Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 36

Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 36
Yfirdýnur Starlux springdýnurSvampdýnur STARLUX OG MEDILINE HEILSURÚM Stærðir: 80 x 200 cm 90 x 200 cm 100 x 200 cm 120 x 200 cm 140 x 200 cm 160 x 200 cm 180 x 200 cm Dýnur og púðar sniðnir eftir máli eða sniðum. Með eða án áklæðis. Mikið úrval áklæða Dýnudagar 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur Eggjabakkadýnur mýkja og verma rúmið, þykktir 4-6 cm. Tilvaldar í sumarhúsið, ferðabílinn og tjaldvagninn 30% afsláttur Mikið úrval af svefnstólum og sófum í stöðluðum stærðum eða skv. máli 20-40% afsláttur Dýnudagarstanda til lok júní. Sammi úr Jagúar er mikill aðdáandi Brasilíu, hefur dvalist þar og heldur að sjálfsögðu með sínum mönnum á HM. Karnival stemning úr norðri „Við erum að koma“ er HM lagið í ár. Samúel Jón Samúelsson samdi lagið sem átti upphaflega að vera HM lag fyrir ís- lenska landsliðið, en það þurfti að finna því nýtt hlutverk. Unnsteinn úr Retro Stefson syngur lagið. T ónlistarmaðurinn Samúel Jón Samúels-son, eða Sammi eins og flestir þekkja hann, tók sig til og samdi íslenskt HM lag. Hvernig kom það til? „Skarphéðinn Guð- mundsson, dagskrárstjóri RÚV, bað mig bara um það,“ segir Sammi. „Ég hafði að vísu verið búinn að semja lag sem átti að vera HM lag íslenska landsliðsins, þegar bjartsýnin var að bera mann ofurliði síðastliðið haust. Það fór eins og það fór, en lagið var fínt svo þegar RÚV hafði samband þá fann ég því hlutverk.“ Lagið sem nefnist „Við erum að koma“, er óður til lífsins og endurspeglar allt sem Bras- ilía stendur fyrir. Gleði, dans, ást og karnival. „Brasilía er stórkostleg og höfuðborgin Rio de Janeiro er fallegasti staður sem ég hef komið til,“ segir Sammi sem dvaldi þar ásamt eigin- konu sinni í 3 mánuði fyrir 4 árum. Síðan hefur hann verið með svokallaða Brasilíudellu. „Ég vildi gera lag þar sem ég heiðra þetta land og menningu þess. Skilaboðin um að njóta lífsins og skemmta sér og í rauninni færa heiminn til Brasilíu.“ Sammi fylgist alltaf vel með HM, þó hann fylgist ekki mikið með fótbolta almennt. „HM er svo frábær keppni, og stemming í kringum hana. Ég hef alltaf haldið með þeim liðum sem eru svokallaðir „underdogs“. Í síðustu keppni hélt ég með Ghana sem voru og eru með mjög skemmtilegt lið, en í ár er það Brasilía af skiljanlegum ástæðum.“ Fyrst menn á norðurhjara veraldar eru búnir að semja karnival lag um HM í Brasi- líu er Sammi spurður hvort hann hafi sent lagið til FIFA eða Brasilíu með von um við- brögð. „Ég er nú ekki búinn að því ennþá, en það er aldrei að vita. Ég hafði alltaf séð það fyrir mér heyrast þegar bikarinn færi á loft eftir úrslitaleikinn en ætli það sé ekki of seint núna. Lagið væri kjörið fyrir þær aðstæður.“ Lagið „Við erum að koma“ er sungið af söngvara Retro Stefson, Unnsteini Manuel. „Hann er með fullkomna rödd í svona stemningu, og er með rétta grunn- inn í þetta lag.“ Unnsteinn á portúgalska móður og talar portúgölsku sem er einmitt líka töluð í Brasilíu. „Þó svo að lagið sé á íslensku þá finnur maður suðræn áhrif hjá Unnsteini. Svo er aldrei að vita nema þetta verði „hittari“ um allan heim og þá þarf bara að þýða þetta yfir og þá er Unnsteinn á heimavelli.“ Lagið „Við erum að koma“ mun heyrast reglulega á RÚV í tengslum við HM um- fjöllunina sem og á útvarpsstöðvum lands- ins í sumar. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Lagið sem nefnist „Við erum að koma“, er óður til lífsins og endurspeglar allt sem Brasilía stendur fyrir. Gleði, dans, ást og karnival. 36 viðtal Helgin 13.-15. júní 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.