Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 86
86 dægurmál Helgin 14.-16. nóvember 2014
Samkvæmt
því sem
maður
hefur heyrt
er búið
að eyða
stórum
hluta þess
sem var
tekið upp
frá 66 til
kannski 86.
fridaskart.is
Strandgötu 43
Hafnarrði
íslensk hönnun í gulli og silfri
Júlí Heiðar
hefur
fundið sinn
stíl með
hljóm-
sveitinni
Limited
Escape.
Þ etta verður allt annað „teik“ en í bókinni enda er þetta allt annar miðill. Þarna gefst tækifæri til að sýna lifandi myndir, það er þær
myndir sem ekki er búið að henda úr safni
RÚV,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr.
Gunni, sem vinnur nú að sjónvarpsþáttaröð
um íslenska dægurlagasögu.
Dr. Gunni hefur getið sér gott orð sem
poppsagnfræðingur þjóðarinnar, síðast með
hinu veglega riti Stuð vors lands sem kom
út fyrir tveimur árum. Það var Skarphéðinn
Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins,
sem átti hugmynd að gerð sjónvarpsþátt-
anna og hefur Dr. Gunni varið árinu í vinnu
við þá, ásamt þeim Erni Marinó og Þorkeli
Harðarsyni í kvikmyndagerðinni Markeli.
Þættirnir hafa ekki enn fengið nafn en
ganga undir vinnuheitinu Poppsaga Íslands.
Um er að ræða átta klukkustundar langa
þætti. Stefnt er að því að þeir verði kláraðir
á næsta ári en ekki hefur verið ákveðið hve-
nær þeir verða sýndir.
„Við ætlum að rekja dægurtónlistarsögu
Íslands frá nítjándu öld og fram á okkar
daga. Við verðum með safnefni í bland við
ný viðtöl. Ætli þau verði ekki um 150 talsins
og við erum búnir með svona helminginn,“
segir Dr. Gunni.
Þú talaðir um að efni hafi verið hent úr
safni RÚV. Er ástandið slæmt?
„Við erum reyndar ekki komnir langt
með það. En sagan segir að Ríkissjónvarpið
hafi verið ágætlega duglegt við að gera
þætti með popphljómsveitum síðan það
byrjaði árið 1966. Samkvæmt því sem mað-
ur hefur heyrt er búið að eyða stórum hluta
þess sem var tekið upp frá 66 til kannski 86.
Það er algjörlega svakalegt. Þetta var víst
tekið upp á dýrar spólur sem hægt var að
taka upp á aftur og aftur. Það hafa ábyggi-
lega verið tekin upp viðtöl við stjórnmála-
menn yfir þetta sem enginn hefur áhuga
á. Staðreyndin er sú að fólk hefur áhuga á
listamönnum og kynlegum kvistum. Það
er undantekning ef einhver hefur áhuga á
stjórnmálamönnum. Það eru þá bara helstu
menn, eins og Jónas frá Hriflu eða Ólafur
Thors.“
Búið er að selja sýningarrétt að þáttunum
á norrænar sjónvarpsstöðvar og eitthvað
víðar, að sögn Gunna. „Ætli það verði þá
ekki kokkuð upp tveggja þátta röð úr þessu.
Við tökum væntanlega þann vinkil sem
útlendingar vilja heyra, um náttúru landsins
og álfana. Það er bara sá bás sem íslensk
músík er komin á og maður spilar bara
með til að svíkja ekki þjóðina. En við vitum
betur.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Kamilla Ingibergs-
dóttir, sem gegnt
hefur starfi upp-
lýsingafulltrúa Iceland
Airwaves hátíðarinnar
undanfarin ár, hættir
störfum við hátíðina
á næstu dögum.
Kamilla ætlar þó að
halda áfram störfum
í tónlistargeiranum
og er að fara að vinna
fyrir hljómsveitina Of
Monsters And Men.
Við starfi hennar hjá
Iceland Airwaves
tekur Henný María
Frímannsdóttir sem
hefur unnið fyrir
marga íslenska tón-
listarmenn og sá um
viðburði um árabil
fyrir umboðsskrif-
stofuna Prime.
Laddi og Edda í
Skaupinu
Stórleikararnir Þórhallur Sigurðsson,
Laddi, Þorsteinn Bachmann og Edda Björg-
vinsdóttir eru á meðal leikara í Áramótas-
kaupinu í ár. Tökur eru hafnar og hafa
meðal annars farið fram í Kringlunni í
vikunni. Þá var Laddi við tökur á atriði sem
fjallaði um lífsýnasöfnun Decode.
Retro Stefson í Kanada
Hljómsveitin Retro Stefson hélt til Kanada í
vikunni til þess að koma fram í morgun-
sjónvarpsþættinum Canada AM í Toronto.
Framkoman er í tilefni af því að sveitin
spilar á tónleikum þar í bæ á morgun sem
bera yfirskriftina A Taste of Iceland. Aðrir
sem koma fram eru Hermigervill, Young
Karin og Uni Stefson.
Vítaspyrna í
Vestmannaeyjum í
sjónvarp
Nú standa yfir handritsskrif að nýjum sjón-
varpsþáttum sem byggja á bók Gunnars
Helgasonar, Vítaspyrna í Vestmanna-
eyjum. RÚV hefur gefið vilyrði um að sýna
þættina og ráðist verður í fjármögnun á
næstu misserum. Tökur munu líklegast
hefjast árið 2016.
TónlisT ný hljómsveiT júlí heiðars
Söngvarinn Júlí Heiðar
Halldórsson skaust upp á
stjörnuhimininn árið 2009
með hinu umdeilda lagi
Blautt dansgólf, sem varð
mjög vinsælt hjá ungum
krökkum. Ári síðar
sigraði hann í söngkeppni
framhaldsskólanna ásamt
rapparanum Kristmundi
Axel og voru þeir mjög
áberandi um skeið, og þá
sérstaklega hjá ungu kyn-
slóðinni. Undanfarin tvö
ár hefur farið minna fyrir
Júlí og segir hann hafa
eytt tímanum í lagasmíðar
og í sumar stofnaði hann
hljómsveit ásamt félögum
sínum. „Þetta er mjög
langt frá því sem ég var
að gera áður. Ég er búinn
að þroskast og þróast og
unnið í því að finna minn
stíl,“ segir Júlí.
„Ég stofnaði hljómsveit
í sumar ásamt félögum
mínum og núna í októ-
ber gáfum við út okkar
fyrstu plötu. Það er miklu
skemmtilegra að vera í
hljómsveit en að vera að
koma fram einn.“ Hljóm-
sveitin heitir Limited
Escape og platan nefnist
platan Creek. „Stefnan er
að halda útgáfutónleika
í desember og gera tón-
listarmyndband. Við erum
búnir að spila á nokkrum
tónleikum að undanförnu
og það hefur gengið alveg
ótrúlega vel,“ segir Júlí
Heiðar. Platan Creek er
fáanleg á tonlist.is -hf
Hannes
Friðbjarnarson
hannes@
frettatiminn.is
Hef þroskast og fundið minn stíl
Fjölmiðlar Dr. Gunni Gerir sjónvarpsÞæTTi Fyrir rúv
Segir poppsögu Íslands
í átta sjónvarpsþáttum
Poppfræðingurinn Dr. Gunni tekur 150 viðtöl fyrir nýja sjónvarpsþáttaröð um íslenska dægur-
lagasögu. Þættirnir verða sýndir á RÚV og hafa verið seldir til erlendra sjónvarpsstöðva. Dr.
Gunna blöskrar að gömlum upptökum úr safni RÚV hafi verið hent.
Dr. Gunni er forfallinn vínyláhugamaður og gangandi alfræðiorðabók um íslenska tónlist. Hann notar alla sína vitneskju við
gerð sjónvarpsþáttaraðar um íslenska tónlist. Ljósmynd/Hari
Henný tekur við af Kamillu hjá Airwaves