Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 80
Hið heimsfræga sýningar- og körfuboltalið
Harlem Globetrotters er væntanlegt til
Íslands í mars á næsta ári og verður með
tvær sýningar í Schenker höllinni á Ásvöll-
um í Hafnarfirði. Þetta er í fimmta skiptið
sem liðið setur upp sýningu hér á landi.
Ávallt hefur verið uppselt á sýningar
þeirra og vorið 2013 komust færri að en
vildu og þurfti að vísa fjölda manns frá á
sýningardeginum, svo mikill var áhuginn á
þessari frábæru fjölskylduskemmtun. For-
svarsmenn Harlem Globetrotters brugðust
fljótt við og huguðu strax að endurkomu
sem verður að veruleika þann 24. og 25.
mars næstkomandi. Harlem Globetrotters
munu sýna snilli sína með ótrúlegum upp-
ákomum þar sem gleðin verður fyrst og
fremst við völd.
Harlem Globetrotters er elsta fjölskyldu-
sýning í heimi. Fyrsta liðið var myndað
árið 1926 og upp frá því hefur hópurinn
ferðast til 122 landa og komið fram á yfir
20.000 sýningum. Núverandi sýning ein-
kennist af samkeppni liðsins við annað
sýningarlið, hina svonefndu Washington
Generals, en liðið er einna þekktast fyrir
að tapa ávallt fyrir Harlem Globetrotters,
sem munu leggja allt í sölurnar til að við-
halda sigurgöngu sinni.
Miðasala er hafin og hægt er að nálgast
miða á midi.is. Líkt og síðast verða sérstök
VIP sæti í boði en þau eru staðsett nánast
inni á vellinum og get áhorfendur þannig
fengið stemninguna beint í æð.
Unnið í samstarfi við
TM event
Lið Harlem Globetrotters
til landsins í mars
MARIPOSA
1.560 kr.
einnig til
í hvítu
CONCEAL
ósýnilega hillan
Lítil 2.360 kr.
Stór 3.160 kr.
MANTRA
veggskraut
4.760 kr.
IMELDA skóhilla - staflanleg
6.360 kr.
BLACK TIE
bindahengi
1.960 kr.
HANGIT hengi fyrir
myndir og minnismiða
3.960 kr.
TEKK COMPANy
KAuPTúN 3
SíMI 564 4400
vEfvERSLuN á www.TEKK.IS
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
fLIP snagi 4.760 kr.
BIRDIE snagi
3 fuglar í pk.
3.160 kr.
STICKS snagi
4.760 kr.
AFsláttur AF
öllum vörum
Frá umbrA
20
Öll birt verð
eru tilboðsverð
Mörk mennskunnar
Siðfræðistofnun Háskóla
Íslands stendur fyrir
opnu málþingi um rann-
sóknir og hugmyndir
sem hverfast um að
efla starfsemi heilans
og taugakerfisins á
morgun, laugardag,
klukkan 13. Þar verður
meðal annars fjallað um
þróun gervigreindar og
samspil manns og vélar,
en eins og segir í fréttatilkynningu þá
hefur ný tækni á sviði lyfja og annara
inngripa vakið upp áleitnar spurningar
um hvort og hvernig sé æskilegt að hafa
áhrif á starfsemi heilans.
Þátttakendur á
málþinginu verða m.a.
þau María K. Jónsdótt-
ir taugasálfræðingur,
Hermann Stefánsson
rithöfundur, Magnús
Jóhannsson, sál-
fræðingur, Kristinn
Rúnar Þórisson,
framkvæmdastjóri
Vitvélastofnunar,
og Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar.
Dagskránni lýkur með sýningu heim-
ildarmyndarinnar Fixed þar sem m.a.
er fjallað um hvað felist í heilbrigði og
möguleikum á taugaeflingu.
