Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 58
58 fjölskyldan Helgin 14.-16. nóvember 2014
Birting eineltis er einfaldlega niðurlæging
E inelti er stórt orð. Það felur líka í sér risavaxinn vanda fyrir alla sem að koma, bæði svonefnda gerendur og þolendur og alla þar í kring. Síðast en ekki síst hefur einelti skelfilegar afleiðingar fyrir okkur öll því að hvert það samfélag
sem leyfir rótum eineltis að nærast, mun smátt og smátt afsiðast þegar einstaklingar
og hópar eru sviptir mannlegri reisn og enginn veit hver verður næstur á bálköstinn.
Rætur eineltis liggja í ótta þar sem sókn er besta vörnin, böggum aðra meira en þeir
bögga okkur, fáfræði og fordómar þar sem ekki er leitað bestu upplýsinga því að þá gæt-
um við þurft að skipta um skoðun, öfund því að grasið gæti verið grænna hinu megin við
lækinn en enginn leggur á sig að fara yfir hann, fullkominn skortur á virðingu fyrir öllum
sem skera sig á einhvern hátt úr tilteknum fjölda fólks á tilteknum stað við tilteknar að-
stæður. Þar með sækjum við virðingu fyrir okkur sjálf með að taka hana frá öðrum.
Rétt eins og virðing sé fágæt gæði sem auðgi virðingarþjófinn og skilji aðra eftir
snauðari en nokkru sinni fyrri.
Birting eineltis er einfaldlega niðurlæging. Það er niðurlæging þegar einstaklingur
eða hópur er beittur áreitni eða útskúfun í formi niðrandi ummæla og sögusagna eða
síendurtekinnar stríðni þar sem öllu gamni fylgir verulega alvara. Það er niðurlæg-
ing þegar hermt er eftir fórnarlambinu á neikvæðan hátt eða hótanir og kúgun eru
í gangi. Það er niðurlæging þegar einhver er beittur andlegu og líkamlegu ofbeldi,
fær ekki að „vera með“ og er haldið utan við hópinn.
Niðurlægingin elur af sér líf í ótta. Þar með er gleðin tekin af lífi. Sú aðgerð er
alvarlegur glæpur því að gleðin nærir sjálfstraust og sjálfstrú gagnvart viðfangs-
efnum tilverunnar og gleðin leiðir af sér áhuga, bjartsýni og tiltrú. Málið er nú ekki
flóknara en þetta.
Í upphafi þessa pistils sá ég fyrir mér hrindingar og ofbeldi á skólalóð, feimið barn
sem kvíðir fyrir að fara í skólann eða barnahóp í hverfinu þar sem einhver er skilinn
útundan reglubundið eftir ósýnilegu niðurlægingarkerfi. Ég sá fyrir mér hvernig ég
gæti ráðlagt fjölskyldum að ræða opinskátt um einelti við börnin sín á öllum aldri,
kenna þeim að þekkja einkenni og afleiðingar og hvetja þau til hugrekkis þar sem
þau myndu mótmæla óréttlæti og aldrei taka þátt í árásum og neikvæðri hegðun.
Þetta leit út sem ágætis pistlaplan þar sem 8. nóvember er jú helgaður baráttunni gegn
einelti. Hins vegar tóku aðrar hugarmyndir völdin eftir því sem pistlinum miðaði áfram,
myndir af okkur fullorðnum og samfélaginu í heild og hvernig við höfum hagað okkur
frá efnahagsáfallinu 2008.
Getur verið að einelti fullorðinna sé orðið að stórvinsælu fyrirbæri í samfélagi okkar?
