Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 66
Breska hljómsveitin The XX er mörgum landsmönnum kunn, enda orðin eitt stærsta nafnið í tónlistarheiminum í dag. Sveitin er að undirbúa upptökur á þriðju breiðskífu sinni og fyrirhugað er að taka upp hér á Íslandi, sem og í London og París. Fyrri plötur sveitarinnar, XX sem kom út árið 2009 og The Coexist frá 2012 hlutu einróma lof gagnrýnenda og var fyrsta platan kjörin sú besta á árinu 2009 af hinu virta dagblaði Guardian, svo það má með sanni segja að það sé beðið eftir nýju plötunnni með mikilli eftirvæntingu. Reykjavík hefur í gegnum tíðina laðað að sér marga tónlistarmenn sem vilja taka upp tónlist í ró og næði fjarri skarkala stórborga og má þar helst nefna listamenn eins og Blur, Feist, Bonnie Prince Billy og The Magic Numbers svo ein- hver nöfn séu nefnd. Einnig tók þýska söngkonan Nena hér upp efni fyrir um það bil tveimur árum en hún er hvað þekktust fyrir smellinn 99 Luftballoons sem kom út 1983. Ekki hefur fengist staðfest í hvaða hljóðveri í Reykjavík upp- tökurnar fara fram, en það eru nokkur sem koma til greina, og þykir líklegast að sveitin muni annaðhvort hreiðra um sig í Sund- lauginni eða Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar. Þeir sem þekkja til eru þó þögulir sem gröfin enda er mikilvægt fyrir sveitina að fá næði til þess að vinna, til þess er nú leikurinn gerður. -hf The XX tekur upp á Íslandi The XX er væntanleg hingað til lands til að taka upp nýja plötu. Stebbi og Eyfi eru ekki ókunnir fjölmiðlum en þeir róa samt á ný mið við þátta- stjórnun á ÍNN. Ljós- mynd/Hari  Sjónvarp TónliSTarþæTTir á Ínn hafa hloTið verðSkuldaða aThygli þ að þekkja allir þá félaga Stefán Hilm-arsson og Eyjólf Kristjánsson, og margir undir nafninu Stebbi og Eyfi. Þessir vinir urðu á einni kvöldstund í Róm, árið 1995, dáðustu söngvarar þjóðarinnar þegar þeir sungu drauminn um Nínu og hafa verið órjúfanlegur partur af tónlistar- lífi Íslendinga allar götur síðan. Á dögunum brugðu þeir sér þó í ný hlutverk þegar þeir birtust á sjónvarpsskjám landsmanna og þátturinn Kling Klang hóf göngu sína á sjón- varpsstöðinni ÍNN, en hvernig kom það til? „Nýr sjónvarpsstjóri, Guðmundur Örn, fór þess einfaldlega á leit við okkur gera nokkra tónlistarþætti og við létum til leiðast. Við fengum alveg frjálsar hendur og ákváðum strax að horfa aðallega til fortíðar, spjalla við kappa sem lagt hafa eitt og annað af mörk- um til bransans, en eru ekki endilega mikið í sviðsljósinu hin seinni ár. Við skiptum með okkur verkum, ég geri handrit að þáttunum, undirbý viðtölin, grúska í heimildum og finn til og útbý gamalt myndefni. Eyfi er svo meira í því að taka viðtölin og sér auk þess alveg um spurningakeppnina, enda annálað spurningaljón.“ Stefán segir þá félaga vera mikla áhuga- menn um tónlistina og hafa þeir báðir horft á ógrynni þátta og mynda um kollega sína, innlenda sem og erlenda, en þó hafi þeir ekki horft í neina sérstaka átt þegar leitað var að fyrirmynd fyrir þáttinn. „Ekki get ég sagt það, við horfðum ekkert til annarra þátta, óðum bara nokkuð blint í sjóinn. Það versta er þó að þátturinn er það stuttur, að langt er frá því að tími gefist til að framkvæma allar hugmyndir.