Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 76
H vernig kom það til að þú ákvaðst að taka þátt í að opna bar. Fannst þér ekki
vera nóg á þinni könnu?
„Birgir Jónsson, vinur minn
og trommari hljómsveitarinnar
Dimmu, er einn af eigendum stað-
arins og hann var að auglýsa eftir
einhverjum góðum manni til þess
að sjá um þetta fyrir sig. Ég bauð
mig bara fram því mér leist svo vel á
þetta,“ segir Stefán Magnússon, eða
Stebbi eins og hann er kallaður. „Ég
er í símanum og tölvunni allan dag-
inn og sá að þetta passaði allt saman
við það sem ég er að gera.“
Ætlarðu þá að vera vert á barn-
um?
„Ef ég þarf þá geri ég það, en ég
verð með alvöru menn úr þessum
bransa með mér, en jú, ég mun gera
allt sem þarf að gera.“
Hver er hugmyndin á bak við
þennan stað?
„Hugmyndin er sú að hér sé stað-
ur sem hægt er að setjast inn á í ró-
legheitum og fá sér bjór á meðan
maður spjallar við vinina. Ekki stað-
ur þar sem þarf að öskra á næsta
mann svo heyrist mannsins mál.
Þetta á að vera framúrstefnulegur
staður þar sem hægt er að fá bjór
frá spennandi brugghúsum sem
hafa ekki sést mikið á krana hér á
landi,“ segir Stebbi. „Bjórkranarnir
munu skipta um tegundir reglulega
og ætlum að vera öðruvísi en margir
aðrir barir og bjóða upp á sjaldgæf-
ar bjórtegundir og mikið úrval af
bjórstílum.“ Er það ekkert mál fyrir
stóru birgjana á Íslandi?
„Við erum sjálfstæður staður. Við
verðum með mikið úrval frá brugg-
verksmiðjunni Borg og svo bara hin-
ar ýmsu tegundir. Eins verðum við
með góð léttvín svo þetta er góður
staður til þess að setjast niður með
góðum vinum og fá sér einn drykk.“
Hvað á staðurinn að heita?
„Það er ekki búið að festa nafnið
en það verður eitthvað tengt honum
Skúla,“ segir Stebbi en staðurinn
verður í Fógetagarðinum þar sem
styttan af Skúla fógeta stendur. „Ég
held að hann sé verndari staðarins.“
Kamelljón
Stebbi vinnur á nokkrum afar ólík-
um sviðum. Er þetta einhver sturlun
að flakka á milli þessara ólíku póla?
„Þegar ég var búinn að starfa sem
íþróttakennari í 15 ár og var sendur
í sundpróf þá tók ég brjálæðiskast,“
segir Stebbi. Þá fór ég að starfa sem
einkaþjálfari og þegar þetta kom
upp þá ákvað ég að kýla bara á það.“
Síðasta sumar var Eistnaf lug
haldið í tíunda sinn og gaf Stebbi út
óljósa yfirlýsingu um það að þetta
gæti verið síðasta skiptið. Nú er
undirbúningur þó í fullum gangi
fyrir næstu hátíð sem hann segir
verða þá langstærstu. En hvað
breyttist?
Ég gaf það út að ef ákveðnir hlut-
ir myndu ekki taka breytingum
þá mundi ég ekki gera þetta aftur.
Það fór af stað ákveðin vinna fyrir
austan og við erum 98% tilbúin með
næstu hátíð. Hún hefur aldrei litið
jafnvel út,“ segir Stebbi.
Eistnaflug stækkar
Eistnaflug mun taka gríðarlegum
breytingum og er búið að stað-
festa margar stórar hljómsveitir í
harðkjarnageiranum og á eftir að
tilkynna nokkrar í viðbót. Hvern-
ig ferðu að því að selja erlendum
hljómsveitum þá hugmynd að koma
og spila á hátíð á Austfjörðum?
