Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 40

Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 40
H vað er þetta hipster og af hverju er ungt fólk svona hel-tekið af því að reyna líta út eins og „hipster“? Á veraldravefnum er hugtakinu hipster lýst sem „stökkbreyttum suðupotti af stíl og hegðun,“ en hvað þýðir það? Íslendingar hafa alltaf verið mjög ginnkeyptir fyrir nýjustu straumum og stefnum og yfirleitt farið útbyrðis í öllu þegar á að tileinka sér eitthvað nýtt. Hver man ekki eftir því þegar pestó og sólþurrkaðir tómatar komust í tísku í matargerð í rétt fyrir aldamótin síðustu? Hvert sem maður fór þá var pestó á boð- stólum, hvort sem það var í veislum eða bara við eldamennskuna heima, þetta var svo nýtt og framandi og þá átti bara að borða þetta oft, helst alltaf. Einnig kom álíka bylgja upp úr aldamótunum síðustu þegar fólk uppgötvaði ruccola-salat, það var ekki hægt að fá neitt annað, meira að segja var fallegt ruccola blað ofan á plokk- fisknum hjá Úlfari á 3 frökkum, eitthvað hefði hann afi minn sagt ef honum hefði verið boðinn plokkfiskur með þessu grasi. Bandarískur uppruni Hipstermenningin á rætur sínar að rekja til stórborgarmenningar í Bandaríkjunum á 5. áratug síðustu aldar, þegar fólk hafði ekki mikið á milli handanna og aðhylltist svarta djassmúsík og lifði fyrir hvern dag í senn. Djasspíanistinn Harry Gibson syngur um hipstera á plötu sinni „Boogie woogie in blue“ og segir það vera fólkið sem vill dansa við heitan djass. Þetta er örugglega sjokkerandi vitneskja fyrir unga íslenska hipsterinn sem hefur von- ast til þess að þetta hafi byrjað í Berlín í kringum 1980, en Ameríkaninn var fyrstur. Menningin hefur svo þróast með tím- anum frá því að vera fátækt ungt fólk yfir í það sem við könnumst við í dag, snyrti- legir ungir menn sem virðast vera með allt á hreinu hvað varðar tónlistaráhuga, list- viðburði og drykkjumenningu, allavegana hér í Reykjavík. Margt er frábrugðið í fari hipstersins frá uppruna hans, meðal annars er það skeggvöxturinn. Í upphafi var enginn með skegg, né hafði áhuga á því. Það þótti ekki snyrtilegt og gaf í skyn að viðkom- andi væri ekki á góðum stað, en í dag er nánast enginn hipster án skeggs, hvort sem það er mikið og voldugt alskegg eða vel snyrt yfirvaraskegg. Enginn er maður með mönnum nema hann fari reglulega til rakara í snyrtingu. Hipsterinn hefur því blandast hippan- um, sem þó var frábrugðinn að því leytinu til að hár hippans fékk að vaxa frjálst, hvort sem var á höfði eða andliti. Hipsterinn er víða í Reykjavík og í raun skiptist hann í tvo hópa. Annar hópurinn eru ungir menn í menntaskóla og háskóla, vinnandi sem barþjónar eða í fataversl- unum sem líta út fyrir að vera vel að máli farnir og í vel launuðum vinnum, því fata- stíll hipstersins er ekki fyrir venjulegan verkamann, en snyrtileikinn er þeim hug- fólginn. Hinn hópurinn eru þeir sem komnir eru út á vinnumarkaðinn og hafa raun- verulega efni á því að halda í við standard- inn, nokkrir vinna á auglýsingastofum, aðrir eru í veitingabransanum, nokkrir skemmtikraftar og svo restin sem vinnur í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Fáir bera jafn mikla ábyrgð á þessari menningu og þeir heiðursmenn, Kor- mákur og Skjöldur, sem reka sína fínu fataverslun með góðum árangri, enda vita ungir menn fátt betra en að klæðast góðum tweed-jakka, nýpússuðum Loake skóm og hlýjum Barbour trefli, en þetta kostar allt saman skildinginn. Menn eins og Jakob Frímann, Halldór Laxness og Mugison eru það sem ungir hipsterar horfa til í stíl og útliti, en fæstir hafa efni á því sem gerir það að verkum að íslenskir hipsterar verða svona blanda af hippum, Gísla á Uppsölum og Benjamín Eiríkssyni fræðimanni. Kannski var Gísli fyrsti íslenski hip- sterinn? Hipsterinn má ekki borða hvað sem er og ekki drekka hvað sem er, annars er hann ekki viðurkenndur í kreðsunni. Þú tapar stigum ef þú ferð á Amercan Style, en safnar mörgum stigum ef þú færð þér krækling á Snaps, alveg burtséð frá því hvort þér finnist kræklingur góður, hann venst. Það má alls ekki drekka einhvern venjulegan innfluttan bjór en ef þú verður þér út um Pabst Blue Ribbon frá Ameríku þá sprengir þú skalann, en í rauninni er hann bara seldur hipsterum og væri hætt að framleiða hann ef það væri ekki fyrir þá. Hipsterinn má heldur ekki hlusta á hvað sem er, það er gríðarleg rýrnun á gildismati að hlusta á Coldplay, en svakalega töff ef þú fílar b-hliðina á plötunum hennar Donnu Summer sem Giorgio Moroder gerði með henni í kringum 1980 og svona mætti lengi telja. Það hlýtur að vera full vinna að fylgja öllum þessum reglugerðum svo maður heltist ekki úr lestinni. Ég ætla allavegana að geyma gamla Mini-Disc Walkman tækið mitt, hipsterinn hlýtur að fara að fá leið á vinyl spilaranum og þá kemur það sér vel að eiga góðan MD spilara. Eitt er það þó sem íslenski nútíma hipsterinn hefur ekki tileinkað sér, en það er jákvæðni gagnvart því sem aðrir hafa áhuga í fatastíl eða tónlistaráhuga. Yfirleitt telja þeir þá sem ganga í flíspeysum eða hlusta á Sigga Hlö ekki merkilega pappíra, jafnvel eru nokkrir það þröngsýnir að tónlistarhátíðin Iceland Airwaves þykir of mikið höfða til almennings, finnst hún ekki vera nógu neðan- jarðar. Þarna er það íslenska neikvæðnin sem hefur hreiðrað um sig í þessum gamla lífsstíl, sem er þvert á við það sem upphafsmenn- irnir tileinkuðu sér. Það er nefnilega alltof algengt að við Íslendingar teljum neikvæðni vera merki um einhverjar gáfur. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Var Gísli á Uppsölum fyrsti íslenski hipsterinn? Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is SMART CONSOLE LEIKJATÖLVA 16.900 Öflug spjald- og leikjatölva, 5” kristaltær HD snertiskjár ÓGRYNNILEIKJANÆR ÓTAKMARKAÐ ÚRVAL AF LEIKJUM OG FORRITUM FYRIR ÞESSA ÓTRÚLEGU GRÆJU NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI 4BLS SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP Te ik ni ng /H ar i 40 herramennska Helgin 13.-15. júní 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.