Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 78

Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 78
Á morgun, laugar-dag, fer fram út-gáfuhóf bókar-innar Maðurinn sem hataði börn eftir Þórar- inn Leifsson. Útgáfuhófið verður í Máli og Menningu á Laugavegi 18 og hefst klukkan 16. Maðurinn sem hataði börn kom í allar betri bókabúðir fyrir nokkru síðan og hefur hlotið frá- bæra dóma hjá gagnrýn- endum, sem hrífast sérstak- lega af myndskreytingum höfundar sem auðga söguna og glæða skrautlegar pers- ónurnar enn meira lífi. Það er höfundi mikil ánægja að blása til boðsins, en hann Þórarinn Leifsson slær tvær flugur í einu höggi Fagnar útkomu bókar og frumsýningu á leikriti. er loksins kominn heim í stutt stopp frá Berlín. Í tilefni dagsins verður bókin á sérstöku kynningarverði og að sjálf- sögðu verður hægt að fá áritun höfundar – sem er ólíkt félagslyndari en Maðurinn sem hataði börn. Hrollvekja fyrir 10 ára og eldri Titill bókarinnar er ekki sá allra frýnileg- asti, en Þórarinn byggir bókina á eigin reynslu af dönskum hrollvekjum sem hann las sem barn. „Bókin er fyrir 10 ára og upp úr. Ég er alltaf að reyna að skrifa bækur sem falla undir ungmennabók- menntir, þannig reyni ég að ná til allra aldurshópa um leið,“ segir hann. Ádeila á íslenskt samfélag? Gagnrýnendur tala um að í bókinni sé að finna ádeilu á íslenskt samfélag. Að- spurður um hvort sú sé raunin segir Þórarinn að hver verði að dæma fyrir sig. „Þetta er eitthvað sem gerist ósjálf- rátt. Við rithöfundar fylgjumst vel með netmiðlum og sú umræða sem er í gangi hverju sinni síast því alltaf inn í það sem við erum að gera, allavega í mínu til- felli. En það er ekki þannig að ég setjist niður og ætli að gagnrýna samfélagið og breyta heiminum. Ég sé þetta meira eftir á.“ Dagskráin í útgáfuhófinu verður ekki sérlega fastmótuð, en höfundurinn mun segja stuttlega frá bókinni og lesa ör- stuttan kafla. Þórarinn mun þó slá tvær flugur í einu höggi því Jónas Sigurðsson mun flytja nokkra frumsamda tóna úr leikritinu Útlenski drengurinn eftir Þór- arin. Leikritið verður frum- sýnt daginn eftir útgáfuboðið, sunnudaginn 16. nóvember, í Tjarnarbíói. Dóri DNA er Dóri litli Útlenski drengurinn er gaman- leikur með alvarlegum undir- tóni og sér leikhópurinn Glenna um uppsetningu. Verkið fjallar um Dóra litla sem er vinsælasti strákurinn í bekknum en eftir að vera settur í skyndipróf í lestri hjá aðstoðarskólastjór- anum snýst líf hans algerlega á hvolf. Röð undarlegra atburða verður til þess að hann missir ríkisfangið og er kyrrsettur á skólabókasafninu. Verkið veltir upp spurningum um ríkisfang, einelti og þá tilfinningu að upp- lifa sig utangarðs. Útlenski drengurinn varð til upp úr létt- lestrarbók sem Þórarinn var beðinn um að skrifa fyrir Námsgagnastofnun. Þar notaðist hann við fígúruna Dóra litla. „Persónan er lauslega byggð á ættingja sem er kallaður Dóri litli, en er ef til vill þekktari sem Dóri DNA,“ segir Þórarinn. Það er því engin tilviljun að Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA, fer með aðalhlutverkið í sýning- unni. Með önnur hlutverk fara Þorsteinn Bachmann, María Heba Þorkelsdóttir, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Bene- dikt Karl Gröndal. Leikstjóri er Vigdís Jakobsdóttir. Miðar á sýninguna verða til sölu á sér- stökum afslætti á morgun í út- gáfuhófinu í Máli og Menningu. Unnið í samstarfi við Forlagið  Fjölmiðlar BB Fagnar 30 Ára aFmæli Útidyrnar að Vestfjörðum F rét tamiðil l inn Bæjarins besta á Ísafirði fagnar 30 ára afmæli í dag, föstudag. Blaðið var stofnað af þeim Halldóri Sveinbjörnssyni og Sigurjóni J. Sig- urðssyni sem enn gegnir starfi rit- stjóra. „Halldór var að vinna sem prentari og var lengi búinn að suða í mér að búa til sjónvarpsvísi fyrir bæjarfélagið og nærsveitir,“ segir Sigurjón. Halldór hætti störfum hjá blaðinu síðasta sumar. „Ég var þá að vinna sem skrifstofustjóri hjá vélsmiðjunni Þór og lét til leiðast. Þetta byrjaði sem sjónvarpsvísir en ári seinna breyttum við þessu í fréttablað.“ Bæjarins besta kem- ur út einu sinni í viku en á tímabili komu út tvö blöð í viku. „Á árun- um 1986 og 1987 gáfum við út tvö blöð í viku. Það var auðveldara að selja auglýsingar á þeim tíma og allt í blóma,“ segir Sigurjón, en í dag starfa 5 manns við miðilinn. „1985 fórum við að selja blaðið og vorum með mikið af áskrifendum en um áramótin 2012 og 2013 breyttum við þessu aftur í fríblað, því auglýsend- ur vildu frekar auglýsa í fríblaði.“ Aðspurður segir Sigurjón alltaf nóg að frétta úr fjórðungnum. „Það er nauðsynlegt hverjum landsfjórð- ungi að halda úti fréttablaði. Bæði fyrir fréttatengt efni sem og auglýs- ingar og tilkynningar. Svo er vefur- inn okkar líka vinsæll en við höfum haldið honum úti í 15 ár,“ segir Sig- urjón. „Ég veit ekki hvort ég verð sjálfur næstu 30 árin með blaðið og stórefa það, en ég vona að blaðið haldi áfram að vaxa og dafna. Ein- hver sagði að Bæjarins besta væri útidyrnar að Vestfjörðum og ég held að það sé réttnefni,“ segir Sigurjón J. Sigurðsson, ritstjóri Bæjarins besta. Hægt er að lesa allar fréttir blaðsins á heimasíðunni www.bb.is Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Sigurjón J. Sigurðsson, rit- stjóri Bæjarins besta. 78 menning Helgin 14.-16. nóvember 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.