum sem ættaðir voru frá Tékkóslóvakíu og seldust bara vegna þess að þeir voru ódýrir. Boð- ið var í amerísku bílana í Sölunefndinni og þeir óku á brott sem best áttu boðin – jafnvel í blæjubílum sem voru ekkert sér- staklega gerðir fyrir íslenska veðráttu – en flottir engu að síður. Eflaust hafa verktakar þess tíma einnig náð sér í tól fyrir slikk, hvort heldur voru gröfur, vörubílar eða annað. Blómatími Sölunefndarinnar var liðinn þegar ég komst til vits og ára – enda hef ég aldrei átt tryllitæki. Vafalaust hefur það verið freistandi að kíkja á bílauppboð nefndarinnar á fyrstu hjúskaparárum okk- ar hjóna en til þess kom þó ekki. Því réð einkum að við höfðum lítið fé handa á milli og svo hitt, kæmu bílakaup til greina, þá lét minn betri helmingur skynsemina ráða. Bensínhákur með langt húdd og þungt átta strokka hljóð var ekki inni í myndinni. Við það sætti ég mig og það var ekki mikil fórn því í raun hef ég aldrei verið sérstaklega græjusjúkur – og auk þess algerlega hæfi- leikalaus þegar kemur að viðgerðum. Enn er ég þó þeirrar skoðunar að útlitslega hafi bílar náð ákveðnum hátindi þar sem voru þeir amerísku framleiddir á sjötta og sjö- unda áratug liðinnar aldar, þungir Bjúkkar, Lettar, Kræslerar og Kádilljákar, hlaðnir krómi og mjúkum línum fram að hinum sportlega Ford Mustang sem leit fyrst dagsins ljós fyrir fimmtíu árum. Stöku sinnum fóru hönnuðirnir fram úr sjálfum sér, til dæmis þegar bílarnir urðu vængjað- ir – en almennt var þetta blómatími banda- rískra bíla, áður en japanskir sparibaukar og nytsemdarvagnar tóku yfir markaðinn í kjölfar hækkandi orkuverðs og aukinnar umhverfisvitundar. Svo fór Varnarliðið af landi brott og Sölu- nefndinni var lokað. Miðnesheiðin varð íslensk á nýjan leik, miðstöð menntunar og fræðslu. Græjurnar, hvort heldur voru bílar eða önnur tól, komu frá Evrópu og Japan – og síðar Kóreu og Kína. Minna sást af bandarískum innflutningi, helst þá lúxusjeppar og stöku tryllitæki fyrir þá sem skæðasta höfðu fengið bíladelluna. Ég komst ekki lengra í tækjaáhuganum en að eignast borvél og síðar rafknúnar greinaklippur – fyrir utan farsíma. Aum- ara getur það varla orðið. Nú er ég helst að sverma fyrir keðjusög en hef ekki gert það upp við mig hvort hún á að vera rafknúin eða með bensínmótor. Svona sög þarf ég til að grisja tré í sveitinni. Auðvitað væri gaman að hafa aðgang að gráum Ferguson traktor en ég treysti mér ekki til að halda svo gamalli græju gangandi. Önnur tól voru ekki ofarlega í huga mér þar til um liðna helgi. Þá rakst ég á auglýs- ingu frá Ríkiskaupum þar sem vakinn var upp gamall draugur, nefnilega Sölunefnd varnarliðseigna – eða gamalt góss frá henni. Þar voru auglýst til sölu tæki sem slá flest annað út og ættu að geta svalað athafnaþörf græjumanna – og jafnvel að vera til á heimilum sem víðast. Öll höfðu þau verið í eigu Varnarliðsins, að því er sagði í auglýsingunni, en þar mátti sjá snjó- plóga, hjólaskóflur, flugbrautasópa, pall- og vörubíla, gaffallyftara, sanddreifara, gólf- hreinsivélar og ýmislegt fleira. Þetta var ekkert annað en himnasend- ing og sannaði enn og aftur að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Blessað varnarliðsgóssið slær allt annað út. Hver getur ekki hugsað sér að eiga flugbrauta- sóp eða sanddreifara, svo ekki sé minnst á snjóplóg á okkar norðlæga landi. Vera kann að það reynist mér erfitt að sannfæra konuna um þörf okkar litla heimilis fyrir þessi tæki, hafandi það í huga að hún hafði hvorki áhuga á Bjúkka né Rambler þegar Sölunefndin var og hét – sem voru talsvert minni um sig en flugbrautasópari. Slíkt þarfaþing kemst varla fyrir í bílskúrnum. Verra var þó að fram kom í auglýsingunni að sum apparötin væru ekki í brúkunar- hæfu ástandi og að seljandi – íslenska ríkið – bæri ekki ábyrgð á að unnt yrði að skrá bifreiðar og tæki eftir sölu. Það er þá helst að maður skelli sér á gólf- hreinsivél. Sennilega verð ég að eiga vélina sjálfur frekar en að gefa konunni hana í af- mælisgjöf, það gæti misskilist, en notagildi gólfhreinsivélar er ótvírætt – og hún hefur þann kost að vera ekki skráningarskyld. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 04.06.14 - 10.06.14 1 2 5 6 7 8 109 43 Iceland Small World - lítil Sigurgeir Sigurjónsson Piparkökuhúsið Carin Gerhardsen Síðasta orðsending elskhugans Jojo Moyes Frosinn: Þrautir Walt Disney Amma biður að heilsa Fredrik Backman Gæfuspor - gildin í lífinu Gunnar Hersveinn Bragð af ást Dorothy Koomson Öngstræti Louise Doughty Stjörnurnar á HM Illugi Jökulsson Skrifað í stjörnurnar John Green 34 viðhorf Helgin 13.-15. júní 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.