Við ástundum umtal en ekki samtal þar sem niðrandi ummæli og sögusagnir lifa frábæru
lífi og svonefndir samfélagsmiðlar margfalda allt upp. Ég sagði einhverju sinni að slúður
batnaði hreint ekkert við að verða rafrænt og við það stend ég. Gagnrýni er beitt á niður-
lægjandi og harkalegan hátt í stað þess að virða skoðanir og ræða hvernig við gerum gott
betra. Það er klappað fyrir fjölmiðlamönnum sem niðurlægja viðmælandann sem „and-
stæðing“ í einhvers konar slagsmálum þar sem átökin skipta meira máli en skilningur á
viðfangsefninu. Það er ráðist að fólki en ekki málefnum og stjórnmálafólk hvar í flokki
sem það stendur, „verður bara að þola hitann“ fyrst það gaf sig í störf fyrir þjóðina, án efa
einn vanþakklátasta atvinnurekanda sem sögur fara af. Þeim er bölvað fyrir það sem þau
gera og bölvað jafnmikið ef þau gera það ekki.
Ég sakna gamla Íslands og þjóðarinnar minnar sem varð fyrst allra til að kjósa konu í
æðsta embætti sitt og afnam fordóma og einelti gagnvart samkynhneigðum á skemmri
tíma en dæmi eru um. Ég sakna líka þjóðar sem var klöguð til Danakóngs á sautjándu öld
þegar tími galdrabrenna var í hámarki. Þáverandi sýslumaður Strandasýslu, Þorleifur
nokkur Kortsson, skrifaði mikinn kvartbálk til konungs um Íslendingana sem helst vildu
engan brenna og klykkti út með lokaumkvörtuninni: „Og svo bera þeir við eldiviðarleysi.“
Ég sakna gamla Íslands og þjóðarinnar minnar sem
varð fyrst allra til að kjósa konu í æðsta embætti sitt
og afnam fordóma og einelti gagnvart samkynhneigð-
um á skemmri tíma en dæmi eru um.
Er eldiviðurinn óþrjótandi?
Það er ráðist að fólki
en ekki málefnum
og stjórnmálafólk
hvar í flokki sem
það stendur, „verður
bara að þola hitann“
fyrst það gaf sig í
störf fyrir þjóðina,
án efa einn vanþakk-
látasta atvinnu-
rekanda sem sögur
fara af.
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
hEimur barna
Töfraflautan fyrir börn í Hörpu
h in ástsæla ópera Mozarts, Töfraflautan, verður flutt í styttri útgáfu fyrir börn í
Norðurljósum í Hörpu næsta sunnu-
dag, 16. nóvember, á tveimur sýn-
ingum, klukkan 13.30 og 16. Að
sýningunni standa Íslenska óperan,
Harpa og Töfrahurð, sem nýverið
gaf út bók eftir Eddu Austmann
Harðardóttur, byggða á óperunni.
Í sýningunni er fuglafangarinn
Papagenó í hlutverki sögumanns
og leiðir hann áhorfendur gegnum
óperuna, en í þessum búningi er
verkið aðeins klukkustund í flutn-
ingi. Sópransöngkonan Edda Aust-
mann Harðardóttir umritaði verkið
fyrir börn en útsetningu tónlistar
annaðist Steingrímur Þórhallsson.
Söngvarar í sýningunni eru með-
al annarra Ágúst Ólafsson, Gissur
Páll Gissurarson, Edda Austmann,
Snorri Wium, Viðar Gunnarsson,
Rósalind Gísladóttir og Valgerður
Guðnadóttir. Sýningin byggir að
nokkru leyti á uppfærslu Íslensku
óperunnar á Töfraflautunni haustið
2011. Ágústa Skúladóttir leikstýr-
ir, leikmunir eru hannaðir af Axel
Hallkatli Jóhannessyni, búningar
eru hannaðir af Filippíu Elísdóttur,
lýsingu hannar Páll Ragnarsson og
brúðugerð var í höndum Bernds
Ogrodnik. Allar nánari upplýsing-
ar er að finna á heimasíðu íslensku
óperunnar www.opera.is
Allt fyrir
jólaprjónið
laugavegi 59
101 reykjavík
551 82 58
storkurinn@storkurinn.is
www.storkurinn.is
Myndin sýnir garn frá brooklyn tweed sem fæst í Storkinum.
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Heimilistæki
Heimilistækjadagar 20% afsláttur
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero 2198,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L