Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 48
48 ferðalög
Seattle liggur vel við þeim Sem vilja verja nokkrum dögum á nýjum Stað
Í borg þeirra hugmyndaríku
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Helgin 14.-16. nóvember 2014
Verndaðu bílinn fyrir lakkskemmdum
og fáðu og ryðvörn
Aldrei
löng bið!
Opið allan sólarhringinn
á öðrum stöðvum Löðurs
13
STAÐIR
www.lodur.is | Sími 568 0000
Það hefur lengi verið
nóg af skapandi og
drífandi fólki í Seattle
og þeir sem gera sér
ferð til borgarinnar
geta notið góðs af því.
F yrir nærri aldarfjórðungi margfaldaðist notkun á borgarheitinu Seattle í
heimspressunni. Ástæðan var gíf-
urlegar vinsældir hljómsveitanna
Nirvana og Pearl Jam sem báðar
eru kenndar við þessa fjölmenn-
ustu borg norðvesturhluta Banda-
ríkjanna. Stuttu eftir að rokkið
kom Seattle á kortið hófu eigend-
ur Starbucks og Amazon kaffi- og
bóksölubyltingu sem
enn sér ekki fyrir
endann á .
Microsoft
hafði á sama
t íma tekið
y f ir tölvu-
heiminn
og f lugf loti
heimsins kemur að miklu leyti úr
verksmiðju Boeing í Seattle. Allt
þetta hefur sprottið upp úr þeim
frjóa jarðvegi sem stemningin í
borginni hefur myndað.
Dægradvöl á vegum þeirra
auðugustu
Velgengni þessara aðila hefur sett
svip á byggðina og til að mynda
eru meðaltekjur Seattlebúa þær
fimmtu hæstu í Bandaríkjunum.
Það eru því margir sem hafa nóg
milli handanna og það útskýrir að
hluta til þá miklu grósku sem er í
íþrótta- og menningarlífi borgar-
innar. Auðjöfrarnir hafa líka verið
stórtækir á þessu sviði og styrkt
alls kyns viðburði í borginni.
Til að mynda hefur Paul Allen,
einn stofnenda Microsoft, reist
risastórt tónlistar- og afþreyinga-
safn við hlið Space Needle turn-
ins, helsta kennileitis borgarinnar.
Það var stjörnuarkitektinn Frank
Gehry sem teiknaði safnahúsið
sem upphaflega stóð til að kenna
við Jimi Hendrix, einn frægasta
son borgarinnar. Ekki fékkst hins
vegar meirihluti fyrir nafngiftinni
meðal erfingja gítarleikarans og
safnið því bara kallað EMP í dag.
Paul Allen er líka maðurinn að
baki meistaraliði Seattle Seahawks
í NFL deildinni og fyrirtæki hans,
Microsoft, er helsti stuðningsaðili
nýlistasafns borgarinnar, SAM,
þar sem reglulega eru sýnd verk
þeirra þekktustu.
Maturinn sóttur í nágrennið
Það hafa þó ekki allir hinir hug-
myndaríku Seattlebúar verið með
hugann við heimsyfirráð og í stað-
inn einbeitt sér að heimabyggðinni.
Það sést vel á veitingahúsalífi borg-
arinnar. Í Capitol Hill hverfinu er
til að mynda sjaldan langt á milli
matsölustaða sem gera það besta
úr því sem nærsveitirnar og miðin
hafa upp á að bjóða. Gott dæmi um
það er örstuttur kafli á Melrose
Avenue þar sem hægt er að velja
á milli þess að seðja hungrið með
lífrænum Homegrown samlokum,
borða það sem árstíðirnar í Wash-
ington fylki skammta kokkunum á
Sitka&Spruce eða sökkva sér í ostr-
urnar hjá Taylor Shellfish. Þeir sem
vilja gera sjávarréttunum enn betri
skil geta reynt að sitja um borðin á
Walrus and the Carpenter, við Ball-
ard Avenue, sem stundum er sagð-
ur einn fremsti ostrubar Banda-
ríkjanna. Matarmenningu Seattle
verða hins vegar ekki gerð góð skil
nema að kíkja inn í búr borgarinnar
en í rúma öld hafa íbúarnir getað
sótt sér ferskt hráefni á Pike Place
markaðinn í miðborginni.
Icelandair f lýgur daglega til
Seattle og af landakortinu að
dæma er óralangt að fljúga þangað
en flugtíminn er þó aðeins einum
og hálfum tíma lengri en ef ferð-
inni er heitið til New York. Seattle
liggur því vel við þeim sem vilja
verja nokkrum dögum á nýjum
stað.
Boðið er upp á skoðunarferðir í Boeing verksmiðjurnar í Seattle fyrir þá sem áhuga
hafa á flugtækni og nýjustu gerðum flugvéla.
Hið skrautlega safnahús
EMP í Seattle stendur við
hlið hins 184 metra háa
Space Needle turns. Það
er því lítið mál að gera
tveimur af skyldustoppum
borgarinnar skil í einu. Mynd
VisitSeattle