TónlisT Birgir Örn sTeinarsson í KaupmannahÖfn
Rótaði fyrir Skid Row
og Ed Sheeran
Söngvarinn og
handritshöf-
undurinn Birgir
Örn Steinars-
son flutti
fyrir stuttu til
Kaupmanna-
hafnar með
konu sinni og
börnum. Hann
fékk nýverið
inni í Kaup-
mannahafn-
arháskóla þar
sem hann mun
klára gráðu í
sálfræði á milli
þess sem hann
hefur verið að
skrifa kvik-
myndahandrit.
Hann hefur þó
að aukavinnu
að starfa sem
rótari fyrir
marga af þeim
listamönnum
sem koma til
Kaupmanna-
hafnar.
V ið fluttum út í sumar. Konan mín er í meistaranámi í mannfræði og ég byrja á mínu sálfræðinámi í
febrúar,“ segir Birgir Örn Steinarsson, eða
Biggi eins og hann er kallaður. „Svo hef
ég verið að skrifa kvikmyndahandrit með
Baldvin Z.“
Biggi og Baldvin skrifuðu saman hand-
ritið að kvikmyndinni Vonarstræti sem var
gríðarlega vel tekið og nú hafa þeir skrifað
annað handrit saman en Biggi segir það
af öðrum toga. „Þetta er kvikmynd um
sprautufíkla,“ segir Biggi. „Við unnum þetta
handrit í samvinnu við Jóhannes Kr. Krist-
jánsson sem hefur mikla reynslu af þessum
heimi sem fréttamaður. Myndin fjallar um
ungt fólk á götunni. Við fórum og töluðum
við fullt af fólki sem var í neyslu eða hafði
verið í neyslu og það var margt mjög „bru-
tal“ sem við sáum,“ segir Biggi. „Þetta var
mjög lærdómsríkt ferli sem ég nota einnig í
sálfræðinni en um 80% atriðanna í mynd-
inni eru byggð á hlutum sem við sáum eða
heyrðum um.“
Á þessum tíma sem Biggi hefur verið í
Kaupmannahöfn hefur hann unnið á milli
skrifta við það að róta fyrir heimsfræga
listamenn. „Það eru nokkur fyrirtæki hér
úti sem sjá um að manna uppsetningu á tón-
leikum og eru með stóran hóp fólks sem er
hóað í fyrir hverja tónleika,“ segir Biggi.
„Í þessum hópi eru margir Íslendingar og
Danirnir tala oft um íslensku mafíuna. Ég
datt inn í þennan hóp og þetta er mjög þægi-
legt. Maður kemur að morgni og setur upp
græjurnar og mætir svo aftur að kvöldi til
þess að taka niður aftur. Þetta hentar mjög
vel með skriftunum á milli þess sem maður
er að passa upp á börnin sín.“
Þegar blaðamaður sló á þráðinn var Biggi
nýbúinn að róta fyrir SkidRow og Saxxon,
og daginn áður var það Ed Sheeran sem var
rótað fyrir. „Þetta er mjög skemmtilegt og
gaman að sjá hvernig fagmennirnir fara að
þessu. Það er alveg magnað að sjá risastórt
svið og nokkra trukka af dóti fylla það á
þremur tímum,“ segir Biggi sem hefur líka
rótað upp fyrir bandaríska tónlistarmann-
inn John Legend.
„Ég sé alltaf síðustu lögin á hverjum tón-
leikum. Ég gæti mætt fyrr en ég kýs það að
vera frekar heima og svæfa börnin áður en
haldið er til vinnu aftur,“ segir Biggi. „Það
sem er fram undan er að hella sér í námið
í febrúar og líka leggja drög að handriti að
nýrri mynd leikstjórans Reynis Lyngdal.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Birgir Örn Steinarsson hefur komið sér fyrir í
Kaupmannahöfn við skriftir á milli þess sem hann
rótar fyrir heimsfræga tónlistarmenn.
80 menning Helgin 14.-16. nóvember 2014