Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 10
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
S íðan í sumar hefur Reykjavík verið þátttakandi í verkefninu Intercultural Cities, eða fjölmenn-ingarborgir. Við fengum hingað fulltrúa frá
Evrópuráðinu í október til að hjálpa okkur að móta
heildstæða fjölmenningarstefnu. Þessir fulltrúar
hittu sérfræðinga frá einkageiranum og sviðsstjóra
og embættismenn frá borginni og fóru yfir það í sam-
einingu hvernig málefnum innflytjenda er háttað í
borginni,“ segir Jóna Vigdís Kristjánsdóttir, verkefna-
stjóri hjá mannréttindastofu borgarinnar. „Þingið,
sem nú er haldið í þriðja sinn, er hluti af þessari vinnu
og hjálpar okkur að skapa umræðu um málefni þeirra
13.000 innflytjenda sem búa í Reykjavík.“
Lítið um fjölmenningu í fjölmiðlum
Í niðurstöðum fjölmenningarþingsins frá því í fyrra
kom meðal annars fram að innflytjendur óska al-
mennt eftir betri upplýsingum á ensku og/eða pólsku
um skólamál. Foreldrum leikskóla-og grunnskóla-
barna finnst þeir ekki vera nógu vel upplýstir um líðan
barna sinna í skólanum og það að geta ekki aðstoðað
börnin við heimanámið veldur meðal annars streitu
og áhyggjum.
Einnig kom fram að íþróttafélög og aðrir sem
standa fyrir tómstundastarfi með börnum eigi að
kynna starfsemi sína betur fyrir foreldrum barna
af erlendum uppruna og það eigi ekki bara að vera
á hendi borgarinnar að gera það. Innflytjendur á
þinginu ræddu einnig um að lítið væri fjallað um fjöl-
menningu í fjölmiðlum.
9,5% eru innflytjendur
Á Íslandi eru innflytjendur 27.447 manns ( 1. janúar
2014) eða um 8,4% mannfjöldans. Annarri kynslóð
innflytjenda hefur fjölgað á milli ára, voru 3204 í
fyrra en eru nú 3532. Samanlagt er fyrsta og önnur
kynslóð innflytjenda því 9,5% af mannfjöldanum.
Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en
innflytjendum, hefur einnig fjölgað á milli ára, voru
6,4% mannfjöldans í fyrra en eru nú 6,5%. Pólverjar
eru lang fjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi
en í janúar í fyrra var 10.141 einstaklingur uppruninn
í Póllandi, eða um 36,9% allra innflytjenda. Þar á eftir
koma innflytjendur frá Filippseyjum og Litháen, 5,2%
allra innflytjenda frá hvoru þessara landa.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ármann
Kr. Ólafs-
son,
bæjar-
stjóri
Kópavogs.
SveitarStjórnarmál lækkandi Skuldahlutfall kópavogS
Kjarasamningar hafa áhrif á rekstur bæjarins
Fjárhagsáætlun Kópavogs-
bæjar fyrir árið 2015 var lögð
fram til fyrri umræðu í bæjar-
stjórn Kópavogs fyrr í vik-
unni. Þá var einnig lögð fram
langtímaáætlun fyrir tímabil-
ið 2016 til 2018. Í áætluninni
kemur fram að A-hluti bæjar-
sjóðs verður rekinn með 106
milljón króna rekstrarafgangi
á næsta ári. Sé niðurstaða
samstæðu Kópavogsbæjar
skoðuð verður hún rekin með
357 milljón króna rekstraraf-
gangi á næsta ári, samkvæmt
fjárhagsáætluninni.
„Fjárhagsáætlunin sýnir að
staða Kópavogs er sterk. Hins
vegar er ljóst, ef þessi áætlun
er borin saman við þá síðustu,
að þeir kjarasamningar sem
hafa verið gerðir á árinu, við
fjölmörg stéttarfélög, koma
til með að hafa veruleg áhrif á
reksturinn á næsta ári. Engu
að síður er rekstrarafgangur í
heildina séð vel við unandi. Þá
er ekkert gert ráð fyrir óreglu-
legum tekjum eins og sölu
lóða sem að öllum líkindum
mun bæta stöðuna enn frekar.
Þá heldur skuldahlutfall
áfram að lækka sem er mjög
jákvætt,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarstjóri Kópa-
vogsbæjar.
Gangi áætlunin eftir
verður skuldahlutfall bæjarins
áramótin 2015-2016 166,6%,
að því er fram kemur í til-
kynningu bæjarins. Gert er
ráð fyrir að Kópavogsbær
komist undir 150% viðmið árið
2017. Um síðustu áramót var
skuldahlutfallið 185,1%. -jh
reykjavík „konferencja WielokulturoWa miaSta“ í ráðhúSinu
Fjölmenningarþing verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur frá klukkan 10 til 15 á morgun, laugardag. Á þinginu verður kosið í
fjölmenningarráð Reykjavíkur og hafa allir skráðir þingfulltrúar kosningarétt. Í ráðinu verða 5 fulltrúar, 3 verða kosnir og
2 tilnefndir af borgarstjórn. Kosning í ráðið stendur frá klukkan 10 til 15. Úrslit kosninganna verða svo kynnt mánudaginn 17.
nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur, klukkan 15.
Í Reykjavík búa 13.000 innflytjendur og langstærstur hluti þeirra eru Pólverjar. Á laugardaginn
verður haldið fjölmenningarþing í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem þessum stóra hópi fólks gefst
tækifæri á að koma skoðunum sínum á framfæri. Þingið, sem er nú haldið í þriðja sinn, er liður
í vinnu borgarinnar við að móta fjölmenningarstefnu. Í fyrra kom meðal annars fram að sam-
bandsleysi við opinberar stofnanir borgarinnar getur valdið innflytjendum streitu og áhyggjum.
Frá Fjölmenn-
ingargöngu
2013.
Farvegur fyrir raddir
13 þúsund innflytjendakynntu þér málið!SIÐMENNTw w w . s i d m e n n t . i s
Málsvari veraldlegs samfélags
Siðmennt
Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is
Láu hjartað ráða
Svalandi engiferdrykkur
alveg eir mínu höfði
enda er engifer í miklu
uppáhaldi. Drykkurinn
er gerður úr fyrsta flokks
lífrænu hráefni, meira
að seg ja vatnið hefur
lífræna vottun.
10 fréttir Helgin 14.-16. nóvember 2014