Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 46
46 ferðalög Helgin 13.-15. júní 2014  gjaldmiðlar Krónan hefur styrKst K rónan hefur styrkst nokkuð frá því í fyrra í samanburði við flesta gjaldmiðla. Í sumum tilvikum er munurinn á annan tug prósenta og það munar um minna fyrir íslenskan launa- mann í utanlandsferð. Oftast er mis- munurinn þó nokkur prósentustig okkur í vil en þeir sem skipta krónum yfir í pund þurfa að borga meira. Gengið er þó vissulega langt frá því að vera jafn hagstætt og það var fyrir hrun en þó má reyna að horfa á björtu hlið- arnar. Einn ókeypis dagur Sá sem leggur leið sína til Kanada í dag borgar um 11 prósent minna fyrir uppi- haldið í samanburði við síðasta ár. Gengi kanadíska dollarans hefur nefnilega lækkað um nærri þrettán prósent og þar sem verðbólgan þar í landi er lág skilar gengismunurinn sér nær allur í vasa ís- lenska ferðamannsins. Það má því segja að túristi sem eyðir 25 þúsund krónum á dag í tíu daga Kanadareisu fái síðasta daginn frían. Þeir sem halda sig Bandaríkjunum borga aðeins minna í samanburði við síðasta ár því þarlendi dollarinn hefur lækkað um rúm sex prósent en á móti kemur að verðlagið hefur hækkað um nærri tvö prósent. Mun ódýrara víðar Af þeim löndum sem flogið er beint til frá Keflavík þá hefur verðlagið í Kanada tekið jákvæðustu breytingunum í ís- lenskum krónum talið. Tyrkneska líran og rússneska rúblan hafa reyndar misst meira af virði sínu en kanadíski dollarinn en verðbólgan í þessum löndum hefur verið há undanfarið ár og hún étur upp um helminginn af gengismuninum. Þrátt fyrir það er mun ódýrara að vera íslensk- ur ferðamaður í þessum löndum í sumar en það var í fyrra. Þannig kostar vikudvöl á miðlungshóteli í Sankti Pétursborg um tíu þúsund krónum minna í dag en fyrir ári síðan. Frekar Svíþjóð og Noregur en Danmörk Á evrusvæðinu hefur verðlagið eiginlega staðið í stað síðastliðna mánuði og gengi evrunar lækkað um 3,5 prósent. Það er því aðeins ódýrara að fara þar um í dag en í fyrra. Flugsamgöngur milli Íslands og Skandinavíu eru góðar allt árið um kring og þangað fljúga margir frá Keflavík. Eins og staðan er í dag þá hefur hagur okkar vænkast meira í Svíþjóð og Noregi en í Danmörku. Það fæst nefnilega um 7 til 10 prósent meira í þessum löndum í dag á meðan danska krónan fylgir evrunni. Breska pundið er hins vegar einn fárra gjaldmiðla sem hefur styrkst sig síðustu 12 mánuði í samanburði við íslensku krónuna og með teknu tilliti til verðbólgu þá þarf að borga um 3 prósent meira fyrir hlutina þar í landi í dag miðað við júní í fyrra. Gengið er með íslenskum túristum í dag Í þessum löndum færðu núna meira fyrir íslensku krónurnar en í fyrra. Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Með góðum vilja má reikna það út að það sé sérstaklega hagstætt að ferðast til Kanada í ár. Það er um tíu prósent ódýrara, íslenskum krónum talið, að gera sér glaðan dag í Osló í dag en það var fyrir akkúrat ári síðan. Það má því segja að túristi sem eyðir 25 þúsund krónum á dag í tíu daga Kanada­ reisu fái síðasta dag­ inn frían. 2 0 1 4 00000 w w w . v e i d i k o r t i d . i s Eitt kort 36 vötn 6.900 kr FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ 2 0 1 4 Skráning han á skrifstofu Jónsmessuhátíð Útivistar 22.-24. júní Bókun á skrifstofu í síma 562 1000 eða á www.utivist.is Upplifðu ÚtivistargleðiUpplifðu ÚtivistargleðiJónsmessuhátíð Útivistar 20.-22. júní Skráning fi á skrifstofu krif t f í í w.utivist.is Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.