Fréttatíminn - 13.06.2014, Síða 44
44 bílar Helgin 13.-15. júní 2014
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · ORMSSON.IS · Verslanir um land allt
C800HF
89.900
TILBOÐ
39"
39" LED SJÓNVARP
1920x1080p – Full HD · 4.000.000:1 Dynamic Contrast
· 200Hz endurnýjunartíðni · DVB-T og DVB-C sjónvarpsmótta-
karar · 2xHDMI, SCART, USB, VGA · USB afspilun á
myndböndum, tónlist og ljósmyndum
32" LED SJÓNVARP
G610CF
1920x1080–FULL HD · 4.000.000:1 Dynamic Contrast
· 100Hz endurnýjunartíðni · DVB-T og DVB-C
sjónvarpsmóttakarar · 2xHDMI, SCART, USB
32"
69.900
TILBOÐ
Frábær Haier sjónvörp á HM TILBOÐI
Opið virka daga kl .10-18 / Lokað laugardaga í sumar
Haier er risafyrisrtæki í framleiðslu
á heimilistækjum, sjónvörpum,
spjaldtölvum og snjallsímum.
Veltan er 30 milljarðar US$. Allt eigin
framleiðsla með dreifingu og sölu um allan
heim. Eitt af fremstu fyrirtækjum heims í
vöruþróun og hönnun og talið með átta
framsæknustu fyrirtækja heims á því sviði.
„Haier – The #1
Global Major Appliances Brand
For 5th Consecutive Year.“
Euromonitor International
ReynsluakstuR kia CaRens
Fjölnota
fjölskyldubíll
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM
Kia Carens er rúmgóður fjölskyldubíll með ýmsa eiginleika sem
gleðja jafnt börn sem fullorðna. Færanleg sæti eru það sem
stendur upp úr eftir prufukeyrslu með fjögur börn sem gáfu
bílnum hæstu einkunn, aðallega vegna óvæntra geymsluhólfa
og fellanlegra borða við aftursætin.
k ia Carens er fjölskyldubíll. Það sem hann hefur helst til brunns að bera er það
sem hann er gefinn út fyrir að vera,
hann er rúmgóður og gæddur alls-
konar lúxus. Verandi með sjö sæta
bíl nýtti ég að sjálfsögðu tækifærið
og bauð systur og systursonum í
bíltúr og sundferð. Við vorum sem-
sagt þrjú fullorðin og fjögur börn
í bílnum. Algjörlega frábært að
geta ferðast öll saman í einum bíl
en eftir að hafa fullnýtt sætin þá
var reyndar ekkert pláss eftir fyr-
ir nokkurn skapaðan hlut svo all-
ar sundtöskurnar þurftu að liggja
ofan á farþegunum. Svo já, hann er
rúmgóður, þangað til þú fullnýtir
sætin, þá verður hann ansi þröng-
ur. Ég myndi því segja að þetta
væri frábær borgarbíll fyrir fimm
manna fjölskyldu sem er mikið í því
að skutlast með vini barnanna eða
á jafnvel einn ungling sem nennir
bara stundum að koma með.
Eins og að ferðast í flugvél
Talandi um lúxus þá er einna helst
hægt að nefna bakkmyndavél og
bakkskynjara, rafstýrða og upp-
hitaða baksýnisspegla, hita í öll-
um sætum auk stýris, og kastara
með beygjuskynjara svo eitthvað
sé nefnt. Persónulega finnst mér út
í hött að hafa bakkmyndavél í bíl.
Flest okkar sem kunnum að keyra
áfram og aftur á bak eigum örugg-
lega erfitt með að venjast því að
bakka í gegnum myndavél svo ég
sé hreinlega ekki tilganginn.
Flestir rafstýrðir eiginleikar
glöddu börnin mín meira en mig
sjálfa og glöddu þau reyndar svo
mikið að þeim fannst þetta flottasti
bíll í heimi. Þar koma allskonar
geymsluleynihólf auk fellanlegra
borða með glasahaldara við aftur-
sætin sterk inn enda minna þau
frekar á ferðalag í flugvél en bíl.
Rafstýrðu útispeglarnir vöktu líka
meiri kátínu hjá þeim en mér en ég
viðurkenni að hiti í stýri gæti glatt
fleiri en bara barnshjörtun á köld-
um vetrarmorgnum. Annar góður
Fimm þægileg sæti, plús 2
aukasæti
Öll aftursæti færanleg
Þungi í stýri stillanlegur
Sparneytinn
Ekki svo gott útsýni
Þröngur þegar hann
er fullsetinn
Helstu upplýsingar
KIA Carens
Sjálfskiptur, 5 dyra
Vél dísil
Hestöfl 169
Eyðsla á
sjálfskiptum dísilbíl
6 l/100 km.
Co2 158 gr/km
Lengd: 4.525 m
Breidd 1.805 m
Hæð: 1.610 m
Farangursrými: 492 m³
Verð frá 5.250.777
kostur við stýrið er að þunginn í því er
stillanlegur. Hægt er að velja milli þess
að hafa bílinn léttan í stýri, meðallétt-
an eða þungan. Þar sem mjög snöggar
hreyfingar í bíl gera mig bílveika fannst
mér góður kostur að geta haft þennan
glænýja fjölskyldubíl jafn þungan í stýri
og gamla jeppann minn.
Færanleg sæti
Helsti kostur þessa bíls eru sætin. Það
eru eiginlega þau sem gera þennan bíl
að einum besta fjölskyldubíl sem ég hef
prófað. Aftursætin þrjú eru öll jafn stór,
rúma öll barnastóla og eru þar að auki
öll færanleg. Það er því hægt að leika sér
með rýmið með því að stilla sætin og jafn-
vel taka þau út. Ef fjórir eru að ferðast þá
er þetta virkilega góður kostur sem gerir
bílinn enn rúmbetri en hann þegar er.
Þetta er heldur ekki síðri kostur fyrir for-
eldra án barna sinna sem þurfa að flytja
dót, fara ein á skíði og jafnvel bara sofa
í skottinu. Sem sagt, mjög fjölnota bíll.
Öflugir High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið?