Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 68
68 matur & vín Helgin 14.-16. nóvember 2014
Laugardagstilboð
– á völdum servéttum og kertum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Opið laugardaga kl. 10-16
Nýir o
g
fallegi
r haus
t- og
vetrar
litir í s
ervétt
um
og ker
tum
®
Bjór Borg sendir frá sér Þvörusleiki
v ið höfum fyrir því mögulegan og stað-festan grun að helstu
þvörur hafi á sínum tíma verið
skornar út úr eik. Það lá því
beinast við að lofa bjórnum
að liggja á eik í einhvern tíma
svo hann stæði undir nafni.
Eikin gefur honum ennfrem-
ur mjúkt og þægilegt bragð í
bland við vanillutóna,“ segir
Árni Long, bruggmeistari
Borgar.
Fjórði jólabjór Borg-
ar brugghúss, Þvörus-
leikir Nr. 28, fer í sölu í
dag, föstudag. Þvörus-
leikir er 7% eikarlegið
rauðöl, þurrhumlað að
amerískum sið. Þvörus-
leikir hefur upp á þrenns-
konar humla að bjóða en í
bruggunina fóru Apollo-,
Bravo- og Citra-humlar,
og eru þeir síðastnefndu
með því heitasta þessa
dagana meðal bjóráhuga-
manna sem þjást af hinu
sívaxandi humlablæti.
„Þvörusleikir er ríkur
af ferskum og suðrænum
ávaxtatónum sem náðust
fram með þremur mismun-
andi humlum sem við þurr-
humluðum ölið með en þar
ber kannski helst að nefna
hina mjög svo móðins
citra-humla sem gefa hvað
mesta bragðið í blöndunni.
Þetta er því trúlega fyrsti
íslenski bjórinn sem tefl-
ir fram þessu eftirsótta
humlayrki, allavega
svo við vitum,“ segir
Árni.
„Við erum ótrúlega
ánægðir með útkom-
una og þá sérstaklega
hvað við náðum góðu
jafnvægi og mýkt í
þetta, það er alls ekki
sjálfgefið þegar maður
er með mikið af afger-
andi og ólíkum bragð-
einkennum, líkt og
í Þvörusleiki. Svo er
froðan líka sérstaklega
sexí,“ segir Árni.
Eikarlegið rauðöl
með sexí froðu
Árni Long, bruggmeistari í Borg, segir að Þvörusleikir sé trúlega fyrsti íslenski
bjórinn með citra-humlum í.
Valgeir Valgeirsson bruggmeistari var glaður þegar hann tók við verðlaununum í
Þýskalandi í vikunni.
Bjór gull- og silfurverðlaun á european Beer star
Snorri og Garún verð-
launuð í Þýskalandi
Valgeir Valgeirsson, brugg-
meistari í Borg, tók á móti
verðlaunum á European Beer
Star í Þýskalandi í vikunni.
Snorri hlaut gullverðlaun og
Garún silfurverðlaun.
Í slensku bjórarnir Snorri og Garún voru verðlaunaðir á bjórkeppninni European Beer
Star 2014 í vikunni. Snorri hlaut
gullverðlaun í flokknum Herb and
Spice Beer en Garún silfurverðlaun
í flokki Imperial Stout-bjóra. Það er
Borg brugghús sem á heiðurinn af
báðum bjórunum og veitti Valgeir
Valgeirsson bruggmeistari verð-
laununum viðtöku í Þýskalandi.
European Beer Star er haldin ár-
lega af samtökum óháðra brugg-
húsa í Bæjaralandi og samtökum
óháðra brugghúsa í Þýskalandi.
Keppnin fór fram í München fyrir
um mánuði en verðlaunaafhending-
in var í vikunni.
Alls tóku 1.613 bjórar þátt í
keppninni að þessu sinni. Þar af
eru 42 prósent þýskir bjórar en 58
prósent frá löndum um álfuna alla.
Keppt er í 52 flokkum. Þetta var í
ellefta sinn sem European Beer
Star-keppnin er haldin.
Snorri Nr. 10 er bruggaður úr inn-
lendu byggi og kryddaður með alís-
lensku, lífrænu blóðbergi. Hann er
ósíaður, örlítið skýjaður en engu að
síður ljós yfirlitum. Lyktin gefur til
kynna að pundið sé þungt í Snorra, en
annað kemur í ljós við smökkun; það
er létt yfir honum og ferskleiki í fyrir-
rúmi. Snorri þykir aðgengilegur bjór
og hentar t.d. vel með léttri villibráð.
Þetta eru fyrstu verðlaun Snorra, sam-
kvæmt upplýsingum frá Ölgerðinni.
Garún nr. 19 var fyrsta konan í
Borgarfjölskyldunni. Garún er Ice-
landic Stout sem er tvígerjað af-
brigði af Imperial Stout sem, ásamt
íslenska vatninu, gefur þessum
kvenskörungi ferskara og mýkra
bragð. Garún er sá íslenski bjór
sem kemst hæst á nördabiblíunni
Beer Advocate, nr. 14 í Skandinavíu.
Garún vann gull á the Global Craft
Beer Awards 2014. Hún er seld í
Bandaríkjunum, Eistlandi, Kanada
og hér heima.
Góðir gestir á Slipp-
barnum um helgina
B arþjónar frá hinum virta kokteilbar Corner Club í Stokkhólmi taka yfir Slippb-
arinn á laugardagskvöld. Þá munu
þeir Oskar Karl og Johan Evers
færa Íslendingum nýjustu
strauma og stefnur frá
Svíþjóð.
Þeir félagar hafa
verið hér á landi í
vikunni. Á miðviku-
dagskvöld voru þeir
á Slippbarnum, á
fimmtudagskvöld
voru þeir með svo-
kallaðan masterclass
og í kvöld, föstudags-
kvöld, hreiðra þeir
um sig á Ice -
landair hótel
Héraði
á
Egilsstöðum.
Kokteilbarinn Corner Club er að
finna í Gamla Stan í Stokkhólmi,
mitt á milli veitingastaðarins Fly-
ing Elg og tveggja stjörnu Michelin
veitingastaðarins Frantzén. Cor-
ner Club þjónustar kokteila
fyrir þessa staði og leggja
barþjónarnir Oskar Karl
og Johan Evers áherslu á
klassíska kokteila, hefðir
og aðferðafræði.
Corner Club var valinn
einn af bestu kokteilbör-
um í Evrópu í Mens Journ-
al á dögunum.
Þessi heimsókn er hluti
af stefnu Slippbarsins að fá
hingað færustu barþjóna
sem völ er á. Á dögunum
voru hér barþjónar
frá Mikropolis bar
í Kaupmannahöfn
og von er á fleiri
heimsóknum á
næstunni.
Ási á Slippbarnum
fær góða gesti
frá Corner Club í
Stokkhólmi um
helgina
Snorri
Garún