“ Þeir eru ekki ókunnir dagskrárgerð og báðir með mikla reynslu af því að vera fyrir framan myndavélina, verandi tónlistarmenn á Íslandi. „Þetta er ágætt í litlum skömmtum sem þessum. Við erum ekki alveg óvanir sjónvarpi, þótt ekki höfum við fengist mikið við þáttagerð. Eyfi hefur samt nokkra reynslu af útvarpi og ég sá ungur og blautur á bak við eyrun um sjónvarpsþætti á RÚV fyrir rúmlega aldarfjórðungi,“ segir Stefán sem stýrði um tíma sjónvarpsþáttunum „Rokkararnir geta ekki þagnað“. „Það tók svolítinn tíma að finna nafn á þáttinn, við rissuðum upp allmargar tillögur og þessi varð loks fyrir valinu, þótti hæfilega „væld“, en hafa snyrtilega tónlistarteng- ingu,“ segir Stefán og vitnar þar í orð Tómas- ar M. Tómassonar, bassaleikara Stuðmanna, sem er einn viðmælenda þáttarins. Nafnið er hið sama og á þekktu lagi Dáta frá sjöunda áratugnum. Eru Stebbi og Eyfi komnir til að vera í ís- lensku sjónvarpi? „Við gerum okkur engar grillur um ís- lenska heimsfrægð á þáttagerðarsviðinu, ætlum bara að klára þessu snörpu syrpu. Þetta hefur verið gaman, en töluverð vinna og yfirlega, einkum er undirbúningur og samsetning tímafrek. Sér í lagi er erfitt að klippa til og kasta út efni vegna tímaskorts. Maður getur ímyndað sér hvernig kvik- myndagerðarmönnum hlýtur að líða þegar þeir ganga frá myndum sínum og blóði drif- inn afskurðurinn lendir óbættur í tölvurusla- fötunni. Þetta verða nú bara fjórir þættir í fyrstu, svo sjáum við bara til með framhaldið, það er alveg óráðið,“ segir þáttagerðarmaður- inn Stefán Hilmarsson. Síðasti þátturinn af Kling klang verður á dagskrá ÍNN í dag, föstudaginn 13. júní og aðalgestur þáttarins verður tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Stebbi og Eyfi á ÍNN Félagarnir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson hafa stýrt tónlistarþættinum Kling klang á ÍNN á undanförnum vikum, en telja þó ekki líklegt að um nýtt ævistarf sé að ræða og gera sér engar grillur um heimsfrægð á skjánum. Það tók svolítinn tíma að finna nafn á þátt- inn, við rissuðum upp all- margar tillögur og þessi varð loks fyrir val- inu, þótti hæfilega „væld“ Alexandra Rut býður ísáhuga- fólki í heimsókn til Paradísar á Njálsgötu. Ljós- mynd/Hari  TónliST þekkTir TónliSTarmenn Sækja landið heim Fór í ísskóla á Ítalíu „Okkur fannst vanta alvöru ísbúð hérna í mið- bænum,“ segir Alexandra Rut Sólbjartsdóttir. Alexandra Rut undirbýr opnun ísbúðarinnar Para- dísar á Njálsgötu. Paradís verður við hlið söluturnsins Drekans og stefnt er því að opna dyrnar fyrir við- skiptavinum í næstu viku, fimmtudaginn 19. júní. Ár er nú liðið síðan ísbúðin Valdís var opnuð úti á Grandagarði og hefur hún slegið í gegn. Sannað- ist þar að Íslendingar voru meira en tilbúnir að prófa eitthvað annað en mjólk- urís í brauðformi með dýfu. Í Paradís verður einmitt boðið upp á ítalskan ís. Alexandra segist alltaf hafa verið áhugamann- eskja um ís. „Mig langaði að læra þetta frá grunni þannig að ég fór til Ítalíu í skóla og lærði þar að búa til ekta, ítalskan ís. Þetta var tveggja vikna námskeið og svo er hægt að bæta meiru við seinna,“ segir hún. Þegar útsendara Fréttatímans bar að garði í vikunni var allt á rúi og stúi í ísbúðinni en Alexandra var bjartsýn á að ná að opna í næstu viku. Ísgerðin er alla vega hafin og lofar góðu. „Já, ég er orðin rosa spennt að opna og koma þessu í gang.“ -hdm fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420 Heimilistæki Síðustu misseri hafa vefverslanir heldur betur færst í aukana. Vefinn fylla margar spennandi búðir sem selja sniðugar vörur sem aðeins er hægt að nálgast á netinu. Nú hafa nokkrar þessara versl- ana tekið sig saman um að opna markað og leyfa þannig forvitnum að handleika úrvalið. Það eru vefverslanirnar Andar- unginn.is, EsjaDekor.is, nola.is, petit. is og snúran.is sem verða á staðnum til að kynna og selja vörur sínar. Úrvalið er fjölbreytt, allt frá barnafötum, leik- föngum og húðkremum til hönnunarvöru sem á að fegra heimilið. Markaðurinn verður á laugardaginn, 14. júní, frá klukkan 12 til 16 á KEX Hostel, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík. Pop-Up markaður á Kex Hostel 66 dægurmál Helgin 13.-15. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.