„Við ákváðum að breyta um hús-
næði fyrir næsta ár. Fara úr Egils-
búð, sem er félagsheimili staðar-
ins, yfir í íþróttahúsið. Sú breyting
breytir öllu. Þá er hægt að kynna
fyrir erlendum aðilum að það séu
töluvert fleiri gestir á svæðinu,“
segir Stebbi. „Við vorum búin að
sprengja Egilsbúð. Annaðhvort
þurfti að taka þetta skref upp á við,
eða bara hætta þessu. Núna er þetta
full vinna fyrir tvo einstaklinga og
svo hlutastarf fyrir tvo til þrjá í við-
bót. Fyrir utan fólk í Fjarðabyggð
sem er á fullu við það að láta þetta
ganga upp.
Eistnaflug er orðið rosalega vel
tengt úti í heimi og hljómsveitir vilja
koma. Upplifa Eistnaflug og upplifa Ís-
land, og þær vita að þær eru ekki að fá
sama tékka hér eins og annarsstaðar.
Nú þegar hafa 7 til 8 erlendar
hljómsveitir verið kynntar til leiks
og á næstu dögum verða nokkrar
kynntar til viðbótar. Við verðum
með heimsklassa nöfn í þessum
geira á Eistnaflugi á næsta ári.
Núna í vikunni kynntum við norsku
sveitina Enslaved til sögunnar. Hún
er mjög stórt númer í harðkjarna-
heiminum í dag. Í næstu viku verða
svo tvær til viðbótar kynntar til
sögunnar sem munu vekja mikla
athygli.“
Mun þetta verða framvegis stefn-
an á Eistnaflugi. Halda risastóra
þungarokkshátíð í Neskaupstað
næstu 10 árin?
„Ef allir hegða sér og það verð-
ur ekkert vesen þá verður Eistna-
flug 2016 einhver sprengja, það er
bara þannig. Við erum nú þegar að
fá pósta þar sem er verið að bjóða
okkur risastór bönd á næstu árum.
Hljómsveitir sem vilja koma.“
Heilsuþungarokkarar
Er samt ekki eitthvað skrýtið að
vera einkaþjálfari sem sér um
þungarokkshátíð? Þetta passar ekki
alveg saman á pappírunum.
„Ég veit ekki hvort vinur minn,
Aðalbjörn Tryggvason söngvari
Sólstafa, samþykki það að ég segi
frá þessu, en við fórum út að hlaupa
á síðustu hátíð,“ segir Stebbi. „Við
vorum búnir að ákveða það að fara
út að hlaupa í einu hádeginu ásamt
Skálmaldardrengjunum þar sem
þeir voru að æfa fyrir Reykjavík-
urmaraþonið. Við hlupum stóran
hring sem endaði með jóga á höfn-
inni. Eftir þetta hefur Aðalbjörn tal-
að um að þetta hafi verið eitt það
mest gefandi sem hann hafði upplif-
að á Eistnaflugi í mörg ár, svo þetta
passar alveg saman. Það er af sem
áður var,“ segir Stebbi.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Eistnaflug
veltur á
hegðun
Athafnamaðurinn og ólíkinda-
tólið Stefán Magnússon er
ekki við eina fjölina felldur.
Hann er íþróttakennari að
mennt og starfar sem einka-
þjálfari. Hann hefur undan-
farin 10 ár staðið að þunga-
rokkshátíðinni Eistnaflugi í
Neskaupstað sem hann segir
fara upp á annað plan á næsta
ári og nú er hann að opna bar
í Reykjavík í slagtogi við aðra
góða menn.
Stefán Magnússon segir einkaþjálfun og þungarokk einkenninlega en skemmtilega
blöndu. Mynd/Hari
Rjúkandi
reimleikar!
Draugagangur á Skuggaskeri
er ríkulega myndskreytt saga
fyrir lesendur frá níu ára aldri
og framhald sögunnar
Strokubörn á Skuggaskeri
sem tilnefnd var til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
VVVVV
„ Virkilega vönduð og skemmtileg bók,
sem bæði börn og fullorðnir ættu að hafa
gaman af. Litmyndir og litaður texti lífga
upp á lestrarupplifunina.“
Halla Þórlaug Gísladóttir / Fréttablaðið
www.forlagid.is
– alvöru bókabúð á netinu
76 menning Helgin 14.-16. nóvember 2014