Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 48

Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 48
48 ferðalög  Seattle liggur vel við þeim Sem vilja verja nokkrum dögum á nýjum Stað Í borg þeirra hugmyndaríku Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Helgin 14.-16. nóvember 2014 Verndaðu bílinn fyrir lakkskemmdum og fáðu og ryðvörn Aldrei löng bið! Opið allan sólarhringinn á öðrum stöðvum Löðurs 13 STAÐIR www.lodur.is | Sími 568 0000 Það hefur lengi verið nóg af skapandi og drífandi fólki í Seattle og þeir sem gera sér ferð til borgarinnar geta notið góðs af því. F yrir nærri aldarfjórðungi margfaldaðist notkun á borgarheitinu Seattle í heimspressunni. Ástæðan var gíf- urlegar vinsældir hljómsveitanna Nirvana og Pearl Jam sem báðar eru kenndar við þessa fjölmenn- ustu borg norðvesturhluta Banda- ríkjanna. Stuttu eftir að rokkið kom Seattle á kortið hófu eigend- ur Starbucks og Amazon kaffi- og bóksölubyltingu sem enn sér ekki fyrir endann á . Microsoft hafði á sama t íma tekið y f ir tölvu- heiminn og f lugf loti heimsins kemur að miklu leyti úr verksmiðju Boeing í Seattle. Allt þetta hefur sprottið upp úr þeim frjóa jarðvegi sem stemningin í borginni hefur myndað. Dægradvöl á vegum þeirra auðugustu Velgengni þessara aðila hefur sett svip á byggðina og til að mynda eru meðaltekjur Seattlebúa þær fimmtu hæstu í Bandaríkjunum. Það eru því margir sem hafa nóg milli handanna og það útskýrir að hluta til þá miklu grósku sem er í íþrótta- og menningarlífi borgar- innar. Auðjöfrarnir hafa líka verið stórtækir á þessu sviði og styrkt alls kyns viðburði í borginni. Til að mynda hefur Paul Allen, einn stofnenda Microsoft, reist risastórt tónlistar- og afþreyinga- safn við hlið Space Needle turn- ins, helsta kennileitis borgarinnar. Það var stjörnuarkitektinn Frank Gehry sem teiknaði safnahúsið sem upphaflega stóð til að kenna við Jimi Hendrix, einn frægasta son borgarinnar. Ekki fékkst hins vegar meirihluti fyrir nafngiftinni meðal erfingja gítarleikarans og safnið því bara kallað EMP í dag. Paul Allen er líka maðurinn að baki meistaraliði Seattle Seahawks í NFL deildinni og fyrirtæki hans, Microsoft, er helsti stuðningsaðili nýlistasafns borgarinnar, SAM, þar sem reglulega eru sýnd verk þeirra þekktustu. Maturinn sóttur í nágrennið Það hafa þó ekki allir hinir hug- myndaríku Seattlebúar verið með hugann við heimsyfirráð og í stað- inn einbeitt sér að heimabyggðinni. Það sést vel á veitingahúsalífi borg- arinnar. Í Capitol Hill hverfinu er til að mynda sjaldan langt á milli matsölustaða sem gera það besta úr því sem nærsveitirnar og miðin hafa upp á að bjóða. Gott dæmi um það er örstuttur kafli á Melrose Avenue þar sem hægt er að velja á milli þess að seðja hungrið með lífrænum Homegrown samlokum, borða það sem árstíðirnar í Wash- ington fylki skammta kokkunum á Sitka&Spruce eða sökkva sér í ostr- urnar hjá Taylor Shellfish. Þeir sem vilja gera sjávarréttunum enn betri skil geta reynt að sitja um borðin á Walrus and the Carpenter, við Ball- ard Avenue, sem stundum er sagð- ur einn fremsti ostrubar Banda- ríkjanna. Matarmenningu Seattle verða hins vegar ekki gerð góð skil nema að kíkja inn í búr borgarinnar en í rúma öld hafa íbúarnir getað sótt sér ferskt hráefni á Pike Place markaðinn í miðborginni. Icelandair f lýgur daglega til Seattle og af landakortinu að dæma er óralangt að fljúga þangað en flugtíminn er þó aðeins einum og hálfum tíma lengri en ef ferð- inni er heitið til New York. Seattle liggur því vel við þeim sem vilja verja nokkrum dögum á nýjum stað. Boðið er upp á skoðunarferðir í Boeing verksmiðjurnar í Seattle fyrir þá sem áhuga hafa á flugtækni og nýjustu gerðum flugvéla. Hið skrautlega safnahús EMP í Seattle stendur við hlið hins 184 metra háa Space Needle turns. Það er því lítið mál að gera tveimur af skyldustoppum borgarinnar skil í einu. Mynd VisitSeattle

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.